Bændablaðið - 06.10.2016, Blaðsíða 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 20168
Strandir:
Súperman í Hvalárrétt
Ungmenni frá sjálfboðaliðasam-
tökunum SEEDS unnu fyrr í
haust við endurbætur á gönguleið
í Hallormsstaðaskógi. Þau eru frá
átta Evrópulöndum.
Þau unnu við viðgerð og
betrumbætur á 2 km gönguleið sem
liggur upp í fjallið á Hallormsstað,
ofan við hótelið í skóginum.
Gönguleiðin er mjög mikið notuð af
erlendum gestum hótelsins og öðrum
gestum skógarins. Í brattlendi verða
gönguleiðir fljótt hálar á sumum
stöðum. Var því orðið mjög brýnt
að lagfæra leiðina og auka þar með
öryggi gesta.
Þetta er annað árið sem sjálf-
boðaliðar frá SEEDS-samtökunum
koma í Hallormsstaðaskóg og lag-
færa gönguleiðir í skóginum, en
þeir njóta verkstjórnar reynslumik-
ils starfsfólks Skógræktarinnar á
Hallormsstað, að því er fram kemur
á vef Skógræktarinnar.
/MÞÞ
Sjálfboðaliðar lagfæra göngustíg
í Hallormsstaðaskógi
Íslensk hross státa af miklum fjölbreytileika í lit og skapgerð
ekki síður en íslenska kúakynið og sauðfé landsmanna. Til
að skerpa á vitund landsmanna um þessa eiginleika íslenska
hestsins vill Bændablaðið bregða á leik og hvetja hestaáhuga-
fólk til að senda blaðinu myndir af áhugaverðum folöldum
sem komu í heiminn í sumar.
Hugmyndina að þessu á Páll Imsland og snýst hún um að
blaðið birti myndir sem áhugaverðar þykja undir þemanu „Folald
sumarsins“.
Leikurinn felst í því að lesendur sendi blaðinu mynd með
upplýsingum og rökstuðningi fyrir að það eigi að útnefnast hið
eina sanna folald sumarsins.
Myndir og texta skal senda til Bændablaðsins á netfangið hk@
bondi.is eða bbl@bondi.is.
Nauðsynlegt er að saga fylgi mynd sem rökstyðji eiginleikana.
Bent skal á að góð mynd og góð saga getur haft töluverð áhrif á
úrslitin. Texti má þó helst ekki vera lengri en 500 orð.
Sagan gæti verið af óvenjulegum vitsmunum folaldsins, vin-
áttutengslum eða óvenjulegum samskiptum manna og dýra. Það
sem setur tilnefningum skorður er sem sagt harla fátt annað en
eitthvað einstakt og athyglisvert.
Í rökstuðningi þarf líka að tilgreina nafn folalds, fæðingarstað
og helst númer í WorldFeng. Einnig foreldra folaldsins og hugsan-
lega eitthvað frekar um ættarsöguna ef þörf þykir. Einnig höfund
myndar. Mikilvægt er að mynd sé í bærilegum gæðum til birtingar.
Þegar hafa nokkrar tillögur borist og stefnt er að birtingu á
aðsendum tillögum og úrslitum í næsta blaði.
Folald sumarsins 2016
Kristján Þór Júlíusson heil-
brigðisráðherra sótti ársfund
Heilbrigðisstofnunar Norðurlands
sem haldinn var í Hofi á Akureyri.
Ráðherra segir ánægjulegt að sjá
hve vel hafi tekist til með samein-
inguna að baki þessari víðfeðmu
stofnun og greinilegt að vel sé
haldið utan um reksturinn, jafnt
faglega og fjárhagslega. Þetta
kemur fram í frétt á vef velferð-
arráðuneytisins.
Ársfundurinn er haldinn í lok
fyrsta heila rekstrarárs sameinaðr-
ar stofnunar en Heilbrigðisstofnun
Norðurlands tók formlega til starfa
1. október 2014 þegar sex heilbrigð-
isstofnanir á Norðurlandi samein-
uðust.
