Fréttablaðið - 25.04.2020, Page 40
Forstjóri óskast
Fjármála- og efnahagsráðuneytið leitar að framsýnum leiðtoga með brennandi áhuga á að bæta þjónustu og
rekstur ríkisins sem forstjóri Ríkiskaupa.
Forstjórinn þarf að hafa framtíðarsýn fyrir rekstur og þjónustu ríkisins ásamt frumkvæði og metnaði til að
sýna árangur og kraft til að hrinda verkefnum í framkvæmd. Viðkomandi mun taka virkan þátt í umbreyt-
ingarferli og innleiðingu aðgerða þvert á stofnanir ríkisins ásamt því að stýra stofnuninni og bera ábyrgð á
rekstri hennar, þjónustu og árangri.
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á meistarastigi sem nýtist í starfi.
• Árangursrík reynsla af stjórnun, rekstri, stefnumótun og áætlanagerð er skilyrði.
• Færni og reynsla af umbótavinnu og breytingarstjórnun er skilyrði.
• Sannfærandi samskipthæfni ásamt leiðtogahæfileikum, getu og vilja til að hvetja aðra til árangurs.
• Reynsla af opinberri stjórnsýslu og alþjóðasamstarfi er kostur.
• Færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku er nauðsynleg.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf um hvers vegna sótt er um starfið, rökstuðningi um
færni viðkomandi til að gegna starfinu og upplýsingar um árangur sem viðkomandi hefur náð í fyrri störfum.
Nánari upplýsingar um Ríkiskaup er að finna á heimasíðu stofnunarinnar www.rikiskaup.is
Fjármála og efnahagsráðherra skipar forstjóra Ríkiskaupa til fimm ára. Starfskjör eru í samræmi við grunn-
mat starfa forstöðumanna sem er aðgengilegt á vef Stjórnarráðs Íslands ásamt stjórnendastefnu ríkisins.
Upplýsingar um embættið veitir Guðrún Ögmundsdóttir skrifstofustjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, í
síma 545 9200.
Umsóknarfrestur er til og með 11. maí nk.
Umsóknum skal skila rafrænt á vef Starfatorgs.
Vegagerðin auglýsir eftir öflugum sérfræðingi á tæknideild Vestursvæðis
með starfsstöð í Borgarnesi. Um er að ræða fullt starf.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun í byggingartæknifræði B.Sc, byggingarverk-
fræði M.Sc eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
• Reynsla af verkefnastjórnun og/eða vegagerð er æskileg.
• Skipulagshæfni, frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt.
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
• Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
• Hæfni til að fylgja málum eftir og til að finna bestu lausnir
hverju sinni.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt báðum kynjum.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 7. maí 2020. Sótt er um starfið á www.starfatorg.is
Í umsókninni komi fram persónulegar upplýsingar ásamt upplýsingum um þá menntun og
hæfni sem óskað er eftir fyrir starfið, þar með talið menntunar- og starfsferilsskrá.Tekið
skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Pálmi Þór Sævarsson svæðisstjóri Vestursvæðis,
netfang: palmi.th.saevarsson@vegagerdin.is, sími 522 1510, og Birgitta Rán Ásgeirs-
dóttir deildarstjóri tæknideildar, netfang: birgitta.r.asgeirsdottir@vegagerdin.is,
sími 522 1544.
Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Tæknideild Vestursvæðis hefur umsjón og eftirlit með
nýframkvæmdaverkefnum, viðhaldi á slitlög um, efnis-
vinnslu, styrkingum og endurbótum á vegamann virkjum.
Umdæmi deildarinnar eru Vesturland og Vestfirðir.
Starfssvið
Vinna við verkefnastjórnun í framkvæmdum, umsjón
og eftirlit með verkum, verkefni tengd nýframkvæmdum
og viðhaldi vega, undirbúningur og áætlanagerð ásamt
öðrum tilfallandi verkefnum innan deildarinnar.
Sérfræðingur á tæknideild
Vestursvæðis í Borgarnesi
Ánægðir viðskiptavinir
eru okkar besta auglýsing
Sérfræðingar í
ráðningum
lind@fastradningar.is
mjoll@fastradningar.is
FAST
Ráðningar
www.fastradningar.is
12 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 5 . A P R Í L 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R