Feykir - 29.11.2017, Síða 3
32 01 7
Gamlar minningar eru
óvenju áleitnar fyrir þessi
jól. Minningar mínar frá
fyrstu árunum sem prestur
hjá Húnvetningum og
Skagfirðingum.
Fyrsta jólamessan mín á
Sauðárkróki var 1980.
Mér þótti að vonum mikið
liggja við að messan yrði falleg
og snerti þá strengi sem vera
bæri við upphaf jólanna. Jóla-
boðskapurinn myndi ná sínum
helga hljómi í hverri sál.
Á Þorláksmessu fórum við
Jón Björnsson organisti yfir
messuna í kirkjunni. Kirkju-
kórinn var þá fullæfður og allt klárt og kvitt hjá
honum og hinum dug- og hugmikla organista.
Auðvitað kom ekki til mála að lækka hátíðatón
séra Bjarna. „Við syngjum þetta allt og sláum
ekki af neinu,“ sagði Jón.
En það var einn tónn sem ég réð ekki við.
Þegar prestur tónar „Önd mín lofar Drottin og
minn andi gleður sig...“. Á sjálfum andanum er
hæsti tónninn, E minnir mig. Jón sagði: „Þú
getur þetta vel, bara dregur djúpt andann og
sprengir þetta fram.“
Svo voru jólin hringd inn og messan byrjaði.
Fram eftir messunni var ég öðrum þræði með
hugann við þennan háa tón. Þegar svo að
honum kom dugðu góð ráð organistans ekki.
Ég sprengdi engan tón fram. Ég sprakk!
Jólagleðin dvínaði svolítið, hátíðarljóminn
fölnaði. Á sjálfu aðfangadagskvöldinu var ég
jafnvel að hugsa um það að svona messuspjöll
yrðu ekki liðin, allra síst í frægasta sönghéraði
landsins sem fóstrað hafði tónskáld og stór-
söngvara með öllum kynslóðum. Þar sem
margradda söngurinn liggur í loftinu.
Sjálfsagt brostu einhverjir að þessu atviki en
vonandi spillti það ekki jólagleði nokkurs
manns.
En mér var þetta kennsla í auðmýkt.
Við búum ekki til jólin. Við tökum á móti
þeim, við erum þiggjendur guðlegrar náðar.
Jólasálmarnir enduróma það, jólaguðspjallið
þar sem engillinn segir: „Verið óhrædd, því sjá,
ég boða yður mikinn fögnuð sem veitast mun
öllum lýðnum. Yður er í dag frelsari fæddur...“
Þessi orð og erindi, fagnaðarerindi jólanna,
Sr. Hjálmar Jónsson
Jólahátíðin er framundan,
ár að verða liðið, enn eitt
ÚTGEFANDI
Nýprent ehf. Sauðárkróki
Sími 455 7176, feykir@feykir.is
RITSTJÓRI & ÁBM.
Páll Friðrikssn
palli@feykir.is
BLAÐAMAÐUR
Fríða Eyjólfsdóttir
frida@feykir.is
LAUSAPENNAR
Óli Arnar Brynjarsson
oli@feykir.is
FORSÍÐUMYND
Róbert Daníel Jónsson
AUGLÝSINGASÖFNUN
Sigríður Garðarsdóttir
UMBROT & PRENTUN
Nýprent ehf.
Jólablaðið er prentað
í 3600 eintökum og er
dreift frítt í öll hús í
Skagafirði og í Húna-
vatnssýslum.
20
17
eru alltaf jafn kærkomin. Tími óttans og
áhyggjunnar á að vera liðinn. Fátt sagði Kristur
oftar við fólk en það að óttast ekki, hræðast
ekki, vera ekki áhyggjufull.
Jólin eru gjöf, hin eiginlega jólagjöf. Gefnar
gjafir eru bergmál þess kærleika sem fæðing
Krists færði heiminum. Að eiga jólin með
fjölskyldum okkar og samfélaginu er besta
gjöfin. Til þess er líka hugsað að tíminn líður.
