Bændablaðið - 06.10.2016, Side 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2016
Hey Iceland er nýtt nafn á vöru-
merki Ferðaþjónustu bænda sem
tekið var í noktun 30. september
og kemur í stað vörumerkisins
Icelandic Farm Holidays sem
félagið hefur fram til þessa notað
í erlendu sölu- og markaðsstarfi
sínu.
Bryndís Pjetursdóttur mark-
aðsstjóri segir að endurskoðun á
vörumerkjum Ferðaþjónustu bænda
hafi verið í undirbúningi undanfar-
in ár. Ástæða nafnbreytingarinnar
sé fyrst og fremst af markaðsleg-
um ástæðum. Þar hafi vörumerk-
ið Icelandic Farm Holidays þótt
vera of takmarkandi og ekki alltaf
lýsandi fyrir þá þjónustu sem verið
var að veita. Gagnvart erlendum
viðskiptavinum hafi þetta því oft
kallað á útskýringar þegar t.d. var
verið að bjóða gistingu annars stað-
ar en á hefðbundnum sveitabæjum.
Mikil stefnumótunarvinna
hefur átt sér stað hjá fyrirtækinu
og út frá henni voru forsendur
fyrir nýju vörumerki og mark-
aðsáherslum settar. Að því loknu
var lagst í mikla hugmyndavinnu
til að finna einfaldara nafn, með
opnari skírskotun en samt nafn sem
tengdist sögu okkar. Mörg nöfn hafi
komið til skoðunar, en eftir mikla
yfirlegu hafi komið upp hið ein-
falda nafn Hey Iceland. Það er orð
sem vísar til sveita landsins og sögu
fyrirtækisins sem við erum svo stolt
af og hefur líka þann skemmtilega
kost að vera létt og vinaleg kveðja
á alþjóðavísu.
Viss söknuður en félagsmenn
mjög ánægðir með breytingarnar
Bryndís segir að nýja nafnið hafi
verið borið undir félagsmenn, starfs-
menn og sérfræðinga sem fyrirtækið
hefur verið í tengslum við innanlands
og erlendis.
„Við fórum hringinn í kringum
landið í september til að kynna félög-
um nýtt vörumerki, en umræðan um
nýtt vörumerki hefur staðið yfir lengi
og var t.d. vinna við endurskoðun
og breyttar markaðsáherslur kynnt-
ar í febrúar sl. Félagar okkar tóku
þessu mjög vel, þótt mörgum þætti
sorglegt að sjá á eftir burstabænum
í gamla „lógóinu“. Það var þó ekkert
síður eldra en yngra fólkið í okkar
félagahópi sem tók breytingunum
fagnandi. Í hringferðinni spruttu líka
upp mjög margar nýjar hugmyndir
tengdar nýju nafni sem við munum
þróa áfram.
Þrátt fyrir breytingar helst starf-
semi fyrirtækisins óbreytt með
sama starfsfólki og áður en við
erum einungis að skerpa á áhersl-
um okkar. Það er okkur mikilvægt
að byggja ofan á þann góða grunn
sem við höfum en á sama tíma horfa
til framtíðar.“
Hjá Hey Iceland starfa í dag
um 34, en fleiri yfir hásumarið.
Þar að auki er fjöldi fararstjóra í
hlutastarfi og þegar mest lætur geta
verið um 120 manns á launaskrá.
Starfsmannafjöldinn hefur haldist
nokkuð jafn undanfarin ár.
Hófst með rýnivinnu fyrir
þrem til fjórum árum
Sævar Skaptason framkvæmdastjóri
segir áhugavert að í rýnihópum, sem
stofnaðir voru með bændum á síð-
astliðnum vetri, hafi menn fagnað
því að loksins ætti að koma með
einhverja nýjung inn í starfsemina.
„Þetta hófst allt saman fyrir
einum þrem eða fjórum árum með
stefnumótunarvinnu þar sem farið
var í gegnum allan okkar rekstur
og markmiðin skýrð. Við lærðum
heilmið um hvernig við gætum gert
gott fyrirtæki betra og Félag ferða-
þjónustubænda fór líka í svona
stefnumótunarvinnu. Ein niðurstað-
an úr öllu þessu var að fara í skoðun
á vörumerkinu.
Við áttuðum okkur þá á því að
sumir úr okkar hópi höfðu verið að
upplifa sig sem gamaldags og fyrir-
tækið væri ekki í takt við tímann og
vörumerkið Icelandic Farm Holidays
væri takmarkandi og næði ekki yfir
þá margvíslegu þjónustu sem er í
boði.“
Einstaklingarnir mikilvægasti
markhópurinn
Sævar segir að gagnvart útlending-
um hafi fyrirtækið verið kynnt sem
Icelandic Farm Holidays, sem feli
í sér mjög ákveðna skírskotun. Í
raun séu tveir markhópar sem þetta
snertir sérstaklega, einstaklingarnir
sem kaupi þjónustuna beint og hins
vegar erlendar ferðaskrifstofur sem
hafa ekki verið að setja það fyrir sig
hvað fyrirtækið héti.
