Bændablaðið - 06.10.2016, Page 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2016
Orkuspánefnd um þróun eldsneytisnotkunar á Íslandi fram til 2050:
Hlutfall raforku í samgöngum gæti
margfaldast en bensínið hverfur
Í Eldsneytisspá Orkuspárnefndar
2016 kemur fram að umtalsverð-
ar breytingar eiga eftir að verða
á eldsneytisnotkun og þróun
annarra tengdra orkugjafa til
ársins 2050 miðað við óbreyttar
aðstæður. Samkvæmt spánni mun
notkun jarðefnaeldsneytis dragast
saman sem samsvarar 55 þúsund
tonnum af olíu árið 2030. Eða „55
ktoí“ eins og það er skammstafað
og á víst að þýða á voða fínu stofn-
anamáli „kílótonnaolíuígildi“.
Gert er grein fyrir þessu í nýrri
og ítarlegri skýrslu Orkustofnunar
þar sem settar eru fram ýmsar sviðs-
myndir um þróun eldsneytisnotkunar
á landinu næstu áratugina. Spáin er
greind niður í mismunandi notkunar-
flokka og þar á meðal samgöngur á
landi og fiskveiðar. Þar kemur fram
spá um líklegustu þróunina en einnig
eru birtar lág- og háspár sem fást með
því að breyta forsendum spárinnar til
að kanna vikmörk.
Þétting byggðar og
samdráttur í akstri
Í Sviðsmynd 1 er gert ráð fyrir
þéttingu byggðar og kröfu um aukna
notkun endurnýjanlegra orkugjafa í
akstri fólksbíla. Samhliða þéttingu
byggðar er gert ráð fyrir að sam-
dráttur verði í akstri þar sem almenn-
ingssamgöngur eigi eftir að verða
hagkvæmari og aðrir ferðamátar eins
og t.d. hjólreiðar, vinsælli. Einnig er
gert ráð fyrir að stjórnvöld beiti sér
fyrir því að frá og með 2020 noti nán-
ast allir nýir fólksbílar endurnýjan-
legt eldsneyti að einhverju lágmarki.
Nýir skattar á fólksbíla?
Í sviðsmyndinni er gert ráð fyrir
að rafbílaeign þróist líkt og í
Eldsneytisspá en stjórnvöld leggi
skatta á nýja fólksbíla frá og með
árinu 2020 sem ekki noti endurnýjan-
legt eldsneyti að ákveðnu lágmarki.
Með þessu er átt við að t.d. hreinir
rafbílar og tengiltvinnbílar, metanbíl-
ar, vetnisbílar og metanólbílar yrðu
undanþegnir slíkum skatti en jafn-
framt yrðu söluaðilar orku að sýna
fram á að slík orka sem seld væri hér
á landi væri endurnýjanleg. Slíkur
skattur gæti verið tímabundinn uns
þessir bílar yrðu samkeppnisfærir í
verði við olíuknúna bíla og skatturinn
yrði að vera það hár að flestir veldu
frekar þessa bíla.
Niðurstaða Sviðsmyndar 1 er að
slík krafa hraðar verulega orkuskipt-
um í samgöngum á landi og dregur
að sama skapi úr notkun jarðefna-
eldsneytis. Hlutdeild endurnýjan-
legra orkugjafa af heildarorkusölu
í samgöngum á landi verður 59%
árið 2030 í sviðsmyndinni og er
það um 30 prósentustigum hærra
en í Eldsneytisspá. Töluverður
orkusparnaður kemur fram í sviðs-
myndinni þar sem gert er ráð fyrir
samdrætti í akstri.
Notkun endurnýjanlegs eldsneytis
verði aukin
Í Sviðsmynd 2 er aftur litið til sam-
gangna á landi og könnuð áhrif þess
að stjórnvöld stuðli að aukinni notk-
un endurnýjanlegs eldsneytis með
aukinni söluskyldu á því og leggi á
hærri skatt á notkun jarðefnaelds-
neytis í samgöngum á landi.
