Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - ágú. 2019, Blaðsíða 33

Ljósmæðrablaðið - ágú. 2019, Blaðsíða 33
33LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - ÁGÚST 2019 Mjólkursamsalan sendir ljósmæðrum innilegar hamingjuóskir með 100 ára afmæli Ljósmæðrafélags Íslands brjóstagjöf gangi ekki alltaf upp. Kristín ræddi í þessu samhengi um jákvæða reynslu sína af hjúkrunarfræðingi í heimavitjun sem eyddi tíma í að ræða brjóstagjöfina við hana og „hennar viðhorf var að það sem skipti mestu máli væri að barnið fengi að borða, sama hvort það væri brjóstamjólk eða þurrmjólk, og að mömmunni liði vel“. Brjóstagjöf sem mælikvarði á mæður Brjóstagjöfin virðist vera mælikvarði sem sumar mæður nota til þess að meta aðrar mæður og bera sig saman við. Þær konur sem ná ekki upp brjóstagjöf eða eru með börn sín stutt á brjósti geta búist við að þurfa stöðugt að réttlæta það fyrir öðrum konum, jafnvel ókunnugum. Eins og fræðimenn hafa bent á er hinn mjólkandi líkami, líkt og þung- aði líkaminn, að mörgu leyti skilgreindur sem almenningseign og því opinn fyrir athugasemdum frá almenningi (Kukla, 2008; Locke og Horton-Salway, 2010). Spurningar um brjóstagjöfina, óumbeðin ráð og reynslusögur, augnatillit eða beinar neikvæðar athugasemdir eru meðal þeirra atriða sem konurnar urðu fyrir. Agla orðaði þessa algengu reynslu með eftirfarandi hætti: Það hvöttu mig allir til að gefa brjóst. Ég fékk að heyra ótal sögur um að þetta gæti verið erfitt fyrst en það næðu „allar“ konur að gefa brjóst. Kvenfólk í kringum mig talaði um hvað þær hefðu haft sín börn lengi á brjósti og hvað þetta væru dásamlegar stundir þegar börnin væru á brjósti. Það jók bara á vanlíðan mína. Sumar konurnar lýstu því hvernig þær fundu fyrir augngotum þegar þær tóku upp pelann, þær földu sig inni í herbergi til þess að gefa barni sínu pela, sem er í samræmi við niðurstöður rannsóknar frá Bretlandi á mæðrum sem gefa börnum sínum þurrmjólk (Lee og Furedi, 2005). Svo virðist sem að innan fjölskyldunnar upplifi konurnar oftast neikvæð viðbrögð frá tengdamæðrum sínum. Hanna sagðist hafa fengið eftirfarandi viðbrögð frá tengdamóður sinni: „Hún gerði mér þarna lífið leitt. Hún benti mér á að börn yrðu fallegri og gáfaðari af að fá brjóstamjólk og ráðlagði mér að hætta í skóla svo ég gæti verið í mjólkurvélinni í allavega hálft ár.“ Vinkvenna- og mömmuhópar reyndust einnig oft erfiðir fyrir konurnar og minntist Guðbjört í því samhengi á „vandræðalegu þögnina sem fylgdi oft þegar ég sagði að hún væri ekki á brjósti“. Erla var í mömmuhóp þar sem allar hinar mömmurnar gáfu brjóst og hennar upplifun var að hún væri dæmd fyrir að nota þurrmjólk: „Augnaráðin sem ég fékk þegar ég tók fram pelann, vá, þau gátu drepið mann en ég lét mig hafa það“. Þó að sumar konur hafi aldrei fengið neikvæðar athugasemdir eða annað af því tagi þá er eins og að þær séu samt ávallt viðbúnar því að fá slíka neikvæða athygli og búist jafnvel við henni. Hin neikvæða afstaða sem þær skynja frá umhverfi sínu hefur þannig verið innbyggð. Það er áhuga- vert að minnast á að það reynist konunum oft erfitt að brúa bilið á milli eigin reynslu af því að hafa hætt brjóstagjöfinni, sem getur oft verið mjög jákvæð og einkennist oft af miklum og djúpstæðum létti, og svo þeirra tilfinninga sem samfélagið ætlast til þess að þær sýni. Erla útskýrir þessa togstreitu mjög vel í eftirfarandi tilvitnun: Ég upplifði þvílíka frelsistilfinningu þegar ég tók þá ákvörðun að gjörsamlega hætta brjóstagjöf. Ég hætti alveg með hana á brjósti þegar hún var 8 vikna. Þegar ég segi frá því núna að kornabarnið mitt sé bara á pela er ég samt full afsökunar og rek söguna af lélegri mjólkurframleiðslu. Ég er sátt við ákvörðunina um að hætta að reyna en skammast mín samt. Vildi að ég gæti bara sagt að barnið mitt væri á pela án þess að “selja” ástæðurnar og afsakanirnar með í hvert sinn. Ég hef ekki fengið ljótt augnaráð eða einhver sagt við mig að þetta sé ekki gott fyrir börnin mín en samt er ég alltaf að afsaka mig. UMRÆÐA Í þessari grein höfum við kynnt niðurstöður úr rannsókn þar sem til grundvallar voru 77 frásagnir íslenskra kvenna sem upplifðu mikla erfiðleika við brjóstagjöf. Við höfum sýnt fram á hvers eðlis vandinn

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.