Fréttablaðið - 25.04.2020, Side 25

Fréttablaðið - 25.04.2020, Side 25
KYNNINGARBLAÐ Framhald á síðu 2 ➛ Helgin L A U G A R D A G U R 2 5. A P RÍ L 20 20 Gurrý segir að það sé hægt að fá svo ótrúlega margt út úr garðyrkju að það sé ómögulegt að telja það allt upp. Garðyrkja getur til dæmis veitt skjól, næringu, útivist, hreyfingu, útrás fyrir sköpun og afþreyingu. Þeir sem ekki kunna til verka geta fengið góð ráð og hjálp frá fagmönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTONBRINK Gefur ró í hug og hjarta Það er mikil vinna að koma sér upp fallegum garði, en þessi vinna skilar sér margfalt til baka. Fallegur garður getur verið griðastaður og veitt mikla gleði. Nú eru allir fastir heima lang­tímum saman og það stefnir í að enginn fari til útlanda í sumarfríinu sínu, þannig að þessi tími faraldurs hentar einstaklega vel til gera fínt í garðinum heima. Nú er sumarið hafið, svo það er ekki seinna vænna að fara að taka til hendinni. „Fólk getur fengið ótrúlega margt út úr því að vinna í garðin­ um, það er eiginlega of margt til að telja það allt upp,“ segir Guðríður Helga dóttir garðyrkjufræðingur, sem sumir þekkja sem Gurrý í garð inum. „Í fyrsta lagi er frábært að búa sér til sína eigin sæluveröld og umvefja sig fegurð á sama tíma og maður býr til skjól. Svo er það örugglega vísindalega sannað að ekkert grænmeti er betra en það sem maður ræktar sjálfur. Þetta býður líka upp á útiveru og það gefur manni ró í hug og hjarta að vera úti í garðinum að hlusta á fuglana og flugurnar,“ segir Gurrý. „Oft er þetta líka mikið puð, svo mað ur getur komist í gott form. En þegar maður er kominn með vel hirtan garð þá minnkar erf­ i ð ið og maður er frekar að njóta umhverfisins, sem gefur andlega og líkamlega gleði. Garðvinna býður líka upp á sköp un og það er gaman að fylgjast með gróðrinum dafna og vita að maður eigi þátt í að eitthvað svona fallegt verði til,“ segir Gurrý. „Mað­ ur elur plönturnar upp og hjálpar þeim á legg eins og börn un um sínum. Þetta getur veitt ómælda Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Fæst í apótekum, heilsubúðum og www.heilsanheim.is VERTU LAUS VIÐ VERKI BÓLGUEYÐANDI, VÖÐVASLAKANDI OG VERKJASTILLANDI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.