Núverandi söluskylda á endur-
nýjanlegu eldsneyti til samgangna
á landi kveður á um að 5% af þeirri
orku sem söluaðilar eldsneytis selji
til samgangna á landi verði að vera
endurnýjanlegt eldsneyti. Hér er
gert ráð fyrir að stjórnvöld hækki
hlutdeild hins endurnýjanlega elds-
neytis úr núverandi hlutdeild í 30%
hlutdeild árið 2030 og er miðað við
línulega breytingu yfir þetta tímabil.
Í Sviðsmynd 2 er einnig gert ráð
fyrir að eldsneytisverð hækki um
10 kr. á hvern lítra umfram verðið
í Eldsneytisspánni á spátímanum. Í
líkani Orkuspárnefndar leiðir hærra
eldsneytisverð til minni aksturs og
tilhneigingu neytenda til að kaupa
freka sparneytnari bíla, líkt og lýst
er í kafla 4.6.2 í Eldsneytisspá.
„Verðteygni og
kílótonnaolíuígildi“
Sviðsmynd 2 byggir á að stjórnvöld
komi á stighækkandi söluskyldu
endurnýjanlegs eldsneytis til sam-
gagna á landi auk þess sem skatt-
lagning á notkun jarðefnaeldsneytis
er hærri en í Eldsneytisspánni. Ef
miðað er við 30% hlutdeild endur-
nýjanlegs eldsneytis af heildarorku
í eldsneytissölu leiðir það til þess
að hlutdeild endurnýjanlegra orku-
gjafa verður um 46% árið 2030 og
er það um 18 prósentustigum hærra
en í Eldsneytisspánni. Svo kemur það
sem öllu breytir:
„Verðteygni jarðefnaeldsneytis
leiðir til minni notkunar jarðefna-
eldsneytis en áhrifin eru þó ekki
ýkja mikil þar sem eftirspurn eftir
jarðefnaeldsneyti er frekar óteygin.“
Hin aukna hlutdeild endurnýj-
anlega eldsneytisins leiðir til þess
að notkun jarðefnaeldsneytis dregst
saman sem samsvarar 55 þúsund
tonnum af olíu árið 2030. Eða eins
og segir í skýrslunni á góðu stofnana-
máli; „dregst saman um 55 ktoí árið
2030 og um nærri 18 ktoí árið 2050
ef miðað er við Eldsneytisspána“
(Skammstöfunin „ktoí“ mun víst
þýða „kílótonnaolíuígildi).
Hærri hlutdeild endurnýjanlegs
eldsneytis fyrir skip
Í sviðsmynd 3 er litið til fiskveiða og
gert ráð fyrir að stjórnvöld komi á
stighækkandi söluskyldu á hlutdeild
endurnýjanlegs eldsneytis af sölu
eldsneytis til fiskiskipa. Að auki er
gert ráð fyrir að 50% af orkuþörf báta
verði fullnægt með rafmagni undir
lok spátímans. Niðurstaða sviðs-
myndarinnar er að samdráttur verður
í olíunotkun og nemur hann 15% árið
2030 og 32% árið 2050 ef miðað er
við Eldsneytisspá. Raforkunotkun
verður um 12% af allri orkunotkun
í fiskveiðum árið 2050. Hlutdeild
endurnýjanlegra orkugjafa að með-
talinni raforku í sviðsmyndinni verð-
ur 38% af allri orkunotkun og er það
nærri 30 prósentustigum hærra en í
Eldsneytisspá.
Rafvæðing bátaflotans mun kalla
á frekari rafvæðingu í höfnum en
í flestum höfnum er þegar selt raf-
magn til skipa og þyrfti þá að aðlaga
það kerfi að þörfum báta. Það er því
verulegur kostir við þær leiðir sem
skoðaðar eru hér að þær kalla ekki
á verulega uppbyggingu innviða og
geta því komist fljótt í framkvæmd.
Margar forsendur spárinnar
geta breyst
Forsendur spárinnar eru fjölmargar
og er meðal annars farið ítarlega
yfir tækniframfarir og breytingar í
notkunarmynstri í þeim atriðum sem
tengjast eldsneytisnotkun. Umgjörð
stjórnvalda skiptir verulegu máli
þegar kemur að eldsneytisnotkun
og geta stjórnvöld sett fram hvata
til að ná fram breytingum.
