Fréttablaðið - 01.05.2020, Blaðsíða 48
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Árna
Helgasonar
BAKÞANKAR
buzzador®
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
Lager
Korputorgi
OPIÐ Í DAG 1. MAÍ kl. 12 – 18 | Sími: 558 1100
TAX
FREE
Allar vörur á taxfree tilboði í dag*
Verslanir í Reykjavik og á Akureyri eru opnar 12–18
Opið í allan dag á husgagnahollin.is – SENDUM FRÍTT –
– VIÐ VIRÐUM FJÖLDATAKMARKANIR –
www.husgagnahollin.is F
R
Í HEIMSEND
IN
G
V
E F
V E R S L U N
* Taxfree tilboðið gildir af öllum vörum nema
sérpöntunum jafngildir 19,35% afslætti.
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt af sölu
verði. Afslátturinn er á kostnað Húsgagnahallarinnar.
1. maí
COLLAB
ÁSTARALDIN &
LÍMÓNU 330 ML
249
KR/STK
756 KR/L
Algórythminn veit upp á hár hvaða auglýsingum er rétt að ýta að mér. Sem
skrifstofumaður að slaga í fertugt
er ég gífurlega útsettur fyrir skila
boðum frá þessum vöðvastæltu
mönnum Internetsins. Þið vitið,
svona týpunni sem er krónískt ber
að ofan með skjannahvítar tennur
og endalaust af skyndilausnum
fyrir menn eins og mig.
Netmaðurinn er agressívur.
Fylgir manni hvert fótmál og um
leið og hann birtist á skjánum
byrjar hann að tala. Spyr hvort
ég sé ekki orðinn þreyttur á að
telja ofan í mig kaloríurnar. Hvort
mér finnist ekki leiðinlegt að vera
alltaf með samviskubit. Hann er
sko með svarið fyrir mig.
Í grunninn er hann samt bara að
segja – væri ekki gaman að líta út
eins og ég? Ekki bara að vera með
þessa geggjuðu kjálkalínu, tónaða
magavöðva og skálögðu vöðva
línurnar neðst á kviðnum sem
venjulegir menn fá aldrei, heldur
að geta verið svona frjáls, dólað
sér bara allan daginn heima við
eða kannski á ströndinni, hnyklað
vöðvana af og til á milli þess sem
íslenskum skrifstofukanilsnúðum
eru gefin ráð um megrun og ofur
fæðu?
Mig langar að þróa filter sem
væri hægt að nota á Netmanninn.
Filter sem myndi kallast „álag í líf
inu“ filterinn. Um leið og filterinn
yrði settur upp sæi maður hvernig
Netmaðurinn myndi líta út ef
hann ætti þrjú börn, fengi of lítinn
svefn, glímdi við stöðugt álag í
vinnu og todolista upp á margar
blaðsíður heima fyrir, hefði
íþróttafélag hverfisins á herð
unum og magasár út af húsfélaginu
því gamli maðurinn á miðhæðinni
neitar að samþykkja viðgerðina á
þakinu. Sem er byrjað að leka.
Ég kvíði engu í þeim saman
burði.
Netmennirnir