Starfssvæði með 35 þúsund íbúa
Starfssvæðið nær allt frá Blönduósi
í vestri til Þórshafnar í austri og er
fjöldi íbúa á svæðinu rúmlega 35.000
manns. Stofnunin er dreifstýrð á
þann hátt að ekki eru eiginlegar höf-
uðstöðvar heldur hafa stjórnendur
starfsaðstöðu á þeirri starfsstöð sem
hentar og kom fram á fundinum að
upplýsingatækni sé lykillinn að því
að slíkt skipulag gangi upp.
Á fundinum kom fram að eftir
nokkuð þunga fjárhags- og rekstr-
arstöðu í upphafi, hafi staðan breyst
til hins betra og var stofnunin rekin
með lítils háttar rekstrarafgangi árið
2015, eða um 1,1 milljón króna.
Sameining nær fram
samlegðaráhrifum
Í ávarpi heilbrigðisráðherra ræddi
hann um áherslur sínar varðandi
eflingu heilbrigðisþjónustu á lands-
byggðinni. Sameiningin í eina stóra
heilbrigðisstofnun á Norðurlandi
hefði verið til þess fallin að ná
fram samlegðaráhrifum, að bæta
þjónustuframboð og jafna aðgengi
fólks á öllu starfssvæðinu að heil-
brigðisþjónustu. Ráðherra rakti m.a.
hvernig framlög hafi verið aukin til
tiltekinna verkefna í því skyni að
styrkja þjónustu stofnunarinnar,
m.a. með auknu fé fyrir námsstöður
í heilsugæsluhjúkrun og heimilis-
lækningum, framlögum til að fjölga
sérnámsstöðum í heimilislækningum
og auka framboð sálfræðiþjónustu
o.fl.
Rétt og góð ákvörðun
Ráðherra segist sannfærður um að
sameining heilbrigðisstofnananna
í eina öfluga stofnun á Norðurlandi
hafi verið rétt og góð ákvörðun:
„Góður andi á ársfundinum hér í
Hofi styrkir þá trú mína þar sem
hér kemur saman fólk af öllu starfs-
svæði stofnunarinnar. Fagleg og
fjárhagsleg stjórnun stofnunarinnar
virðist styrk og loks finnst mér til
eftirbreytni hvernig stofnunin er
dreifstýrð og án skilgreindrar höf-
uðstöðvar.“ /MÞÞ
Ársfundur Heilbrigðisstofnunar Norðurlands:
Engar höfðuðstöðvar
í dreifstýrðri stofnun
Kristján Þór Júlíusson.
Sjálboðaliðahópurinn ásamt starfsfólki Skógræktarinnar á fallegum haustdegi í Hallormsstaðaskógi.
Myndarlegar tröppur sem liggja
eftir landslaginu í skóginum.
Að sjálfsögðu er notað heimafengið timbur úr skóginum til að útbúa
Réttað var í Hvalárrétt í
Hrútafirði, Strandasýslumegin,
þann 17. sept. síðastliðinn í blíð-
skaparveðri. Var þar margt um
manninn og fé fallegt af fjalli og
með fleira móti.
Meðal annarra mætti Súperman
til að aðstoða réttarstjórann þegar
réttað var í Hvalárrétt í Hrútafirði
fyrir skömmu.
Reyndar var uppátækið partur
af steggjun vina hans vegna vænt-
anlegrar giftingar. Úr varð samt
hin ágætasta skemmtun og létt yfir
mannskapnum sem lét allt tal um
pólitík, búvörusamninga og lækk-
andi afurðaverð til bænda eiga sig
þennan dag. Þess í stað naut fólk
veðurblíðunnar og samveru hvað
við annað.
Kvenfélagið Iðunn í Bæjar-
hreppi seldi veitingar í réttarskúrn-
um sem fyrr og var sala með besta
móti.
Súperman aðstoðarréttarstjóri í Hvalarrétt. Hægra megin við hann er Ingibjörg Rósa Auðunsdóttir réttarstjóri og
Ragnar Pálmason „hliðvörður“ og bóndi á Kollsá 2. Mynd / ÓM
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Gúmmíbelti
- Fyrir smágröfur
Fréttir