Fréttablaðið - 25.04.2020, Page 62
VIÐ FINNUM AÐ FÓLK
KANN AÐ META ÞAÐ
FRAMTAK OG ER ÞAKKLÁTT
FYRIR AÐ FÁ FALLEGAR BARNA-
BÆKUR Á ÍSLENSKU.
Sverrir Norland og Cerise Fontaine stofnuðu árið 2018 AM forlag. Forlagið hefur gefið út tvö svoköll-uð bókaknippi, eitt með þremur barnabókum eftir
Tomi Ungerer og annað með fimm
litlum bókum Sverris. Nú bætast
tvær barnabækur við, Þar sem
óhemjurnar eru eftir Maurice Sen-
dak og Í morgunsárið eftir Junko
Nakamura.
Þau segja hvatann að því að þau
stofnuðu bókaforlag hafa verið
löngun til að gefa út fallegar barna-
bækur. Cerise er frá París og hefur
starfað fyrir Gallimard-útgáfuna
þar í borg og vann um árabil í bóka-
útgáfudeild MoMA í New York. Hún
hannar og setur upp bækurnar sem
AM forlag gefur út og er í samskipt-
um við rétthafa og Sverrir þýðir
yfir á íslensku. Þau selja bækurnar
jafnt í bókabúðum landsins sem og
á heimasíðu sinni, amforlag.com, og
senda þær heim til fólks sem pantar
þær á netinu. „Vinir og vandamenn
aðstoða okkur og þetta er því í senn
mjög heimagert og fagmannlegt
því við höfum unnið með fremstu
bókagerðarmönnum í Evrópu við
prentun bókanna,“ segir Cerise og
brosir.
Klassískt meistaraverk
Þar sem óhemjurnar eru er heims-
fræg barnabók. „Hún er klassískt
meistaraverk sem við höldum bæði
mikið upp á, kom út árið 1963 og
hefur selst á heimsvísu í um 20
milljónum eintaka,“ segir Sverrir.
„Þetta er bók sem höfðar til fólks á
svipaðan hátt og Litli prinsinn, er
fyrir alla aldurshópa og fólk kaupir
hana á ýmsum tungumálum og
safnar henni. Það er gaman að
finna fyrir eftirvæntingunni sem
byggst hefur upp í kringum hana
hér heima.
Þetta er falleg táknsaga um
ímyndunaraflið. Í byrjun skammar
mamma ungan son sinn og sendir
hann inn í herbergi án kvöldmatar.
Hann er fullur af reiði. Skógur vex
upp í herberginu og hann siglir á bát
á fjarlæga eyju þar sem óhemjurnar
eru og verður konungur þeirra.
Hann fer að sakna foreldra sinna
og siglir til baka inn í herbergið sitt
þar sem heitur matur bíður hans á
borði.“
Í morgunsárið er eftir japönsku
listakonuna Junko Nakamura.
„Hún skrifar á frönsku og býr í
París. Þetta er bók sem við heilluð-
umst af og er fyrir yngstu börnin,“
segir Cerise. „Litirnir eru svo
bjartir og hressandi. Í morgunsárið
minnir okkur á að hver nýr dagur
er undur og sýnir börnum hversu
ljúft það er að eiga sér skemmtilega
morgunrútínu.
Ef við hefjum daginn ánægð og
brosmild aukast líkurnar á því að
framhaldið verði gott. Bókin brýnir
líka fyrir okkur að sýna hvert öðru
áhuga og virðingu og halda að lok-
inni góðri morgunstund út í heim-
inn með opin móttökuskilyrði fyrir
öllu því sem veröldin hefur upp á að
bjóða.“
Ástríða fyrir bókum
Þau segjast vera í bókaútgáfu af
ástríðu fremur en af gróðavon. „Við
bjuggum um tíma í París og þar er
mikið af fallega myndskreyttum
bókum þar sem myndirnar eru
jafn mikilvægar og textinn. Slíkar
bækur eru listaverk, eins og þessar
tvær. Okkur langaði til að auka vægi
slíkra bóka hér á landi. Við finnum
að fólk kann að meta það framtak
og er þakklátt fyrir að fá fallegar
barnabækur á íslensku, sem gleður
okkur og styrkir til áframhaldandi
verka,“ segir Sverrir og bætir við:
„Það þarf að gera barnabókum
hærra undir höfði. Það ætti að vera
til bókabúð sem sérhæfir sig í sölu á
þeim og það ætti að vera áberandi
barnabókadeild í hverri bókabúð.
Börn eru lesendur og hugsuðir fram-
tíðarinnar. Og svo hafa fullorðnir
auðvitað gaman af því að lesa vand-
aðar bækur með börnunum.“
Heimagert og
fagmannlegt
Sverrir Norland og Cerise Fontaine reka
AM forlag. Tvær barnabækur eru ný-
komnar út, önnur þeirra er klassísk.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Cerise og Sverrir vilja leggja sitt af mörkum til að auka vægi fallegra barnabóka hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
AÐALFUNDIR 2020 OG SAMEINING FÉLAGANNA
Félag tæknifólks í rafiðnaði, Félag sýningarstjóra við kvikmyndahús og kjaradeild Félags kvikmyndagerðarmanna hafa samþykkt sameiningu.
Haldinn verður stofnfundur nýs sameinaðs stéttarfélags síðar á árinu. Í ljósi þeirra aðstæðna sem uppi eru í þjóðfélaginu og með tilliti til
væntanlegrar sameiningar er ljóst að fresta verður venjubundnum aðalfundastörfum félaganna.
Engu að síður boðar Félag tæknifólks í rafiðnaði hér með til aðalfundar sem fram fer kl. 17, 29. apríl 2020. Kynning verður á undirbúningi
sameiningar og lykiltölum úr reikningum og að því loknu verður fundi frestað til hausts. Fundað verður í fjarfundi.
Félagar í FK og FSK eru velkomnir á fundinn sem áheyrnarfulltrúar.
Skráning er nauðsynleg, áhugasamir sendi tölvupóst á ftr@ftr.is þar sem fram kemur fullt nafn, netfang og kennitala.
1. Skýrsla stjórnar um stöðu sameiningar og starf félaganna í ljósi heimsfaraldurs
2. Kynning á fyrirliggjandi tölum úr ársreikningum
3. Fundum frestað
DAGSKRÁ:
Reykjavík 21. apríl 2020
Sýnum samstöðu á erfiðum tímum!
Kveðja stjórnir FK, FSK og FTR
FK
Félag kvikmyndagerðarmanna
The Icelandic Filmmakers Association
STOFNAÐ 1945
2 5 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R38 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð