Bændablaðið - 06.10.2016, Blaðsíða 11

Bændablaðið - 06.10.2016, Blaðsíða 11
11Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2016 Bæjarráð Akureyrarbæjar hefur skorað á innanríkisráðherra að hrinda í framkvæmd þeim aðgerð- um sem snúa að samgöngumálum Grímseyinga og voru samþykkt- ar af ríkisstjórninni í nóvember í fyrra. Bæjarráð fjallaði um stöðu mála í Grímsey og byggðaþróunarverk- efnið Brothættar byggðir á fundi nýverið. Fjórþætt aðgerðaráætlun Aðgerðaráætlunin sem starfshópur um vanda Grímseyjar lagði til við ríkisstjórn í nóvember í fyrra var fjórþætt. Styrkja átti stöðu útgerðar í Grímsey, bæta átti samgöngur við eyna, vinna átti hagkvæmnisathug- un á lækkun húshitunarkostnaðar og Grímsey átti að komast inn í byggðaþróunarverkefnið Brothættar byggðir. Grímsey fékk inngöngu í Brothættar byggðir á síðasta ári og þar var haldið tveggja daga íbúaþing síðastliðið vor. Unnið er að aðgerðaráætlun fyrir eyna sam- kvæmt verklýsingu verkefnisins og stefnt er að því að kynna hana fyrir íbúum nú í október. Verkefnið hlaut nafnið Glæðum Grímsey en það er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, EyÞings, Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, Akureyrarkaupstaðar og íbúanna sjálfra. 400 tonna byggðakvóti Í vor tókst samkomulag um ráðstöf- un sérstaks 400 tonna byggðakvóta til þriggja ára sem útgerðirnar fjórar í Grímsey skiptu á milli sín í sam- ræmi við fyrirliggjandi aflaheimild- ir. Útgerð í Grímsey stendur engu að síður ekki jafn sterkum fótum og áður. Bæði hafa útgerðir þurft að selja frá sér aflaheimildir vegna skulda og svo er nýliðun í greininni líka mjög erfið. Fiskveiðar og útgerð eru forsenda byggðar í Grímsey og því mikilvæg- ast að styrkja þessa þætti, ásamt öðrum þeim atvinnugreinum sem þegar eru í eynni. Þetta voru megin- skilaboð íbúaþingsins sem haldið var í byrjun maí. Nær allir fullorðnir íbúar Grímseyjar, sem voru heima þessa daga, sóttu þingið og er það metþátttaka. Þátttakendur bentu á leiðir til að styrkja sjávarútveg- inn, svo sem aukinn byggðakvóta, fullvinnslu, sérstakan byggðakvóta til byrjenda og aðstoð við fyrstu bátakaup. Húshitunarkostur íþyngjandi Verið er að vinna að hagkvæmnis- athugun á lækkun húshitunar- kostnaðar í Grímsey og von er á niðurstöðunum hvað úr hverju. Þessi athugun er líka í raun forsenda þess að hægt verði að fara í frekari athug- un á möguleikum þess að ráðast í sjálfbærari lausnir við orkuöflun og notkun í Grímsey. Grímsey er eina þéttbýlið á Íslandi sem kynt er með olíu og er kostnaðurinn við það gríðarlega íþyngjandi fyrir íbúana. Ein af þeim tillögum sem var samþykkt, var að með sér- stakri fjárveitingu yrði ferðum Grímseyjarferjunnar fjölgað og að bætt yrði við flugferðum. Einnig var lagt upp með að koma á afslætti af bæði ferju- og flugfargjöldum fyrir íbúa Grímseyjar. Enn bólar ekkert á þessum aðgerðum. Fram kemur á vefsíðu Akureyrarbæjar að sam kvæmt upp- lýsingum frá innanríkisráðuneytinu stefnir Vegagerðin að því að aug- lýsa útboð á ferjusiglingunum milli Dalvíkur og Grímseyjar á næstu vikum. Þar er lagt upp með ein- hverjar breytingar á fyrirkomulagi ferjusiglinganna en óljóst er að segja til um hverjar þær verða fyrr en að loknu útboði. /MÞÞ Bæjarráð Akureyrar skorar á innanríkisráðherra vegna Grímseyjar: Aðgerðaráætlun um samgöngumál verði hrint í framkvæmd Heimskautsbaugur. Mynd / HKr. Gríðarleg auking í umferð á Hringvegi Gríðarlega aukning varð á umferðinni í ágúst á Hring- veginum, hún jókst um 13% þegar miðað er við sama mánuð í fyrra. Frá áramótum hefur umferð um Hringveginn aukist um 12,8%. Gert er ráð fyrir að í ár aukist umferð um 11% í heildina og fari svo sem horfir verður þar um að ræða met í umferð- araukningu. Fyrra met var á milli áranna 2006 og 2007 þegar umferð jókst um tæp 7% á milli áranna. Frá þessu er greint á vef Vegagerða rinnar, en alls eru 16 lykilteljarar á vegum Vegagerðar- innar á Hringvegi og jóks umferð sem fyrr segir um 13% í ágúst miðað við ágústmánuð í fyrra. Mest aukning á Austurlandi Mest jókst umferðin um lykilteljara á Austurlandi, eða um rúmlega 25%. Þessi aukning er bæði met í bílum talið og í hlutfallslegum vexti milli ára í ágúst. 11 þúsund fleiri bílar á dag Aldrei hafa fleiri ökutæki ekið um 16 lykilteljara Vegagerðarinnar í ágústmánuði frá því að þessi sam- antekt hófst, en alls fóru rúmlega 97 þúsund ökutæki um sniðin 16 á degi hverjum í síðasta mánuði. Árið 2015 fóru 86 þúsund ökutæki um þessi sömu snið í sama mánuði. Þannig að 11 þúsund fleiri bílar fóru um Hringveginn á hverjum einasta degi í nýliðnum ágúst miðað við sama mánuð á síðasta ári. Umferðin í ágúst hefur vaxið mest frá upphafi samantektar eða að meðaltali um 3,5% á ári. Þessi aukning nú í ár er því margfalt meiri en meðalvöxtur undanfarinna ára. Búist er við að í heild aukist umferð um 11% á Hringvegi miðað við allt árið. „Enn aukast líkur á því að aukningin nú í ár slái öll fyrri met á Hringveginum,“ segir í frétt frá Vegagerðinni. /MÞÞ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.