Bændablaðið - 06.10.2016, Qupperneq 24

Bændablaðið - 06.10.2016, Qupperneq 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2016 Orkuspánefnd um þróun eldsneytisnotkunar á Íslandi fram til 2050: Hlutfall raforku í samgöngum gæti margfaldast en bensínið hverfur Í Eldsneytisspá Orkuspárnefndar 2016 kemur fram að umtalsverð- ar breytingar eiga eftir að verða á eldsneytisnotkun og þróun annarra tengdra orkugjafa til ársins 2050 miðað við óbreyttar aðstæður. Samkvæmt spánni mun notkun jarðefnaeldsneytis dragast saman sem samsvarar 55 þúsund tonnum af olíu árið 2030. Eða „55 ktoí“ eins og það er skammstafað og á víst að þýða á voða fínu stofn- anamáli „kílótonnaolíuígildi“. Gert er grein fyrir þessu í nýrri og ítarlegri skýrslu Orkustofnunar þar sem settar eru fram ýmsar sviðs- myndir um þróun eldsneytisnotkunar á landinu næstu áratugina. Spáin er greind niður í mismunandi notkunar- flokka og þar á meðal samgöngur á landi og fiskveiðar. Þar kemur fram spá um líklegustu þróunina en einnig eru birtar lág- og háspár sem fást með því að breyta forsendum spárinnar til að kanna vikmörk. Þétting byggðar og samdráttur í akstri Í Sviðsmynd 1 er gert ráð fyrir þéttingu byggðar og kröfu um aukna notkun endurnýjanlegra orkugjafa í akstri fólksbíla. Samhliða þéttingu byggðar er gert ráð fyrir að sam- dráttur verði í akstri þar sem almenn- ingssamgöngur eigi eftir að verða hagkvæmari og aðrir ferðamátar eins og t.d. hjólreiðar, vinsælli. Einnig er gert ráð fyrir að stjórnvöld beiti sér fyrir því að frá og með 2020 noti nán- ast allir nýir fólksbílar endurnýjan- legt eldsneyti að einhverju lágmarki. Nýir skattar á fólksbíla? Í sviðsmyndinni er gert ráð fyrir að rafbílaeign þróist líkt og í Eldsneytisspá en stjórnvöld leggi skatta á nýja fólksbíla frá og með árinu 2020 sem ekki noti endurnýjan- legt eldsneyti að ákveðnu lágmarki. Með þessu er átt við að t.d. hreinir rafbílar og tengiltvinnbílar, metanbíl- ar, vetnisbílar og metanólbílar yrðu undanþegnir slíkum skatti en jafn- framt yrðu söluaðilar orku að sýna fram á að slík orka sem seld væri hér á landi væri endurnýjanleg. Slíkur skattur gæti verið tímabundinn uns þessir bílar yrðu samkeppnisfærir í verði við olíuknúna bíla og skatturinn yrði að vera það hár að flestir veldu frekar þessa bíla. Niðurstaða Sviðsmyndar 1 er að slík krafa hraðar verulega orkuskipt- um í samgöngum á landi og dregur að sama skapi úr notkun jarðefna- eldsneytis. Hlutdeild endurnýjan- legra orkugjafa af heildarorkusölu í samgöngum á landi verður 59% árið 2030 í sviðsmyndinni og er það um 30 prósentustigum hærra en í Eldsneytisspá. Töluverður orkusparnaður kemur fram í sviðs- myndinni þar sem gert er ráð fyrir samdrætti í akstri. Notkun endurnýjanlegs eldsneytis verði aukin Í Sviðsmynd 2 er aftur litið til sam- gangna á landi og könnuð áhrif þess að stjórnvöld stuðli að aukinni notk- un endurnýjanlegs eldsneytis með aukinni söluskyldu á því og leggi á hærri skatt á notkun jarðefnaelds- neytis í samgöngum á landi. Núverandi söluskylda á endur- nýjanlegu eldsneyti til samgangna á landi kveður á um að 5% af þeirri orku