Fréttablaðið - 25.04.2020, Síða 10
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr
Vinnustaðanámssjóði.
Sjóðurinn veitir styrki til fyrirtækja og stofnana vegna
vinnustaðanáms og starfsþjálfunar sem er skilgreindur
hluti af starfsnámi skv. aðalnámskrá framhaldsskóla.
Umsóknarfrestur er til 20. nóvember 2020, kl. 16:00.
Markmið sjóðsins er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til
þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám
sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim
kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi.
Umsóknargögn og leiðbeiningar er að finna á
www.rannis.is/sjodir/menntun/vinnustadanamssjodur/
Umsóknum skal skilað á rafrænu formi.
Nánari upplýsingar veitir
Skúli Leifsson, sími 515 5843,
skuli.leifsson@rannis.is
Vinnustaðanámssjóður
Umsóknarfrestur til 20. nóvember
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
BRETLAND Vefsíða breska ríkisins
þar sem fólk getur skráð sig í sýna
töku fyrir COVID19 var borin ofur
liði skömmu eftir að hún opnaði.
Hátt í 10 milljón manns í landinu
eiga nú rétt á því að fá sýnatöku fyr
ir COVID19. Um er að ræða starfs
menn í framlínustörfum og fjöl
skyld ur þeirra. Ríkisstjórnin stefnir
á að næsta fimmtudag verði hægt
að taka 100 þúsund sýni í land inu
á hverjum degi.
Hátt í tuttugu þúsund manns hafa
látist af völdum COVID19 í Bret
landi, þar af 684 á fimmtu dag inn.
Ríkið hefur opnað vefsíðu þar sem
fólk getur skráð sig og fengið heim
til sín sýnatökusett. „Tveimur mín
út um eftir að vefurinn var opn aður
var búið að panta fimm þús und sett.
Það er allt magnið sem var í boði í
dag,“ sagði talsmaður ríkis stjórn
ar inn ar við Telegraph í gær. Er búist
við að fimmtán þúsund sýnatökur
fari fram á degi hverjum í gegnum
bílalúgu.
Eru vonir bundnar við að um
18 þúsund sýnatökusett ætluð til
heimsendingar verði í boði á degi
hverjum í lok næstu viku. Ríkis
stjórnin er sannfærð um að almenn
ingi sé treystandi til að taka prófið
heima. „Það eru til myndbönd sem
sýna fólki nákvæmlega hvernig á að
gera þetta, svo eru leiðbeiningarnar
skýrar,“ sagði talsmaðurinn. „Við
vonum að allir geti framkvæmt
þetta.“ Sýnin eru svo send til baka og
eiga niðurstöður að liggja fyrir innan
þriggja sólarhringa. – ab
Breskur COVID-19 vefur
hrundi á skammri stund
Stækka þarf kirkjugarða
Heldur fámennt var í hópjarðarför í Nossa Senhora Aparecida-kirkjugarðinum, sem heitir á íslensku Kirkju-
garður vorrar frúar í Aparecida, í Manaus í Brasilíu í gær. Kirkjugarðurinn hefur verið stækkaður til muna
eftir að fjöldi fólks lést úr COVID-19 sjúkdóminum. Alls hafa 3.407 látist í Brasilíu í faraldrinum. MYND/EPA
Sjúkraflutningamenn í Lundúnum
að störfum. MYND/EPA
Það er alltaf stutt
í þægilega
bankaþjónustu
Þjónustuverið er opið kl. 9 –17
alla virka daga í síma 444 7000.
Ef erindið krefst afgreiðslu í útibúi þá
bókum við fund og klárum málið í útibúi.
arionbanki.is
BRETLAND Breski höfuðsmaðurinn
Tom Moore, sem brátt fagnar 100
ára afmæli sínu, bætti enn einni
rósinni í hnappagatið þegar nýtt lag
hans og söngvarans Michaels Ball
krækti í efsta sæti breska vinsælda
listans í lok vikunnar. Er Moore þar
með langelsti „tónlistarmaðurinn“
sem afrekar slíkt.
Umrætt lag er útgáfa af „You never
walk alone“, sem er stuðnings
mönnum Liverpool og fleiri knatt
spyrnuliða afar kært. Moore og
Ball nutu aðstoðar kórs heilbrigðis
starfsfólks við flutninginn. Lagið sló
í gegn og er söluhæsta lag ársins það
sem af er árinu. Moore mun halda
upp á aldarafmæli sitt þann 30. apríl
næstkomandi og nú er ljóst að hann
verður á toppi breska vinsældalist
ans þegar sá stóri áfangi næst.
Höfuðsmaðurinn var afar kátur
með áfangann í samtali við breska
dagblaðið Telegraph. „Þetta eru
yndislegar fréttir að eiga metsölu
lag. Börnin mín trúa ekki að ég sé á
toppnum.“
Óhætt er að fullyrða að Tom Moore
hafi fangað hug og hjörtu heimsins á
meðan kórónafaraldurinn geisar og
hann er orðinn þjóðhetja í heima
landi sínu. Í tilefni þess að hann
hafði lokið árangursríkri meðferð
við mjaðmarbroti og krabbameini
ákvað hann að freista þess að safna
1.000 pundum til þess að styðja við
breska heilbrigðisstarfsmenn.
Ákvað hann að gera það með því
að reyna að klára 100 hringi í garð
inum sínum fyrir aldarafmælið en
hver hringur er 25 metra langur. Um
leið og greint var frá söfnuninni á
samfélags og fjölmiðlum fór hún
á mikið f lug og um tíma hrundi
áheitasíðan sem hélt utan um verk
efnið. Þegar þessi orð eru skrifuð
hafa safnast um 29 milljónir punda
– andvirði rúmlega fimm milljarða
íslenskra króna.
Reikna má með því að ágóðinn af
hinum nýja smelli muni bæta dug
lega við þá upphæð enda mun allur
ágóði af laginu renna í söfnunina.
– bþ
Sá elsti á toppi breska vinsældalistans
Tom Moore er elsti einstaklingurinn sem nær toppi breska vinsældalistans.
2 5 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð