Bændablaðið - 06.10.2016, Side 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2016
Local Food Festival-matarmenningarhátíðin á Akureyri:
Metfjöldi gesta sótti hátíðina heim
Mikið fjölmenni sótti Local Food
Festival-matarmenningarhátíðina
sem fram fór á Akureyri um síð-
astliðna helgi. Gestafjöldinn er
áætlaður á milli 15 til 16 þúsund
manns sem gerir sýninguna að
þeirri fjölsóttustu fram til þessa.
Sýningin var hin glæsilegasta og
lögðu sýnendur mikinn metnað í
að gera hana sem best úr garði.
Ýmsar keppnir voru einnig í gangi
og vöktu þær athygli gesta.
Tilgangur Local Food-
hátíðarinnar er að vekja athygli á
Norðurlandi og þeirri miklu mat-
vælaframleiðslu sem þar fer fram,
fjölbreyttu úrvali veitingastaða, mat-
armenningu og annarri framleiðslu
sem tengist matvælum.
Norðurland er stærsta mat-
vælaframleiðslusvæði landsins og
er sýningin því kjörinn vettvangur
fyrirtækja og einstaklinga í geiranum
til að vekja athygli á framleiðslu,
matarmenningu, matartengdri ferða-
þjónustu og verslun.
Aron Bjarni Davíðsson á Múla-
bergi fór með sigur af hólmi í keppni
meðal kokkanema. Þá öttu þeir Einar
Geirsson og Jónas Jóhannsson
kokkaeinvígi á hátíðinni sem margir
fylgdust grannt með. Áttu þeir félagar
að elda tveggja rétta máltíð á sextíu
mínútum. Ámundi Rögnvaldsson á
R5 bar var sigurvegari í kokteila-
keppninni sem einnig var efnt til.
Þórhildur Lilja
Einarsdóttir átti köku
ársins. Bás Kjarnafæðis
var valinn fallegasti
básinn, Segull 67 átti
frumlegasta básinn á
sýningunni og Langabúr
fékk frumkvöðlaverð-
laun ársins. /MÞÞ
Fullt var út úr dyrum á Local Food Festival sem haldin var á Akureyri um síðustu helgi. Á innfelldu myndinni er Jón Birgir Tómasson, matreiðslunemi á Bautanum, sem stóð sig einkar vel á
Myndir / MÞÞ
Bautans á Akureyri sló ekki slöku við á Local Food-hátíðinni, en gestir fengu
að bragða á bæði samlokum og hamborgurum frá fyrirtækinu.
-
ingunni Local Food í
Íþróttahöllinni, m.a. la
mbalæri
sem féll vel í kramið h
já gestum.
Guðni Hannes Guðmundsson
(hér til vinstri) sem á og rekur
verslunina Langabúr ásamt eig-
inkonu sinni Indu Björk Gunnars-
gefa gestum að smakka á ostinum,
kúluskít sem hann hefur búið til
og selur í verslun sinni. Langabúr
var opnað fyrir síðustu jól og þar
má m.a. nálgast eigin framleiðslu
Guðna sem er mjólkurfræðingur en
einnig er þar í boði varningur frá
-