Fréttablaðið - 01.05.2020, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 01.05.2020, Blaðsíða 30
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Margrét Sigurrós Ingvadóttir lést á heimili sínu laugardaginn 18. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey vegna aðstæðna í þjóðfélaginu. Aðstandendur þakka auðsýndan hlýhug og samúð. Bára Mjöll Ágústsdóttir Helgi Magnús Baldvinsson Ómar Þór Ágústsson Margrét Rósa Sigurðardóttir Jóna Vigdís Kristinsdóttir Stefán Þorvaldsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Elís Gíslason skipstjóri, Grundarfirði, lést sunnudaginn 26. apríl. Útförin fer fram frá Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 9. maí með fjölskyldu og nánustu ættingjum. Við þökkum starfsfólki á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Fellaskjóli og starfsfólki heimahjúkrunar Heilsugæslunnar í Grundarfirði fyrir kærleiksríka umönnun. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð dvalarheimilisins Fellaskjóls. Hulda Valdimarsdóttir Valdimar Elísson Guðlaug Sturlaugsdóttir Jóhanna Elísdóttir Gísli Bachmann Ragnheiður Elísdóttir Haukur Tómasson Hugrún Elísdóttir Katrín Elísdóttir Gísli Karel Elísson Vala Ólöf Jónasdóttir barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær bróðir okkar, afi, langafi og langalangafi, Þorsteinn Jónatansson verkalýðs- og stjórnarmaður Einingar – Iðju og KEA, til heimilis að Grundargerði 3a, Akureyri, lést í faðmi fjölskyldunnar á dvalarheimilinu Furuhlíð þann 19.04.2020. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Viljum við senda starfsfólki Furuhlíðar hjartans þakkir fyrir góða umönnun og hlýju. Einnig viljum við þakka ættingjum og vinum fyrir ómetanlegan stuðning undanfarin ár. Fyrir hönd aðstandenda, Ragnar Jónatansson Gróa Jónatansdóttir Heiðdís Steinsdóttir Almar Eiríksson Fanndís Steinsdóttir Þórdís Steinsdóttir barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Hjartans þakkir fyrir alla samúð og hlýjar kveðjur vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, Grétars Þórs Sigurðssonar Austurgötu 11, Keflavík. Sérstakar þakkir fær starfsfólk gjörgæsludeildar og á deild 12E á Landspítalanum v/Hringbraut. Signý Hrönn Sigurhansdóttir Gunnar Þór Grétarsson Sólveig Gísladóttir Signý Jóna, Helena Rós, Daníel, Bryndís Grétarsdóttir Hafsteinn Guðmundsson Hanna Guðný, Hafdís, Magnea Grétarsdóttir Sigurður R. Magnússon Grétar Þór, Svava Rún, Sigurpáll Magni. Það var árið 1970 sem rauð-sokkur gerðu sig gildandi fyrst með því að mæta í kröfugöngu verkalýðsins 1. maí til að vekja athygli á misrétti kynjanna. Þær báru styttu af konu með borða sem á stóð Manneskja – ekki markaðsvara. Síðan er liðin hálf öld. „Þessi ganga markaði tímamót og samtakamáttur kvenna það vor varð upphaf að miklum breytingum,“ segir Auður Hildur Hákonardóttir, vefari og baráttukona fyrir bættum heimi. „Við ætluðum að endurtaka leikinn núna og raða okkur aftast í hina hefðbundnu 1. maí-göngu verkalýðsfélaganna en ekk- ert verður af henni og þá ekki okkar göngu heldur,“ segir hún. Síðan hverfur hún í huganum fimmtíu ár aftur í tím- ann og rifjar upp viðbrögðin á Hlemmi þegar konurnar mættu. „Okkur var ekki vel tekið. Verkalýðshreyfingin sagði í raun og veru nei við þátttöku okkar, en auðvitað var ekki hægt að banna okkur að ganga niður Laugaveginn á eftir hinum. Lögreglan komst í málið en var róleg og fannst víst ekki líklegt að átök brytust út. Það var líka fullkomlega eðlilegt fyrir okkur að fara í verkalýðs- gönguna því eitt af því fyrsta sem við rákum okkur á þegar við fórum að rýna í aðstæður kvenna var hið hróplega mis- ræmi í launum kynjanna. Konur höfðu verið settar í sérstakt verkalýðsfélag og þannig var miklu hægara að halda þeim niðri.