„Það eru erlendir ferðamenn sem
við erum að selja þjónustu beint og
milliliðalaust sem er okkar mikil-
vægasti markhópur. Við erum að
selja þeim margskonar þjónustu,
gistingu, bílaleigupakka og t.d.
þematengda afþreyingu. Frá þess-
um viðskiptavinum vorum við að
fá skilaboð um að ferðina hafi verið
yndislega, en jafnframt líka að þeir
hafi keypt Farm Holidays pakka, en
aldrei séð nein dýr, engin fjós eða
annað sem tilheyrir sveitabæjum.
Þetta fólk var þá að lenda á bæjum
sem voru ekki lengur með búskap og
var upplifun þeirra því ekki í sam-
ræmi við ályktun sem þau drógu úr
nafni vörumerkisins. Einstaklingar
eru okkar verðmætasti kúnnahópur
sem við viljum geta talað skýrar við
með skýrum áherslum.
Þá vorum við líka að lenda í því
á ferðasýningum í London og víðar
að nafnið Icelandic Farm Holidays
fældi mögulega viðskiptavini frá
sem ekki voru endilega að leita eftir
hreinræktaðri gistingu á sveitabæj-
um. Ég get nefnt dæmi af einum sem
hafði ekki áhuga á hefðbundinni
bændagistingu að hann fór í næsta
sölubás við hliðina á mér þar sem
hann hafði áhuga á annars konar
upplifun, sem hann taldi ferðaþjón-
ustuaðilann við hliðina á mér geta
uppfyllt betur. Hér er birtingarmynd
okkar erlendis í gegnum vörumerkið
Icelandic Farm Holidays að trufla
mögulega viðskiptavini okkar. Þessu
ætlum við að breyta með því að taka
upp nýtt nafn sem tengir vel við sögu
okkar. Heimurinn hefur líka breyst
mikið með nútíma markaðsað-
ferðum í gegnum netið. Nú skiptir
meira máli að við pössum inn í það
umhverfi og séum ekki fyrirfram
að takmarka okkur með nafninu og
séum með skarpa sýn á framtíðina.“
Tengingu við sveitina haldið með
nýju nafni
Óttist þið þá ekkert að tapa þeirri
sérstöðu sem vissulega er falin í
gamla nafninu?
„Nei, en hjá okkar starfsfólki er
að halda í sögu fyrirtækisins sem
er mjög farsæl. Upphaflega eigum
við rætur okkar að rekja inn í hrein-
ræktað bændasamfélag. Síðan tókum
við félagið á sínum tíma og gerðum
það að okkar og byggðum það upp á
nýjum forsendum. Fyrirtækið hefur í
dag gott orð á sér og sú þjónusta sem
við höfum verið að veita. Áskorunin
felst því í að brúa bilið á milli upp-
runans og nútímans og upplýsa
kúnnann um hvað standi í raun á bak
við nafnið Hey Iceland. Þá er það
ekki síðri áskorun að finna nýja og
fjölbreyttari markhópa þar sem þessi
saga skiptir ekki eins miklu máli, en
nafngiftin Icelandic Farm Holidays
hefur virkað fráhrindandi á.“
− Þið teljið að með vörumerki
Hey Iceland náið þið frekar þessum
markmiðum?
„Já, við teljum að með nýja
vörumerki Hey Iceland, sem inni-
felur samt tengslin við sveitina og
náttúruna, náum við betri mark-
aðstengingu.“
Upplifun á hefðbundnum
bóndabæ ennþá ein af afurðum
Hey Iceland
Bryndís Pjetursdóttir segir að skerpt
hafi verið á markaðsáherslum.
„Við munum alltaf leggja áherslu
á sveitina, þar er okkar sérstaða og
saga sem er okkur mikilvæg. Við
leggjum áfram áherslu á farm holi-
day eða upplifun á hefðbundnum
bóndabæ en í dag eru tæplega 40%
félaga okkar með hefðbundinn
búskap. Við höfum skilgreint vöru-
framboð okkar betur og nálgumst
nú markhópa í gegnum hnitmiðaðri
markaðssetningu. Með nýju vöru-
merki og betur skilgreindu vöru-
framboði teljum við að við náum
að mæta væntingum viðskiptavina
okkar betur svo þeir fái þá upplifun
sem þau sækjast í.“
Ferðaskrifstofa
landsbyggðarinnar
Sævar tekur undir þetta og segir að
í framtíðinni muni þau skilgreina
sig betur sem ferðaskrifstofu lands-
byggðarinnar.
„Í gegnum þetta nafn-
breytingarferli ætlum við að gera
okkur að áhugaverðum kosti fyrir
fleiri aðila en við erum að vinna Bryndís Pjetursdóttur markaðsstjóri.
Sævar Skaptason framkvæmdastjóri.