Bændablaðið - 06.10.2016, Page 30

Bændablaðið - 06.10.2016, Page 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2016 Bonito ehf. • Friendtex • Praxis Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2870 • www.friendtex.is •www.praxis.is Fatnaður og skór til vinnu og frístunda Teg. 25090 Litir: Svart/Hvítt/Blátt Str. 36-42 Verð 14.990 Primaloft úlpur fyrir dömu og herra í mörgum litum, með og án hettu, síðar og stuttar. Verð frá 22.900 velkominVerið Sölusíðan er asa.friendtex.is Nýju flottu friendtexvörurnar eru komnar í verslun Sveitarfélagið Skagafjörður: Fimm umhverfisviðurkenningar Hluti hópsins sem keppa mun í Þýskalandi á Ólympíuleikunum í matreiðslu. Sveitarfélagið Skagafjörður veitti á dögunum umhverfisviðurkenn- ingar, þær voru alls fimm að þessu sinni. Soroptmistaklúbbur Skaga fjarðar hefur séð um framkvæmdina þau tólf ár sem viðurkenningar hafa verið veittar. Fyrirkomulagið var með hefðbundnu sniði, sex hópar skiptu með sér svæðinu frá Fljótum inn allan Skagafjörð að Hofsvöllum og út að Hrauni á Skaga. Hóparnir fóru tvisvar um sitt svæði yfir sum- arið og skiluðu inn tillögum. Frá þessu er sagt á vef Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Valnefnd klúbbsins hefur að mörgu að hyggja og endurskoðar reglulega viðmiðin varðandi matið. Sem dæmi um þau atriði sem horft er á og gefin einkunn fyrir er m.a. frágangur bygginga, geymsla tækja og áhalda, viðhald girðinga, almenn umgengni og heildarmynd húsa, lóða og sveitabýla. Að sögn Soroptmistasystra er umgengni stöðugt að batna í sveitar- félaginu og íbúar að gera umhverfið snyrtilegt og fallegt en í þessu eins og mörgu öðru má oft gott bæta. „Ef við íbúar erum tilbúin að sinna okkar nánasta umhverfi, þó það sé utan lóðarmarka, við að tína rusl og uppræta illgresi þá er hægt að ná miklum árangri sem er til ánægju fyrir okkur sjálf og þá sem sækja okkur heim,“ segja þær systur enn- fremur og hvetja íbúa í Skagafirði til að leggja sitt af mörkum til að fegra fjörðinn. Á þeim tólf árum sem Soroptmista klúbburinn hefur haft veg og vanda af tilnefningum til umhverfisverðlauna í Skagafirði hafa 73 staðir fengið viðurkenningu og í ár voru veittar fimm viðurkenn- ingar í flokkunum; lóð í þéttbýli, lóð við fyrirtæki, sveitabýli án búskapar og lóð við opinbera stofnun. /MÞÞ Brennihlíð 3 – Sigurbjörg Guðjónsdóttir og Jón Sigurðsson. Langamýri – fræðslusetur kirkjunnar. Smáragrund 13 – Ásta Búadóttir og Trausti Jóel Helgason. Stóra-Seyla – Steinunn Fjóla Ólafsdóttir og Guðmundur Þór Guðmundsson. Sveitasetrið Hofstöðum – Guðný Vésteinsdóttir og Þórólf- ur Sigurjónsson. Smitsjúkdómurinn orf hefur greinst í nokkrum hreindýrum á yfirstandandi veiðitímabili. Sjúkdómurinn er vel þekktur í sauðfé. Oftast verða dýrin ekki mikið veik en smitið getur valdið skemmdum á júgri og þar með vanþrifum í kálfum. Fólk getur smitast af snertingu við hrúðrið sem sýkingin veldur. Í frétt á heimasíðu Matvæla- stofnunar segir að Náttúrustofa Austurlands hafi haft samband við Mast vegna gruns um orf í hreindýrum. Sýni voru tekin og send á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum þar sem greining fór fram. Meinafræðiniðurstöður leiddu í ljós að breytingarnar samrýmdust þeim sem verða við orf-veirusýkingu. Við veirurannsókn, sem var einnig framkvæmd á Keldum, kom í ljós að um parapox-veiru var að ræða sem staðfestir greininguna. Landlægur sjúkdómur í sauðfé Orf, sem einnig er nefnt smitandi munnangur, kindabóla eða slátur- bóla, er veirusýking sem er landlæg í sauðfé um allt Austurland og hefur verið í áratugi. Hún finnst