Gríma - 15.09.1931, Page 37

Gríma - 15.09.1931, Page 37
SAGAN AF SVANLAUGU OG HALLÞÓRI 35 skildust svo sviplega á grasafjallinu um vorið. Svan- laug segir honum, að hún sé hjá útilegumönnum, sem engum byggðarmanni gefi grið; en hún segist halda lífi fyrir þá sök, að úlfur, útilegumaður sá, sem hafi numið sig burt af grasafjallinu um vorið, ætli að taka sig sér fyrir konu; hafi hún tekið þann kost að þrjóskast eigi lengi, því að þá hefði sér ver- ið dauðinn vís. »Hef eg«, segir hún, »fengið frest til næstu sumarmála til umhugsunar, hvort eg kysi líf- lát eða að ganga með honum; en eg hef gert það í þeirri von, að mér kynni að verða undankomu auðið fyrir þann tíma, því að ekki get eg hugsað til þess að ganga að eiga þjóf og manndrápara, sem úlfur er, og þeir feðgar báðir. — Nú stendur svo vel á, að hvorugur þeirra er heima, og ræð eg ein húsum, því að móðir úlfs er dauð, sem hér var í vor, er eg kom til þeirra. Vil eg nú biðja þig að hlýða ráðum mínum, og mun eg leyna þér hér, því að ella drepa þeir feðgar þig, er þeir koma heim. Eru þeir á ráns- ferð að draga til vetrar, en koma heim að fám dög- um liðnum«. Hallþór kveðst vilja hlýða hennar ráðum og segir, að líf hans sé á hennar valdi. — Eftir það láta þau inn féð í helli einn við ána, en ganga síðan heim að helli útilegumannanna, og leiðir hún hann með sér inn í afhelli einn. Þar dregur hún af honum vos- klæði, og veitir honum hinn bezta beina. Sefur hann svo í rúmi hennar um nóttina, en hún þorir eigi annað en vaka yfir honum, ef ske kynni að þeir feðgar kæmu heim fyrr en von var á. — Að morgni, er hann vaknar og er hress orðinn, tjáir hún hon- um ráðagerð sína. Segist hún vilja leyna honum þar hjá sér til vors, því að þá væri meiri von, að hann 3*

x

Gríma

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.