sem söluaðilar eldsneytis selji til samgangna á landi verði að vera endurnýjanlegt eldsneyti. Hér er gert ráð fyrir að stjórnvöld hækki hlutdeild hins endurnýjanlega elds- neytis úr núverandi hlutdeild í 30% hlutdeild árið 2030 og er miðað við línulega breytingu yfir þetta tímabil. Í Sviðsmynd 2 er einnig gert ráð fyrir að eldsneytisverð hækki um 10 kr. á hvern lítra umfram verðið í Eldsneytisspánni á spátímanum. Í líkani Orkuspárnefndar leiðir hærra eldsneytisverð til minni aksturs og tilhneigingu neytenda til að kaupa freka sparneytnari bíla, líkt og lýst er í kafla 4.6.2 í Eldsneytisspá. „Verðteygni og kílótonnaolíuígildi“ Sviðsmynd 2 byggir á að stjórnvöld komi á stighækkandi söluskyldu endurnýjanlegs eldsneytis til sam- gagna á landi auk þess sem skatt- lagning á notkun jarðefnaeldsneytis er hærri en í Eldsneytisspánni. Ef miðað er við 30% hlutdeild endur- nýjanlegs eldsneytis af heildarorku í eldsneytissölu leiðir það til þess að hlutdeild endurnýjanlegra orku- gjafa verður um 46% árið 2030 og er það um 18 prósentustigum hærra en í Eldsneytisspánni. Svo kemur það sem öllu breytir: „Verðteygni jarðefnaeldsneytis leiðir til minni notkunar jarðefna- eldsneytis en áhrifin eru þó ekki ýkja mikil þar sem eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti er frekar óteygin.“ Hin aukna hlutdeild endurnýj- anlega eldsneytisins leiðir til þess að notkun jarðefnaeldsneytis dregst saman sem samsvarar 55 þúsund tonnum af olíu árið 2030. Eða eins og segir í skýrslunni á góðu stofnana- máli; „dregst saman um 55 ktoí árið 2030 og um nærri 18 ktoí árið 2050 ef miðað er við Eldsneytisspána“ (Skammstöfunin „ktoí“ mun víst þýða „kílótonnaolíuígildi). Hærri hlutdeild endurnýjanlegs eldsneytis fyrir skip Í sviðsmynd 3 er litið til fiskveiða og gert ráð fyrir að stjórnvöld komi á stighækkandi söluskyldu á hlutdeild endurnýjanlegs eldsneytis af sölu eldsneytis til fiskiskipa. Að auki er gert ráð fyrir að 50% af orkuþörf báta verði fullnægt með rafmagni undir lok spátímans. Niðurstaða sviðs- myndarinnar er að samdráttur verður í olíunotkun og nemur hann 15% árið 2030 og 32% árið 2050 ef miðað er við Eldsneytisspá. Raforkunotkun verður um 12% af allri orkunotkun í fiskveiðum árið 2050. Hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa að með- talinni raforku í sviðsmyndinni verð- ur 38% af allri orkunotkun og er það nærri 30 prósentustigum hærra en í Eldsneytisspá. Rafvæðing bátaflotans mun kalla á frekari rafvæðingu í höfnum en í flestum höfnum er þegar selt raf- magn til skipa og þyrfti þá að aðlaga það kerfi að þörfum báta. Það er því verulegur kostir við þær leiðir sem skoðaðar eru hér að þær kalla ekki á verulega uppbyggingu innviða og geta því komist fljótt í framkvæmd. Margar forsendur spárinnar geta breyst Forsendur spárinnar eru fjölmargar og er meðal annars farið ítarlega yfir tækniframfarir og breytingar í notkunarmynstri í þeim atriðum sem tengjast eldsneytisnotkun. Umgjörð stjórnvalda skiptir verulegu máli þegar kemur að eldsneytisnotkun og geta stjórnvöld sett fram hvata til að ná fram breytingum. Ómögulegt er að spá fyrir