Bændablaðið - 06.10.2016, Side 17
17Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2016
Sveitarstjórn Blönduósbæjar vill
gera gamla bæinn á Blönduósi
að verndarsvæði í byggð. Alþingi
samþykkti á liðnu ári ný lög um
heimild til að vernda byggðar-
heildir og var þannig lagður
grundvöllur að því að menningar-
sögulegt og listrænt gildi einstakra
bæjarhluta sé verndað um ókomin
ár.
Sveitarstjórn ákvað síðast-
liðið haust að sækja um styrk
til Minjastofnunar Íslands til að
undirbúa umsókn um að gamli
bærinn á Blönduósi verði verndar-
svæði í byggð en sú umsókn var
ekki afgreidd. Á fundi skipulags-,
umhverfis- og umferðarnefnd
Blönduósbæjar nýverið kynnti
skipulagsfulltrúi drög að nýrri
umsókn Blönduósbæjar til
Minjastofnunar sem hann hefur
unnið að í samstarfi við ráðgjafa.
Minjastofnun auglýsir eftir
umsóknum um styrki til sveitar-
félaga til að undirbúa tillögur að
verndarsvæði í byggð. Sveitarfélög
skulu samkvæmt 4. grein lag-
anna meta hvort innan staðmarka
sveitarfélagsins sé byggð sem hafi
slíkt gildi hvað varðar varðveislu
svipmóts og menningarsögu, ásamt
listrænu gildi, að ástæða sé til að
útbúa tillögu til ráðherra um að hún
verði gerð að verndarsvæði í byggð.
Verndarsvæði í byggð hafa mikið
aðdráttarafl
Víða í nágrannalöndum Íslands er í
borgum og bæjum að finna minja-
svæði og hverfi sem hafa stöðu sem
söguleg verndarsvæði. Tilgangur
slíkrar verndar er að leggja áherslu á
gildi menningarsögulegs umhverfis
fyrir einstaklinga og samfélög ásamt
því að tryggja að slík svæði hljóti þá
umhirðu og umhyggju sem þarf til
að gildi þeirra verði viðhaldið. Ljóst
er að slík verndarsvæði hafa víða átt
þátt í að styrkja borgir og bæi bæði
efnahagslega og félagslega.
Í nágrannalöndum Íslands sýnir
reynslan að slík verndarsvæði hafa
mikið aðdráttarafl fyrir bæði heima-
menn og gesti þeirra. Með hliðsjón
af mikilvægi stefnumörkunar á
sviði ferðaþjónustu skapast með
uppbyggingu verndarsvæða tæki-
færi til að leggja aukna áherslu á
áhugaverða áfangastaði í þéttbýli og
þar með dreifa því álagi sem aukinn
ferðamannastraumur hefur á helstu
náttúruperlur landsins. /MÞÞ
Hollensku
N bætiefnin eru
áreiðanleika og
u þér úrvalið í
okkar og hjá
endursöluaðilum.
FARM-O-SA
rómuð fyrir
gæði. Kynnt
verslunum
Calforte styrkir Calcivit - B kalk- Pro - Keto Reviva orkudrykkur
fyrir nýbærur
Rediar
skitumeðhöndlun
Sala og ráðgjöf
Sími 540 1100
www.lifland.is Reykjavík
Lyngháls
Akureyri
Óseyri
Borgarnes
Borgarbraut
Blönduós
Efstubraut
Hvolsvöllur
Stórólfsvelli
Hraustur gripur er gulls ígildi
Blönduós:
Gamli bærinn verði
verndarsvæði í byggð
Sveitarstjórn Blönduósbæjar vill gera gamla bæinn á Blönduósi að verndar-
svæði í byggð. Í nágrannalöndum Íslands sýnir reynslan að slík verndarsvæði
Mynd / MÞÞ
Hraukabæjarkot, Hörgársveit
Fasteignamiðstöðin Hlíðasmára 17 Kópa-
vogi sími 550 3000 er með til sölu lögbýlið
Hraukabæjarkot, Hörgársveit, 601 Akureyri
landnúmer 152502.
Jörðin er rétt utan við Akureyri á fallegum
stað. Reisulegt íbúðarhús sem er kjallari
hæð og ris byggt 1956. Gömul útihús sem
mætti nýta að hluta til. Umtalsverð skógrækt
og um 9 hektara tún. Heildarlandstærð um
100 hektarar. Upplagt tækifæri fyrir þá sem
hyggja á frekari skógrækt og ferðamannaþjónustu. Bærinn stendur við rætur Hlíðarfjalls tals-
vert ofan við Blómsturvallaveg, beint upp af Dvergasteini. Landið liggur frá fjallshlíðinni og
niður að landi í einkaeign rétt ofan við Norðurlandsveg og er landreign Hraukabæjarkots á milli
Syðsta-Samtúns og Dvergasteins að norðan og Hraukabæjar að sunnan. Hraukabæjarkot var
byggt sem hjáleiga úr landi Hraukabæjar á 17. öld. Áhugaverð staðsetning.
Nánari upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson, lögg. fasteignasali
magnus@fasteignamidstodin.is sími 550 3000 eða 892 6000