Feykir


Feykir - 29.11.2017, Page 39

Feykir - 29.11.2017, Page 39
392 01 7 Jólin mín Guðrún Jóna Valgeirsdóttir Króksari í Reykjavík Jólaljós, jólalög og jólafrí Jólin eru... yndisleg. Hvað kemur þér í jólaskap? Jólaljós, jólalög og jólafrí. Hvert er besta jólalagið? Amma gull með Borgardætrum. Hvað finnst þér ómissandi að gera yfir hátíðirnar? Slaka á í faðmi fjölskyldunnar og borða góðan mat. Hvað langar þig í jólagjöf? Kærleik og góða heilsu….æ þetta er svo klisjukennt eitthvað. Ok, ísskáp! Bakar þú fyrir jólin? Það er eitthvað lítið um það. Hver er uppáhaldskökusortin þín? Vanilluhringirnir Gunnu ömmu heitinnar og sultukökurnar hennar mömmu. Verum snjöll verZlum heima „ertu að leita að sveini?“ Hér á norðurlandi vestra er allt fullt af alls kyns sveinum – hvort heldur sem er iðnsveinum eða jólasveinum. N ÝPR EN T EH F Kveikt á jólatrénu Sunnudaginn 10. desember að lokinni aðventumessu í Blönduóskirkju, um kl. 17:00, verða ljósin á jólatrénu tendruð. Tréð verður reist við Blönduóskirkju. Sungin verða jólalög og fregnir herma að jólasveinar verði komnir á stjá. CMYK% Cyan = 100 / Magenta = 75 / Yellow = 2 / Black = 18 Cyan = 45 / Magenta = 14 / Yellow = 0 / Black = 0 GRÁSKALI Black = 40% Black = 100% PANTONE PANTONE 278 C PANTONE 287 C Logo / merki BJÖRGVIN SIGURÐSSON | GRAPHIC DESIGNER FÍT ÁSVEGI 17 | 104 REYKJAVÍK | ICELAND T: +354 588 3436 | M: +354 663 0677 | E: 2b@internet.is Bæjarskrifstofa Blönduósbæjar Hnjúkabyggð 33 540 Blönduós Sími: 455 4700 blonduos.is N ÝP RE N T EH F / M YN D : R Ó BE RT D A N ÍE L AFTERGLOW Ásgeir Trausti Ásgeir Trausti sendi frá sér sína aðra plötu snemma í vor Afrerglow, en rúm fjögur ár eru síðan hann gaf út frumraun sína Dýrð í dauðaþögn. Ásgeir hefur notið fádæma vinsælda hér á landi sem erlendis. Ellefu lög er að finna á Afterglow sem öll eru á ensku, að einu undanskyldu. Frábær skífa. Íslensk gæðatónlist Tónlistarútgáfur tengdar Norðurlandi vetra HEFNIÐ OKKAR Úlfur Úlfur Skagfirska tvíeykið, Helgi Sæ- mundur og Arnar Freyr, Úlfur Úlfur, gáfu fyrr á þessu ári út plötuna Hefnið okkar. Á plötunni er að finna 12 prýðisgóð lög enda á ferðinni ein vinsælasta hip-hop hljómsveit landsins. Úlfarnir héldu út fyrir land- steinana í sumar og túruðu um Evrópu þar sem þeir komu meðal annars fram í Finnlandi, Rússlandi, Litháen, Eistlandi, Póllandi og enduðu svo heima á Íslandi með tónleikum sem enginn varð svikinn af sem sáu. SÖNGUR VONAR Sólmundur Friðriksson Austfirðingurinn og fyrrverandi bassaleikari í Hljómsveit Geir- mundar, Sólmundur Friðriksson, stundaði nám við FNV og er mörgum Norðlendingum kunnur. Fyrir skömmu gaf hann út sinn fyrsta hljómdisk, Söngur vonar, sem inniheldur 11 lög sem eru flest samin á þessari öld, að undanskildu einu lagi sem varð til þegar hann var um 12 ára. „Textarnir eru persónulegir, fjalla um lífið og tilveruna á eins heiðarlegan og opinskáan hátt og mér hefur verið unnt. Á plötunni fæ ég til liðs við mig góða og vel valda tónlistarmenn sem flestir tengjast mér á einn eða annan hátt böndum fjölskyldu, vina eða samstarfs,“ segir Sólmundur.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.