um hvernig umgjörð stjórnvalda breyt- ist og að sama skapi hvenær vænta má slíkra breytinga. Allar spár orku- spárnefndar miða að við núverandi umgjörð stjórnvalda hvað varðar eldsneytis- og orkumál breytist ekki á spátímanum. Spárnar eru því það sem kallast á ensku „business as usual“. Millilandaflugið og skipin nota mest af olíu Eins og fram kemur í Eldsneytisspá er núverandi notkun eldsneytis mest í samgöngum á landi en þar á eftir koma millilandaflug og fiskveiðar. Ekki er búist við nýjum orkugjöf- um í millilandaflugi fyrr en í litlum mæli undir lok spátímans. Eftirspurn eftir eldsneyti í millilandaflugi ræðst af fjölda ferðamanna sem fara um Keflavíkurflugvöll og orkunotkunar á hvern floginn km. Í iðnaði hefur á undanförnum árum orðið mikill samdráttur í olíunotkun og raforka notuð í staðinn. Í Eldsneytisspá er búist við því að olíunotkun haldi áfram að dragast saman í iðnaði og verði fljótlega lítil í samburði við fyrrnefnda flokka og því er ekki sett fram sviðsmynd fyrir iðnað. Hér á eftir verða birtar þrjár sviðsmynd- ir þar sem ákveðnum forsendum í spánni hefur verið breytt til þess að kanna áhrif sérstakra aðgerða á orkunotkun í samgöngum á landi og í sjávarútvegi. Tilkoma nýrra orkugjafa í veru- legum mæli í samgöngum á landi og í fiskveiðum getur krafist tölu- verðrar uppbyggingar innviða. Má þar nefna útbúnað til hleðslu rafbíla hvort sem er í heimahúsum, við verslanir og fyrir hleðslu skipa á raf- magni í höfnum. Að auki getur þurft sérhæfða innviðafjárfestingu fyrir sölu á endurnýjanlegu eldsneyti auk þess sem hið endurnýjanlega elds- neyti getur verið dýrara í innkaup- um samanborið við hið hefðbundna eldsneyti. Innviðafjárfestingin og kostnaður við eldsneytiskaup hafa ekki verið metin í úttekt þessari enda væri veru- legt við að meta slíkt. Þær leiðir sem hér um ræðir ættu þó ekki að kalla á mikla uppbyggingu innviða umfram það sem verður skv. eldsneytisspá þar sem tengiltvinnbílar verða að mestu hlaðnir í heimahúsum eða á vinnustað. Unnið að beiðni atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins Sviðsmyndirnar eru unnar af Orkustofnun að beiðni atvinnu- vega- og nýsköpunarráðuneytisins. Ekki ber að líta á sviðsmyndir þess- ar sem fyrirhugaðar aðgerðir stjórn- valda til að ná fram markmiðum í orku- og loftslagsmálum. Hér er fyrst og fremst verið að kanna áhrif einstakra mögulegra aðgerða til að fá betri skilning á leiðum til að mæta markmiðum stjórnvalda í orku- og loftslagsmálum. /HKr. Kletthálsi 3 |110 Reykjavík | sími 540 4900 www.yamaha.is EXPLORE WITHOUT LIMITS ® EXPLORE WITHOUT LIMITS ® TRAKTOR SEM LÉTTIR ÞÉR STÖRFIN GRZZLY 700 EPS FJÓRHJÓL MEÐ TRAKTORSSKRÁNINGU Ný útgáfa með dráttarspili, LED ljósum og 26“ dekkjum. Aukin burðargeta og lækkaður þyngdarpunktur gerir gott hjól enn betra. Verð frá kr. 1.990.000,- m/vsk. Bjóðum einnig vandaðar fjórhjólakerrur í öllum stærðum. Verð frá kr. 149.900,- m/vsk. BJÓÐUM ALLA ALMENNA VERKSTÆÐISÞJÓNUSTU! Tímapantanir í síma 540 4900 Eldsneytisnotkunin samkvæmt spá 1. Eldsneytisnotkunin samkvæmt spá 1.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.