Vinir kveðja og eru kvaddir af þessum heimi.
Þótt oft sé haft á orði að jólin séu hátíð verslun-
ar og fjárausturs þá vita nú flestir hver hin
raunverulegu verðmæti eru, þau sem við best
eignumst í þessu jarðlífi. Að þeim er ljúft að
hlúa. Þar er það þakklæti fyrir samvistir og
samfylgd í lífinu, fyrir félagsskap og vináttu,
samkennd, samhjálp. Þetta eru vissulega tíma-
bundin gæði og þess vegna verður það ekki
nógsamlega undirstrikað, sem blessunarlega
hefur heyrst oft á síðustu misserum, „Lífið er
núna.“
Þannig er ljúft að ganga inn í jólin, þiggja
þau og anda þeirra, andann sem gleður,
andann sem styrkir og gerir gott samfélag
betra.
Ég sprakk þegar ég tónaði „andann“ forðum í
Sauðárkrókskirkju.
Það gerði jólunum ekkert til. Málið er að
andi manns gleðjist í Guði, frelsara vorum.
Gleðileg jól
Sr. Hjálmar Jónsson
Jólin mín
Agnes Hulda Agnarsdóttir Blönduósingur á Króknum
Góð bók er alltaf vel þegin
Jólin eru... samvera með
fjölskyldunni inni og úti,
spil, leikir, kósý stundir,
góður matur og nammi.
Hvað kemur þér í
jólaskap? Jólaljós,
sérstaklega í gluggum,
fólkið mitt að koma
heim í jólafrí og
hangikjötsilmur.
Hvert er besta
jólalagið? O helga natt
með Jussi Björling.
Eiginmaðurinn hefur
blastað því fyrir
jólin síðan við kynntumst. Ef ég nenni með Helga Björns er líka
ómissandi.
Hvað finnst þér ómissandi að gera yfir hátíðirnar? Fara í
aftansöng í kirkjunni á aðfangadag.
Hvað langar þig í jólagjöf? Góð bók er alltaf vel þegin t.d. bókin
um Rúnu Einars eða nýja ljóðabókin hennar Eydísar Blöndal.
Bakar þú fyrir jólin? Já, nokkrar smákökusortir, best að borða þær
fyrir jól, nóg annað til að borða um jólin.
Hver er uppáhaldskökusortin þín? Blúndur sem við Arna mín
bökum alltaf saman fyrir jólin.
Jólin koma...
Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir
Sauðárkróki
... þegar ég heyri jólakveðjurnar á Rás 1,
hangikjötið og laufabrauðið á aðfangadag. Og
messan á aðfangadagsnótt.
Freyja Ólafsdóttir
Bólstaðarhlíð
... þegar klukkurnar hringja inn jólin kl. 18.00
á aðfangadag og fjölskyldan sest að skrýddu
veisluborði hlöðnu kræsingum sem beðið
hefur verið með mikilli eftirvæntingu.
Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir
Sauðárkróki
... þegar klukkurnar hringja inn jólin klukkan
18:00 á aðfangadag.
Guðmundur Baldvinsson
Reykjavík
... þegar jólakveðjurnar byrja í útvarpinu,
kökuilmur í loftinu og ég finn að jólafriðurinn
nálgast. Ilmur af hangikjöti á aðfangadag,
jólaljósin. Á aðfangadag fer svo að færast
einstök ró yfir mig, það hægist á öllu. Jólin eru
endanlega komin með sínum helga frið, þegar
jólaklukkurnar hringja kl. 18.00.
Magnús Bjarni Baldursson
Blönduósi
... með ljósamergð, angan hvaðanæva, tónlist,
skilaboðum, vinum, mat og drykk í góðum
félagsskap, og án nokkurs vafa með klukkna-
hljómi klukkan átján á aðfangadegi.
b
b b