Bændablaðið - 06.10.2016, Síða 19
19Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2016
Framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins (European
Commission) hefur gefið það
út að aðildarþjóðum Evrópu-
sambandsins sé hverri um sig
heimilt að banna notkun á viður-
kenndum erfðabreyttum lífverum
(GMO). Því fylgdi nákvæm skil-
greining á því hvað erfðabreyttar
lífverur eru.
• Heimildin veitir þjóðum ESB
frelsi til að ákveða bann við
ræktun á erfðabreyttum lífver-
um.
• Heimild til að banna markaðs-
setningu á matvælum eða fæðu
og tengdum vörum.
• Heimild til að setja bann ef nota
á erfðabreyttar lífverur í mat-
væli eða fæðu sem ræktuð er í
ríkjum ESB.
• Fyrirtæki verða að sækja um
leyfi til ræktunar og eða fram-
leiðslu á erfðabreyttum lífver-
um innan ESB í samræmi við
reglugerð.
• Ef ekki á að nota erfðabreyttar
lífverur í matvæli eða fæðu, er
nóg að sækja um einfalda heim-
ild til ræktunar.
Vísað er til pólitískrar stefnumót-
unar Evrópuráðsins og í svokallað
„2015 Work Programme“ þar sem
ráðið skuldbatt sig til að endurskoða
lagasetningar og heimildir varðandi
erfðabreyttar lífverur (GMO). Það
var gert í framhaldi af skoðana-
könnun meðal ESB-ríkjanna þar
sem 61% þjóðanna töldu erfðabreytt-
ar lífverur ekki öruggar. Einungis
þriðjungur svarenda sögðu að erfða-
breyttar lífverur væru góðar fyrir
hagkerfið.
Hvað er erfðabreytt lífvera
Þessari ákvörðun framkvæmda-
stjórnarinnar fylgir skýring á því
hvað sé átt við með orðasambandinu
„erfðabreyttar lífverur“ eða GMO.
Skilgreiningin er svohljóðandi í
lauslegri þýðingu:
„Matvæli og fæða sem eiga upp-
runa sinn í plöntum og dýrum hafa
verið ræktuð af mönnum í mörg
þúsund ár. Með tímanum hafa þess-
ar plöntur og dýr verið valin vegna
æskilegustu eiginleika sinna til að
nýta til ræktunar næstu kynslóða
matar og fæðu. Sem dæmi voru
plöntur valdar sem höfðu aukið þol
gegn umhverfislegu álagi, eins og
sjúkdómum, eða gáfu meira af sér
en aðrar plöntur.
Þessir eftirsóttu eiginleikar urðu
til í gegnum náttúrulegar breytingar
í genabyggingu viðkomandi plantna
og dýra. Á síðustu tímum hefur orðið
mögulegt að breyta genabyggingu
lifandi frumna og lífvera með því að
beita nýjustu líftækni sem kölluð er
genatækni. Gen eru þá meðhöndluð
efnafræðilega til að setja inn í þau
nýja hæfileika. (t.d. plöntur eru gerð-
ar þolnar gegn sjúkdómum, skordýr-
um eða þurrkum. Plöntur eru gerðar
þolnar gegn skordýra- og plöntueitri,
fá aukin gæði, næringargildi og til að
gefa meiri uppskeru.
Slíkar lífverur eru kallaðar erfða-
breyttar (genetically modified org-
anisms - GMOs). Matur og fæða sem
framleidd er úr eða innihalda slíkar
erfðabreyttar lífverur kallast „gena-
breyttur (erfðabreyttur) matur eða
genabreytt fæða (genetically mod-
ified (GM) food or feed).“
Íslenskir vísindamenn tala um
„grundvallarmisskilning“
Í yfirlýsingu framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins er sami skiln-
ingur á hvað erfðabreyttar lífverur
séu líkt og ítrekað hefur verið greint
frá í Bændablaðinu. Nokkrir íslenskir
vísindamenn í búgreinum hafa eigi
að síður séð ástæðu til að gagnrýna
slíka umfjöllun í Bændablaðinu.
Umfjöllun blaðsins hefur þó einungis
endurspeglað erlenda umræðu um
sömu mál. Þar hefur líka margítrek-
að verið tekið fram að erfðabreyttar
lífverur þurfi í sjálfu sér ekki að vera
hættulegar og er því ekki tekin bein
afstaða til þeirra. Hins vegar hefur
verið bent á að ræktunaraðferðir á
erfðabreyttum lífverum hafi leitt til
notkunar á ótæpilegu magni eiturefna
sem getur gert afurðirnar hættulegar.
Umfjöllun Bændablaðsins hefur
því verið í fullu samræmi við
yfirlýsingu framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins, þvert á það sem
fullyrt var af nokkrum sérfræðing-
um Landbúnaðarháskóla Íslands í
síðasta Bændablaði undir fyrirsögn-
inni „Kredda eða vísindi – hvort
skal ráða för?“ Þar segir m.a.:
„Umfjöllun Bændablaðsins endur-
speglar grundvallarmisskilning á
eðli erfðatækni og beitingu hennar
í plöntukynbótum.“ Undir greinina
léði eftirtalið fólk nafnið sitt:
Áslaug Helgadóttir, prófessor
í jarðrækt og plöntukynbótum við
LbhÍ, Emma Eyþórsdóttir, dósent
í búfjárkynbótum við LbhÍ, Guðni
Þorvaldsson, prófessor í jarðrækt
við LbhÍ, Jón Viðar Jónmundsson,
sérfræðingur í búfjárkynbótum,
Jónatan Hermannsson, lektor í jarð-
rækt og plöntukynbótum við LbhÍ,
og Þóroddur Sveinsson, lektor í jarð-
fræði og fóðurverkun við LbhÍ.
Þessir ágætu íslensku vísinda-
menn eru greinilega afar hrifnir
af líftækninni sem vissulega hefur
gert margt gott. Í hrifningunni mega
„kreddur“ vísindamanna þó ekki
verða til þess að horft sé algjörlega
framhjá vandanum sem tæknin hefur
framkallað. Óhófleg eiturefnanotkun
hefur verið fylgifiskur ræktunar á
erfðabreyttum tegundum og skaðar
bæði fólk og náttúru. /HKr.
Sjáum til þess að hagur
neytenda og bænda fari
saman enda er öflugur
landbúnaður allra hagur.
Hverjum treystir þú?
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur gefið út nákvæma skilgreiningu á erfðabreyttum lífverum (GMO):
Aðildarþjóðum ESB heimilt að banna erfðabreyttar
lífverur innan sinna landamæra