Bændablaðið - 06.10.2016, Page 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2016
Jón er uppalinn á Sauðanesi
og Herdís kemur austan frá
Dalatanga. Í fjárskiptunum
1992–1994 tóku þau við búskap
af Trausta og Huldu, foreldrum
Jóns.
Á Sauðanesvita er vitagæsla
og veðurathugunarstöð. Einnig
er starf rækt hestaleiga og reið-
námskeið. Höfum einnig verið
fósturforeldrar í rúm 10 ár.
Býli: Sauðanes.
Staðsett í sveit: Við utanverðan
Siglufjörð að vestan.
Ábúendur: Jón Traustason, fædd-
ur 1965, og Herdís Erlendsdóttir,
fædd 1967.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Eigum þrjú börn: Hannibal Páll, f.
1994, jeppamaður, trillusjómað-
ur, verðandi bóndi o.fl., Jódís Ósk,
nemi
við MTR og starfsmaður hjá Olís
Ólafsfirði, og Hulda Ellý, nemi í
Hússtjórnarskólanum í Hallormsstað.
Tveir fóstursynir eru þeir Óðinn Þór
Jóhannsson, nemi í MTR og Aron
Eiríksson, nemi í grunnskóla
Fjallabyggðar á Siglufirði.
Stærð jarðar? Nær frá Herkonugili
að vestan og í mitt Strákafjall að
austan.
Gerð bús? Sauðfjárbú og hestaleiga.
Fjöldi búfjár og tegundir? 200
kindur, 25 hross, 2 smalahundar, 5
geitur, nokkrar landnámshænur og
10 endur – þar af 2 áhorfendur.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Fáir dagar algerlega alveg eins.
Gegningum að vetri er sinnt tvisvar
á dag. Einnig er hrossum haldið í
þjálfun og tamið svo til allt árið.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Margt gaman, þó sér-
lega sauðburðurinn og einnig göng-
ur og réttir að hausti. Leiðinlegast
hvað búskapinn varðar þegar liggur
í hvössum norðaustanáttum með
hríð í marga daga (þá er samt
gaman fyrir jeppamenn).
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm
ár? Trúlegast með svipuðu sniði
en vonandi með betri afkomuskil-
yrðum.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda? Innan stéttarinnar,
ágæta, en mættu hafa burði til að
geta beitt sér harðar út á við.
Hvernig mun íslenskum landbún-
aði vegna í framtíðinni? Erfitt að
spá fyrir um það á þessum óvissutím-
um. Þó vonandi að bændur, ráðamenn
landsins hverju sinni – og þjóðin í
heild – beri gæfu til að ná samstöðu
um nauðsyn þess að hér geti landbún-
aður þrifist á eðlilegum forsendum.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra búvara?
Ferðafólk sem hér kemur, víðs vegar
að úr heiminum, er svo til undan-
tekningalaust mjög áhugasamt um
íslenskar landbúnaðarafurðir. Það
fólk hrífst af þeirri víðáttu sem t.d.
sauðkindin býr við í sumarhögum
og tengir það við heilbrigði dýr-
anna. Samkvæmt því mætti ætla
að sóknarfærin séu víða en vitum
þó að talsverð vinna og kostnaður
fylgir kynningu afurða og kostar
tíma og fjármuni.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Svalasti maturinn á bænum. Mjólk,
ostur, smjör, lýsi, ávextir, grænmeti
– og stundum súrmatur, hákarl og
harðfiskur.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Heimagerð bjúgu,
fiski- og kjötbollur – og svo það
allra vinsælasta er siginn fiskur og
vel saltað selspik, ættað frá Pétri,
vini okkar í Ófeigsfirði á Ströndum.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Skemmtilegt, vel
heppnað og minnisstætt var þegar
vel tókst að venja hálfs mánaðar
gamalt lamb undir kind. Á meðan
ærin var að kara lambið á fullu, lá
lambið jórtrandi sprengsatt hjá ánni
og lét sér vel líka.
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Þrír einfaldir og góðir eftirréttir
Hér koma þrír einfaldir og góðir
eftirréttir þar sem bláber, súkkulaði
og möndlur eru í aðalhlutverki.
Púðursykurskaka með bláberjum
og íslenskum rjóma
Kannski einfaldasta og besta kakan
þegar haustið tekur yfir og líkaminn
kallar á eitthvað sætt. Þá er um leið
hægt að friða samviskuna með mein-
hollum bláberjum í bland við sykurinn.