einnig víðar á landinu. Eftir smit myndast lífslangt ónæmi, því er mikilvægt að ungviði smitist snemma þar sem veiran er landlæg. Þegar veiran berst í eldri dýr sem ekki eru með ónæmi þá fer þetta á aðra staði en munnvik, til dæmis við hornarót, klaufir eða, það sem verst er, á júgur og spena. Líklegt er að orf smitist frá sauð- fé yfir í hreindýr en sýkingin hefur greinst í mörgum dýrategundum. Smit veldur líklega ekki miklum vandræðum nema það berist á júgur hreinkúa meðan þær mjólka mest. Þá verða helstu áhrifin á hjörðina sú að kálfar gætu verið í minna lagi en það fer eftir aldri kálfanna þegar kýrin smitast. Sýkingin gengur þó yfir á nokkrum vikum. Smit verður með snertingu og öðru sem hefur komist í snertingu við sýkta vessa. Alvarleg tilfelli Borist hafa tilkynningar frá Austurlandi um alvarlegri tilfelli þar sem breytingarnar ná dýpra í undirliggjandi vef. Líklegt er að það séu afleiðingar bakteríusýkinga sem koma í kjölfar húðbreytinga sem stafa af veirusýkingunni. Afleiðingar slíkra sýkinga eru lík- legar til að hafa langvarandi áhrif á mjólkureiginleika hreindýrakúnna en það fer eftir því hversu djúpt í vefinn sýkingin nær. Getur borist í fólk Smitandi munnangur getur borist í fólk og veldur þá stundum vondum sýkingum, einkum á fingrum. Það er því full ástæða til þess að vara veiðimenn við og minna á að snerta aldrei hrúður með berum höndum. /VH Dýraheilbrigði: Orf í hreindýrum í mörgum dýrategundum. Kokkalandsliðið keppir á Ólympíuleikum Í matreiðslu í Þýskalandi Kokkalandsliðið keppir á Ólympíuleikum í matreiðslu í október og fylgir eftir framúrskar- andi árangri sínum frá síðasta Heimsmeistaramóti sem skilaði liðinu í 5. sæti á heimslista. Liðið er í toppformi og á lokaspretti í sínum undirbúningi en æfingar hafa staðið yfir í 18 mánuði. Ólympíuleikar í matreiðslu eru haldnir á fjögurra ára fresti og verða haldnir í Þýskalandi 21.–26. október. Ólympíuleikar eru stærsta og mest krefjandi keppni kokkalandsliða í heiminum. Þar mætast 2.000 af fær- ustu kokkum heimsins frá um 50 þjóðum og keppa sín á milli. Keppt er í tveimur greinum, annars vegar í köldu borði, eða Culinary Art Table, og hins vegar er keppt í heitum mat, eða Hot Kitchen. Í keppninni um heitu réttina er útbúinn þriggja rétta matseðill með forrétti, aðalrétti og eftirrétti, sem eldað er frá grunni á keppnisstað fyrir 110 gesti. Í fyrrihluta október verður mikið um að vera í undirbúningi liðsins og gefast tækifæri fyrir fjölmiðla og almenning að skyggnast bak við tjöldin í eldhúsi Kokkalandsliðsins. Kokkalandsliðið skipa: Þráinn Freyr Vigfússon, sjálf- stætt starfandi, faglegur fram- kvæmdastjóri, Bjarni Siguróli Jakobsson, Canopy hótel, fyrirliði, Jóhannes Steinn Jóhannesson, Canopy hótel, liðs- stjóri, Steinn Óskar Sigurðsson, Vodafone, liðsstjóri, Hafliði Halldórsson, sjálfstætt starf- andi, framkvæmdastjóri, Björn Bragi Bragason, Síminn, for- seti Klúbbs matreiðslumeist- ara, Ylfa Helgadóttir, Kopar, Stefán Viðarsson, Icelandair Hotels, Hrafnkell Sigríðarson, Ion Hótel, Hafsteinn Ólafsson, Ion Hótel, Atli Þór Erlendsson, Grillið Hótel Saga, Sigurður Ágústsson, Tryggvaskáli, Axel Björn Clausen, Fiskmarkaðurinn, Garðar Kári Garðarsson, Strikið, Georg Arnar Halldórsson, Kolabrautin, María Shramko, sjálfstætt starfandi, Fannar Vernharðsson, Vox. Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020 eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is Skipholt 50b, 105 Reykjavík Vegna aukinnar eftirspurnar óskum við eftir bújörðum á söluskrá

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.