Fréttablaðið - 01.05.2020, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 01.05.2020, Blaðsíða 42
Bandaríska leikkonan Kate Hudson er dóttir lei k a r a n na G old ie Hawn og Bills Hudson. Síðar átti Goldie eftir að giftast leikaranum Kurt Russell, en hann gekk Kate í föðurstað. Kate vakti fyrst athygli fyrir alvöru fyrir leik sinn í kvik- myndinni Almost Famous, en fyrir hlutverk sitt sem grúppían Penny Lane hlaut hún Golden Globe-verð- launin. Þremur árum síðar kom út myndin How to Lose a Guy in Ten Days, þar sem hún lék á móti hjarta- knúsaranum Matthew McConaug- hey, en í myndinni sýndi Kate að hún er ekki síðri sem gamanleik- kona, líkt og móðir hennar. Kate klæðist helst glaðlegum og litríkum fötum í örlitlum hippastíl. Inn á milli velur hún hefðbundnari snið og stíl. steingerdur@frettabladid.is Litrík leikkona Leikkonan Kate Hudson ætti að vera flest- um kunn, en hún er þekkt fyrir litríkan og skemmtilegan fatastíl. Hún hikar ekki við að prófa sig áfram með liti og öðruvísi snið. Leikkonan rakaði af sér hárið fyrir hlutverk í kvikmyndinni Sister. Ljósu lokkarnir hafa þó snúið aftur, en það er greinilegt að leikkonan heldur mikið upp á græna litinn. Ólétt að sínu þriðja barni í flottum munstruðum kjól. Kate klæðist oft fatnaði sem sýnir magann, enda er hún með nokkuð flotta magavöðva. Með móður sinni, Goldie Hawn, á Screen Actors Guild verðlaunun- unum. Kate í Vanity Fair partíinu eftir Óskarsverðlaunin núna í febrúar. MYNDIR/GETTY Leikkonan klædd í ein- staklega flottan og litríkan sam- festing. Smart í eiturgrænu á tískusýningu Tom Ford í Los Angeles. 1 . M A Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R34 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.