Fréttablaðið - 25.04.2020, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 25.04.2020, Blaðsíða 16
2 5 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT Merkileg meiðsli Steve McNally, læknir Man Utd, sagði í vikunni að það væri ekkert minna að gera hjá sér. Leikmenn liðsins væru sumir að lenda í stórfurðulegum meiðslum. Þeir eru þó ekki þeir einu sem hafa lent í furðulegum meiðslum. Fréttablaðið fór á stúfana og fann önnur góð, já, eða slæm. Andy Van Der Meyde Blóð í beinni Hollendingurinn fljúgandi var sífellt til vandræða. Sóaði öllu sínu fé í vændiskonur og eiturlyf. Hann spilaði 17 landsleiki í fótbolta og í aðdraganda eins þeirra var hann rifinn í viðtal en stóð of hratt upp svo að hann svimaði. Hrasaði á hátalara og fékk stærðar- innar skurð í kjölfarið. Emil Hallfreðsson Fagur fiskur í sjó Emil bloggaði um fyrstu árin í atvinnumennskunni á emmihall.com og sagði frá því árið 2005 þegar hann missti af varaliðsleik með Tottenham eftir að hafa skorið sig í eldhúsinu. Hann fékk sýkingu í sárið og var settur á sýklalyfjakúr í kjölfarið. Oliver Sigurjónsson Lærið að ganga Oliver gat ekki spilað gegn Fylki í fyrstu tveimur umferð- um Pepsi-deildarinnar árið 2015 eftir að hafa meiðst í læri. Í síðasta æfingaleik Blika fyrir mót gegn Grinda- vík var Oliver að labba út í bíl þegar hann fékk í lærið og meiddist. Hann sagði söguna í útvarpsþættinum fótbolta.net. Charles Barkley Betur sjá augu en auga Árið 1994 var Barkley bestur í NBA-deildinni með Phoenix Suns þótt þeir hafi ekki unnið deildina. Um sumarið skellti hann sér á tónleika með sjálfum Eric Clapton sem er svo sem alveg fínt en Barkley tók eitt- hvert krem með sér og nuddaði því í auga og missti þar með af fyrstu leikjum liðsins næsta tímabilið. Michael Jordan Sigurvindillinn Sá besti reykti vindla. Þá þarf víst að skera áður en þeirra er notið og kappinn var eitthvað utan við sig árið 1999 þegar hann skar sig illa í putt- ann. Hann þurfti að fara í aðgerð og allan pakkann. Jordan hefur sagt að þetta slys hafi enn áhrif á golfsveifluna sína. Orlando Brown Blindaðist við flagg Meiðsli eru algeng í NFL-deildinni en Brown varð fyrir einum af þeim furðulegustu. Eftir að hafa þjófstartað kastaði dómarinn flaggi sínu beint í augað á varnartröllinu. Algjört óviljaverk en Brown blindaðist við atvikið og missti af þremur árum. Hann fór í mál við NFL-deildina og fékk 25 milljónir dollara í skaðabætur. Jimmie Johnson Flaug úr golfbíl Á golfmóti sat NASCAR-kappaksturshetjan Jimmie Johnson í golfbíl með félaga sínum og var á leiðinni eftir boltanum í rólegheitum. Eitthvað fór þó úrskeiðis og keyrði bíllinn á kant sem varð til þess að kappaksturshetjan flaug út úr bílnum og handleggsbrotnaði. Sem betur fer fyrir Johnson gerðist slysið utan keppnistímabilsins. Dustin Johnson Stórhættulegur stigi Einn besti golfari heims, Dustin Johnson, þurfti að af- bóka sig á Masters-mótinu 2017 eftir að hafa runnið niður stiga heima hjá sér svo hann meiddist í baki. Johnson var þá á toppi heimslistans og var talinn lík- legur til afreka á mótinu. Sammy Sosa Sterahnerri Sosa er einn frægasti sterahaus íþróttanna. Árið 2004 missti hann af nokkrum leikjum vegna þess að hann tognaði í baki. Hans útskýring var að hann hefði hnerrað svo rosalega. Trúlega var það fyrsta vísbend- ingin um að sterarnir væru að taka líf hans yfir. benediktboas@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.