Fréttablaðið - 01.05.2020, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 01.05.2020, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@ frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is NÚ VERÐUM VIÐ AÐ LEGGJA ÁHERSLU Á AÐ HLÚA AÐ TILFINNINGUM ÞEIRRA OG ÖRYGGISKENND. Við höfum skemmt okkur í samkomu­ba n n i nu v ið að búa til þætti með s a mver u st u ndu m f y r i r l e i k s k ó l a ­ börn undir nafninu Birte­ og Immu stund,“ segir Birte Harksen um YouTube­þætti hennar og Ingibjargar Ásdísar Sveinsdóttur. Þær segja sögulestur og söng vita­ skuld hafa verið fasta liði í samveru­ stundunum en þær stöllur vinna saman á Heilsuleikskólanum Urð­ arhóli í Kópavogi þar sem Birte er fagstjóri í tónlist en Imma er sagna­ þulur og stundar meistaranám í list­ kennslu. Þá hefur ekki skort á fjölbreytn­ ina þar sem stundirnar hafa meðal annars f jallað um drauma, til­ finningar, sjóræningja, krókódíla, mæríuhænur, galdra, ruggutennur, skrýtna tíma og okkur og heiminn. Neisti í tómarúmi Hlutirnir gerðust hratt þegar leik­ skólarnir þurftu að bregðast við breyttum aðstæðum í samfélaginu og þær stöllur urðu skyndilega að leika af fingrum fram með framandi skipulag. „Við mættum annan hvern dag og upplifðum visst tómarúm,“ segja þær og bæta við að þær hafi þarna fundið leið til þess að við­ halda neistanum. „Við nýttum svo undirbúningstíma okkar þá daga sem við vorum ekki í leikskólanum til að búa til þetta efni.“ Imma segir þær líka hafa þurft að viðhalda tengslunum við börnin sem með samkomu banninu hurfu úr þeirra umsjón vikum saman. Stoltar af útkomunni Aðspurðar segja Imma og Birte viðtökurnar hafa verið framar öllum vonum og það hafi yljað þeim um hjartarætur að heyra af börnum sem hafa glöð notið stundanna þeirra á vefnum. „Það kom okkur líka skemmti­ lega á óvart að heyra frá foreldrum fyrrverandi nema sem hafa glaðst yfir að sjá okkur aftur,“ segir Imma og bætir við að þeim hafi víða verið þakkað, á förnum vegi og netinu, fyrir „framlag okkar á þessum skrýtnu tímum“. Þá skyggir síður en svo á gleðina að þær hafa fundið stuðning og ánægju frá fagfólki innan stéttar sinnar. „Það fyllir okkur faglegu stolti og við höfum ekki orðið varar við mikla gagnrýni,“ segir Birte en bendir á að „við höfum samt þurft að fóta okkur áfram og aðlaga stundirnar að einhverju leyti nýjum viðmiðum vegna veirunnar.“ Birte og Imma bæta því við að fyrir þeim hafi verið mikilvægara að miðla gleði og leik til barnanna fremur en varnaðarorðum. „Við erum mjög stoltar af útkomunni enda höfum við lagt margar klukkustundir í að vinna hvern einasta þátt.“ Lærdómsríkur tími Imma og Birte gerðu tíu þætti í samkomubanninu og sá síðasti er þegar kominn á YouTube. „Í síðasta þættinum fórum við út í garð í góða veðrinu og tókum upp sumarþátt um fiskveiðar.“ Þær segjast hafa deilt þáttunum með foreldrum Urðarhólsbarna og nánasta umhverfi á Kársnesi í gegnum Facebook­hóp. „Og svo auðvitað meðal leikskólafagfólks. Þættirnir hafa þó farið víðar, allt frá Egilsstöðum til Patreksfjarðar, og meira að segja líka til Íslendinga erlendis.“ Frá og með mánudeginum færist leikskólastarf að miklu leyti í hefð­ bundnar skorður og vinkonurnar hlakka mikið til að fá að vera aftur með öllum börnunum og starfs­ systkinum. „Þett a tímabil hef ur ver ið lærdómsríkt og opnað nýjar leiðir en við teljum að þetta hafi einnig verið slítandi. Starfið hefur verið sundurslitið, samvinna lítil,“ segja þær og minna á að ástandið hefur haft mest áhrif á börnin. „Jafnvel varanleg og nú verðum við að leggja áherslu á að hlúa að tilfinningum þeirra og öryggiskennd.“ toti@frettabladid.is Hress krókódílasöngur í samkomubanni barna Birte Harksen og Ingibjörg Ásdís hafa skemmt leikskólabörnum með samverustundum á YouTube en mæta nú spenntar til leiks á mánudaginn þegar leikskólastarf kemst í fastari skorður. Imma og Birte segja YouTube-þættina vera rökrétt framhald af því sem þær hafa verið að gera í barnastarfi sínu á vefsíðunum Leikur að bókum (leikuradbokum.net) og Börn og tónlist (bornogtonlist.net). MYNDIR/SKJÁSKOT Skapandi starf með tónlist og sögum brennur á Immu og Birte, sem fundu því margfaldan tilgang með þáttagerðinni í samkomubanninu. EKKI MISSA AF NÝJASTA DV Það má gera grín að öllu 1. maí 2020 | 17. tbl. | 111. árg | Verð 995 kr. MYND/AÐSEND 6 Viðskiptaævintýri Ásdísar 34 Leikkonan Dóra Jóhan nsdóttir um meðferðina í Svíþjóð, söknuðinn eftir syninum og húmo rinn. – sjá síðu 12 18 Fimm milljarðar til flokkan na Ríkisstyrktar uppsagnir Tryggðu þér áskrift á dv.is Nældu þér í eintak í næstu verslun EÐA 1 . M A Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R38 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.