Ljósmæðrablaðið - Aug 2019, Page 28
28 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - ÁGÚST 2019
Miðvikudaginn 30. janúar fór fram ánægjulegur atburður þegar
Emma Marie Swift varði doktorsritgerð sína í ljósmóðurfræði sem
á íslensku nefnist: Efling eðlilegra fæðinga á tímum tæknivæð-
ingar. Tækifæri og áskoranir á Íslandi.
Vörnin fór fram í Hátíðasalnum og andmælendur voru dr.
Ellen Blix prófessor við Osló Metropólitan Háskólann í Noregi
og Alexander K. Smárason prófessor við Heilbrigðisvísindadeild
Háskólans á Akureyri.
Leiðbeinendur Emmu voru Helga Gottfreðsdóttir prófessor
í ljósmóðurfræði við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og
Helga Zoega prófessor í lýðheilsuvísindum við Læknadeild
Háskóla Íslands.
Markmið doktorsritgerðarinnar var að auka þekkingu á því
hvernig megi stuðla að jákvæðu hugarfari til eðlilegra fæðinga á
tímum mikillar notkunnar tækni og inngripa í fæðingar.
Ritgerðin samanstendur af fjórum rannsóknum. Sú fyrsta byggir
á gögnum úr Fæðingarskrá Íslands frá 1995-2014 sem sýndu að
mikil aukning var á framköllun fæðinga og utanbastdeyfingum á
rannsóknartímabilinu, en tíðni keisaraskurða og áhaldafæðinga
stóð í stað. Í næstu rannsókn var alþjóðlegur spurningalisti notaður
til að skoða samband milli fæðingarótta og viðhorfa til notkunar á
inngripum í fæðingu, en lítill fæðingarótti og mikið öryggi varð-
andi eigin fæðingarþekkingu jók líkur á að vilja náttúrulega eða
eðlilega fæðingu. Í þriðju rannsókninni var gerð kerfisbundin
samantekt á íhlutandi rannsóknum um fæðingarótta og að lokum
var íhlutun þróuð með foreldrahópum í meðgönguvernd til að
styrkja jákvætt viðhorf til eðlilegra fæðinga. Við samanburð kom
í ljós að fæðingarótti foreldrahópanna sem tóku þátt rannsókninni
minnkaði ekki ef miðað var við hefðbundna meðgönguvernd, en
hann lækkaði meðal þeirra kvenna sem ekki sóttu önnur námskeið
til hliðar við meðgönguverndina.
Almennt kom fram í ályktunum að rannsóknirnar sýndu að
þekking kvenna á fæðingum og fæðingarótti hefði mikil áhrif
á viðhorf kvenna til inngripa í fæðingum. Enn fremur, til að
fækka inngripum í barneignarferlinu, þurfi að styrkja þá þætti í
meðgönguvernd sem takast á við fæðingarótta, auki öryggi og
eigin þekkingu kvenna eða foreldra á eðlilegum fæðingum.
DOKTORSVÖRN
EMMU MARIE SWIFT
F R É T T I R
Rúnar Vilhjálmsson, Helga Zoega, Alexander K. Smárason, Emma, Ellen Blix, Herdís Sveinsdóttir og Helga Gottfreðsdóttir.