› 5 dl eggjahvítur
› 5 dl púðursykur
› 1/2 msk. kartöflumjöl
› 1 peli rjómi (þeyttur)
› fullt af bláberjum (ekki er verra að þau
séu handtínd, annars bara úr búðinni)
Aðferð
Til að gera þessa gömlu og góðu
köku byrjum við á að hræra saman
öllu hráefninu í botninn; eggjahvítu,
púðursykri og kartöflumjöli – og svo
þeyta uns blandan verður loftkennd
og stinn. Bakað í tveimur lausbotna
formum í eina klukkustund við 100
gráður. Leggjum þær svo á hvolf á
kökudiska og tökum formin af, leyf-
um að kólna. Setjum svo saman með
bláberjum og þeytta rjómanum. Gott
er að strá smá súkkulaðispæni yfir og
loka svo með hinum botninum. Það
má svo skreyta með ögn af rjómanum
og berjum á toppinn.
Súkkulaðikaka („ Club Sandwich “)
› 300 g heil egg
› 90 g agave-síróp
› 150 g sykur
› 90 g hakkaðar möndlur
› 145 g hveiti
› 30 g kakóduft
› 10 g lyftiduft
› 145 g rjómi
› 165 g smjör
› 80 g dökkt súkkulaði
› sulta að eigin vali
Aðferð
Blandið eggjum og agave-sírópi
saman við sykurinn.
Bætið við hökkuðum möndlum og
sigtuðu hveiti með kakó- og lyftidufti.
Bætið við rjóma, smjöri og heitu
bræddu súkkulaði.
Möndlumulningur
› 140 g púðursykur
› 140 g hveiti
› 140 g hakkaðar möndlur
› 140 g smjör
Aðferð
Sigtið saman þurrefnin. Bætið köldu
smjöri við sem skorið er í teninga og
hrærið saman í hrærivél með spaða.
Hráefnið mun smám saman blandast
saman í deig.
Mótið í litlar kúlur eða litla kubba með
hníf. Sett til hliðar í kæli.
Bakið svo við 150–160 gráður þar til
mulningurinn er gullinn á lit.
Útbúið möndlumulninginn og setjið
200 g ofan á kökudeigið. Bakið við
160 gráður í um 10 mínútur.
Berjasulta. Dreifið 420 g yfir helming
súkkulaðikökunnar. Lokið með hinum
helmingnum af kökunni og þrýstið
varlega saman.
Frystið.
Skerið í 7 x 7cm þríhyrninga eins og
gert við bjórsamlokur.
Framreiðið með jarðarberjum.
Umbúðahugmynd
Setjið í samlokuumbúðir til gamans,
þá passar kakan beint í bakpokana í
haustgöngutúrana.
Kakómjólkurkrem með sykurpúð-
um og hindberjum
fyrir 6–8 skammta
Kakómjólkur-súkkulaðikrem
› 70 g kakómjólk
› 115 g rjómi
› 50 g eggjarauður
› 40 g sykur
› 165 g gott mjólkursúkkulaði
› 50 g vatn
› 10 g kakóduft
Aðferð
Koma rjómablandinu til suðu.
Blandið sykri og eggjarauðu saman.
Elda í potti við 85 °C (nota kjarnhita-
mæli fyrir kjöt).
Hellið yfir súkkulaði til að gera
súkkulaðikremið.
Hita upp vatnið og bætið kakódufti í,
þá bætið við súkkulaðikremið.
Gott að vinna saman með töfrasprota
og setja svo í glös í kæli.
Hvítsúkkulaði-sykurpúðar
› 40 g eggjahvítur
› 120 g sykur
› 24 g glúkósa; hunang eða agave-síróp
› 35 g vatn
› 5 g matarlím
› 25 g hvítt súkkulaði
Látið matarlím liggja í vatni í um
20 mínútur.
Elda sykur og vatn í 143 gráðum
(nota kjötmæli) og þá er matarlími
bætt í sykurblönduna.
Þeytið eggjahvítu og hellið sykri yfir
til að gera marengs.
Látið kólna við stofuhita. Bætið
bræddu hvítu súkkulaði yfir og spraut-
ið ofan á glasið. Skreytið með hind-
berjum.
Ef á að nota sykurpúðana í annað er
gott að setja þá á bakka og sigta yfir
50/50 af flórsykri og maísmjöli – þá
myndast húð utan um sykurpúðana.
MATARKRÓKURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI
Sauðanes
Súkkulaðikaka („Club Sandwich“).Púðursykurskaka með bláberjum og íslenskum rjóma.