“ Sóttu fyrirmynd til Dana Hildur telur hugmyndina að íslensku rauðsokkahreyfingunni hafa komið frá Danmörku, þar voru rødstrømp- ene. „Áður en við fórum í gönguna var haldinn kvennafundur í Norræna húsinu. Vilborg Dagbjartsdóttir skáld boðaði til fundarins símleiðis, enda ekki fésbók eða SMS þá. Hún hringdi að minnsta kosti í mig, var strax framar- lega í kvennabaráttunni og lengi síðan. Mæting á fundinn var svo góð að við sprengdum fundarherbergið á efri hæð Norræna hússins og þurftum að færa okkur niður í kjallara. Vilborg segir að ég hafi sprangað þar um í rauðum sokkum. Ég man það ekki en þori ekkert að mótmæla því. Þarna varð vitundar- vakning því samfélagið var komið að einhverjum þolmörkum, eins og þegar stíf la brestur og vatn finnur sér nýjan farveg. Það er kallað núna „að vera í f læði“ ef fólk hittir á rétta orku svo úr verður sameinað af l, það gerðum við sannarlega. Þjóðfélagið þurfti á þessu að halda svo það gæti þróast áfram og sveigt sig að mýkri gildum en höfðu verið við lýði.“ Þetta var skæruliðahreyfing Til að byrja með segir Hildur engar harðar kröfur hafa verið uppi meðal kvennanna, heldur hafi gangan 1970 verið leið til að feta sig áfram. „Í fram- haldinu fór af stað mikil rannsóknar- vinna  á því hvar vandinn lægi og hvernig væri hægt að ráða bót á honum. Við unnum í hópum og um haustið var komið  vinnuplagg,“ rif jar hún upp. „Við vildum brjóta upp það hefð- bundna kerfi sem var búið að festa í sessi, þannig að pláss yrði fyrir okkur. Við þurftum að beita sterkum rökum alla daga og hafa hugrekki til að vinna í frjálsu formi. Vorum ekki með leiðtoga sem lagði línuna og stjórnaði en náðum ótrúlegum árangri á jafningjagrunni. Þá vissi heldur enginn hvernig átti að taka á okkur. Það var engin félagaskrá enginn formaður, engin aðildargjöld. Þetta var skæruliðahreyfing.“ Alls staðar voru veggir og þá þurfti að leysa upp á mörgum sviðum, með aðgerðum, mjúkum eða hörðum, að sögn Hildar. „Við vildum ekki láta stimpla okkur pólitískt. Þó þetta væri á vissan hátt bylting vil ég meina að við höfum siglt ótrúlega vel milli skerja. Reyndum að breyta vitund þjóðarinnar í þeirri trú að ef okkur tækist það mundi annað fylgja. Ég held það hafi heppnast.“ Spurð hvort hún hafi verið gift kona á þessum tíma svarar Hildur. „Ég var að sigla inn í seinna hjónabandið. Hann Þór Vigfússon tók þessari jafnréttishugsjón minni vel, það var ekki vandamál. Ég þurfti ekki að slást við hann. Það var frekar að hann væri að slást fyrir mig!“ gun@frettabladid.is Rauðsokkur fram á völlinn Konur með áhuga á kynjajafnrétti settu svip á 1. maí gönguna fyrir fimmtíu árum. Þær voru í rauðum sokkum. Ein þeirra var Auður Hildur Hákonardóttir veflistakona. „Við vildum brjóta upp það hefðbundna kerfi sem var búið að festa í sessi, þannig að pláss yrði fyrir okkur.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Þó þetta væri á vissan hátt bylting vil ég meina að við höfum siglt ótrúlega vel milli skerja. Reyndum að breyta vitund þjóðarinnar í þeirri trú að ef okkur tækist það mundi annað fylgja. Ég held það hafi heppnast. Manneskja - ekki markaðsvara var letrað á borða styttunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 1 . M A Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R22 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.