Bændablaðið - 06.10.2016, Side 7

Bændablaðið - 06.10.2016, Side 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2016 Íslenski matarsprotinn var afhentur í fyrsta sinn á sýningunni „Matur og nýsköpun“ sem haldin var í húsnæði Sjávarklasans í Reykjavík á dögunum. Tilgangur sýningar- innar var að kynna nýsköpunarfyrirtæki og sprota sem vinna að nýsköpun og fram- þróun í matvælaframleiðslu hér á landi, allt frá hugmyndum og hönnun yfir í fullbúnar vörur. Um 30 fyrirtæki mættu og kynntu sínar vörur fyrir gestum og gangandi. Það var Sjávarklasinn sem stóð fyrir viðburðinum í samvinnu við Matvælalandið Ísland og Landbúnaðarklasann. Af úrvalinu að dæma er mikil gerjun í frumkvöðlastarfsemi tengdri matvælum um þessar mundir. Fyrirtækið Eimverk hlaut íslenska mat- arsprotann en það sérhæfir sig í framleiðslu sterkra áfengra drykkja. Eimverk er á mik- illi siglingu með þróun á íslensku viskíi en forsvarsmenn fyrirtækisins segja að um 60 tonn af íslensku byggi séu notuð í framleiðslunni. Að sögn Egils Gauta Þorkelssonar, brugg- meistara Eimverks, hentar íslenska byggið einkar vel til viskígerðar en kostirnir við það séu meðal annars að það sé bragðsterkt og vaxi hægt. Fyrirtækið er sjálft í kornrækt en kaupir líka beint frá bændum. Egill sagði í samtali við Bændablaðið að á næsta ári hygðist fyrirtækið nota yfir 100 tonn af fullþurrkuðu íslensku byggi til áfengisframleiðslunnar. /TB Stór og lítil matvælafyrirtæki í fjölbreyttri nýsköpun: Eimverk bruggar úr 60 tonnum af íslensku byggi Líf og starf MÆLT AF MUNNI FRAM Á fjörur mínar rak litla vísnakompu úr fórum Friðbjarnar Guðnasonar frá Sunnuhvoli við Grenivík. Friðbjörn, sem fæddur var 1903, fékkst talsvert við vísnagerð, en flíkaði þeim ekki frekar en svo margir aðrir. En tengdasonur Friðbjarnar, Björn Ingólfsson, fyrrverandi skólastjóri á Grenivík og hagyrðingur, hafði þá fyrirhyggju, að halda lausblöðungum og kompum Friðbjarnar ögn til haga, og frá Birni fékk ég efni eftir Friðbjörn til birtingar í þessum þætti. Eins og lesendur hafa örugglega tekið eftir, þá hafa fjöl- margar vísur Björns Ingólfssonar birst hér í þáttum þessum, og því ekki að undra að skólastjórinn sæi andleg verðmæti í efni tengdaföður síns og viljað halda því til haga. Laust trúi ég því, að vísnagerð Friðbjarnar á Sunnuhvoli hafi beint latt Björn til mægða við Sunnuhvolsheimilið, þvert á móti, og sennilega glætt enn frekar með honum þá miklu hæfileika sem hann býr yfir í dag. Friðbjörn var um langt skeið sláturhús- stjóri á Grenivík, og þegar hann hætti svo sauðfjárbúskap fyrir elli sakir, þá orti hann ám sínum þessi eftirmæli: Mér mun bregða við í vor að vafra um þöglar krærnar. Þung mér reyndust þessi spor þegar ég rak burt ærnar. Harla hressan huga ber, heim ég sný í skyndi, en ærnar mæna á eftir mér því arga mannkvikindi. Útiverkin eru smá, engin kind við stallinn. Öldnu hjúin grett og grá gjökta skökk um pallinn. Næstu tvær vísur Friðbjarnar þurfa engra skýringa með: Gellur spói, grænkar mosi, gleður hal og drótt. Það er eins og blómin brosi, bráðum er engin nótt. Þunglyndi sem þjakar mann þrýtur að flestra dómi þegar syngur sólskríkjan sínum hvella rómi. Næsta vísa er auðvitað ort einhverju áður en féð var skorið endanlega niður: Merkilegt er mannlífið, mörgu þarf að sinna. Í fjárhúsunum fæst ég við fjölgun kinda minna. Næstu tvær vísur orti Friðbjörn til heim- ilishundsins: Tignar mig hann Tryggur minn og tekur mark á gripnum, hans er ljúfur hugurinn og heimskan skín úr svipnum. Mjög er lítill maturinn, mér er það til ama. Hefi ég og hundurinn hugsað um það sama. Þessi vísa Friðbjarnar skýrir sig sjálf: Ei er blandað lævi loft og laust við norðan rosa, á mínu flakki finn ég oft fólk sem kann að brosa. Að fengnum heillaóskum orti Friðbjörn: Léttist hugur, lyftist brá lífs í stöngum hrinum þegar koma kveðjur frá kunningjum og vinum. Ekið um hlað á Stærra Árskógi: Hér er gróður nægta nógur nytjagrös í hverri laut, þó standi ei enn hinn stóri skógur staðurinn af sem nafnið hlaut. Okkar er komið ævihaust þó ekki því ég gleymi að aftur við hittumst efalaust í öðrum og betri heimi. 163 Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggð1@gmail.com Egill Gauti Þorkelsson er stoltur af framleiðsluvörum Eimverks sem m.a. notar íslenskt bygg. Flóki heitir íslenska viskíið frá Eimverki. Berglind Häsler, bóndi á Karlsstöðum, kynnti rófusnakk og Bulsur frá Havaríi. Eygló Björk Ólafsdóttir, bóndi í Vallanesi, fræddi viðstadda um vörurnar frá Móður Jörð. Wasabí-ræktun er með því frumlegra í mat- vælageiranum um þessar mundir. Myndir / TB Tinna Hrund Birgisdóttir kynnti taðreyktan lax frá Opal Seafood. Fallegar umbúðir utan um berjamysu frá Ís- landusi. Kjartan Gíslason og Hildur Halldórsdóttir gáfu gestum Omnom-súkkulaði af ýmsum gerðum. Eiður og Björn Steinar hjá Saltverki poppuðu.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.