Ómögulegt er að spá fyrir um
hvernig umgjörð stjórnvalda breyt-
ist og að sama skapi hvenær vænta
má slíkra breytinga. Allar spár orku-
spárnefndar miða að við núverandi
umgjörð stjórnvalda hvað varðar
eldsneytis- og orkumál breytist
ekki á spátímanum. Spárnar eru því
það sem kallast á ensku „business
as usual“.
Millilandaflugið og skipin
nota mest af olíu
Eins og fram kemur í Eldsneytisspá
er núverandi notkun eldsneytis mest
í samgöngum á landi en þar á eftir
koma millilandaflug og fiskveiðar.
Ekki er búist við nýjum orkugjöf-
um í millilandaflugi fyrr en í litlum
mæli undir lok spátímans. Eftirspurn
eftir eldsneyti í millilandaflugi ræðst
af fjölda ferðamanna sem fara um
Keflavíkurflugvöll og orkunotkunar
á hvern floginn km. Í iðnaði hefur
á undanförnum árum orðið mikill
samdráttur í olíunotkun og raforka
notuð í staðinn. Í Eldsneytisspá er
búist við því að olíunotkun haldi
áfram að dragast saman í iðnaði og
verði fljótlega lítil í samburði við
fyrrnefnda flokka og því er ekki sett
fram sviðsmynd fyrir iðnað. Hér á
eftir verða birtar þrjár sviðsmynd-
ir þar sem ákveðnum forsendum í
spánni hefur verið breytt til þess
að kanna áhrif sérstakra aðgerða á
orkunotkun í samgöngum á landi og
í sjávarútvegi.
Tilkoma nýrra orkugjafa í veru-
legum mæli í samgöngum á landi
og í fiskveiðum getur krafist tölu-
verðrar uppbyggingar innviða. Má
þar nefna útbúnað til hleðslu rafbíla
hvort sem er í heimahúsum, við
verslanir og fyrir hleðslu skipa á raf-
magni í höfnum. Að auki getur þurft
sérhæfða innviðafjárfestingu fyrir
sölu á endurnýjanlegu eldsneyti auk
þess sem hið endurnýjanlega elds-
neyti getur verið dýrara í innkaup-
um samanborið við hið hefðbundna
eldsneyti.
Innviðafjárfestingin og kostnaður
við eldsneytiskaup hafa ekki verið
metin í úttekt þessari enda væri veru-
legt við að meta slíkt. Þær leiðir sem
hér um ræðir ættu þó ekki að kalla á
mikla uppbyggingu innviða umfram
það sem verður skv. eldsneytisspá
þar sem tengiltvinnbílar verða að
mestu hlaðnir í heimahúsum eða á
vinnustað.
Unnið að beiðni atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytisins
Sviðsmyndirnar eru unnar af
Orkustofnun að beiðni atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneytisins.
Ekki ber að líta á sviðsmyndir þess-
ar sem fyrirhugaðar aðgerðir stjórn-
valda til að ná fram markmiðum í
orku- og loftslagsmálum. Hér er
fyrst og fremst verið að kanna áhrif
einstakra mögulegra aðgerða til að fá
betri skilning á leiðum til að mæta
markmiðum stjórnvalda í orku- og
loftslagsmálum. /HKr.
Kletthálsi 3 |110 Reykjavík | sími 540 4900
www.yamaha.is
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
TRAKTOR
SEM LÉTTIR ÞÉR STÖRFIN
GRZZLY 700 EPS FJÓRHJÓL MEÐ TRAKTORSSKRÁNINGU
Ný útgáfa með dráttarspili, LED ljósum og 26“ dekkjum.
Aukin burðargeta og lækkaður þyngdarpunktur gerir gott
hjól enn betra. Verð frá kr. 1.990.000,- m/vsk.
Bjóðum einnig vandaðar fjórhjólakerrur í öllum stærðum.
Verð frá kr. 149.900,- m/vsk.
BJÓÐUM ALLA ALMENNA
VERKSTÆÐISÞJÓNUSTU!
Tímapantanir í síma 540 4900
Eldsneytisnotkunin samkvæmt spá 1.
Eldsneytisnotkunin samkvæmt spá 1.