Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.1979, Page 23
Gjöreyðing við Dmightgötu flestir farþegar
þotimnar fundust á þessum stað.
húsahverfi í um það bil 4 1/2 mílu fjarlægð
frá Lindberg flugvelli. Hundruð manna urðu
vitni að áfluginu, þar á meðal slökkviliðs-
menn, lögreglumenn, og sjúkraflutninga-
menn, sem þegar höfðu samband við
aðalstöðvar sínar og tilkynntu um slysið, en
vegna ýmissa villandi símaupplýsinga gátu
vaktmenn í fjarskiftastöðvum slökkviliðs og
lögreglu ekki strax gefið upp nákvæman
lendingarstað vélarinnar. Nokkrum sekúnd
am eftir áflugið fékk slökkviliðið vitneskju
um slysið í gegn um neiðarsíma frá
flugturninum, en vegna óvissu um lendingar
stað var beðið með útkall, eða þar til
slökkviliðsmenn sem voru í líkamsþjálfun í
um það bil 1 1/2 mílu fjarlægð frá slysstað
gáfu upp nákvæma staðarákvörðun.
Þegar fyrstu slökkviliðsbílarnir komu á
staðinn stóðu 12 hús í björtu báli, og fóru
slökkviliðsmenn beint í að reyna að bjarga
fólki út úr hinum brennandi húsum ásamt
því að verja nærliggjandi byggingar. Ymis
vandamál komu upp svo sem gaslekar,
brotnir rafmagnsstaurar, og flugvélahlutar
dreifðir yfír svæðið. Slökkviliðsmenn höfðu
að mestu ráðið niðurlögum eldanna einum
klukkutíma eftir slysið. Fyrsta húsið sem
vélin snerti a niðurleið skemmdist nokkuð,
en brann ekki, 7 hús í beinni lendingarlínu
þotunnar gjöreyddust. Heildartala
skemmdra og ónýtra húsa urðu 22.
í umræðum eftir þetta slys kom fram að
vegna fjölda látinna, en lítið um slasaða
reyndi lítið á þá hópslysareglugerð sem hafði
verið gerð fyrir þetta svæði, og þar sem
brotlending átti sér stað innan borgar-
markanna, voru það hópslysareglugerð
lögreglu og slökkviliðs ( sem óskild er þeirri
svæðisreglugerð sem um er rætt) sem var sett
í framkvæmd. Ef að margir hefðu komist af í
þessu slysi, og þur'ft á slysahjálp að halda, og
ef slysið hefði skeð utan borgarmarkanna
hefði sennilega sú svæðisreglugerð sem var í
gildi, ekki borið jafn góðan árangur. Stjórnun
umferðar í þessu neyðartilfelli var og
alvarlegt vandamál, þar sem slökkviliðs og
sjúkrabílar urðu fyrir töfum á leið á slysstað,
þrátt fyrir vel skipulagðar lögregluaðgerðir.
Erfiðleikar slökkviliðsins í að staðsetja hina
brennandi flugvél er eðlileg í slysi sem
tilkynnt er frá mörgum stöðum í einu.
Notkun á neiðarbylgju er nauðsynleg (þar er
sennilega átt við sameiginlega neiðarbylgju
lögreglu og slökkviliðs). Einnig var auðséð að
slökkviliðsmenn sem daglega fást við
slökkviliðsstörf, hafa þá kunnáttu og æfingu
sem nauðsynleg er í stórbrunum sem
þessum, þar sem slökkviliðsmenn þurfa að
vinna eftir eigin ákvörðun að mestu leyti án
stjórnar.
Stytt þýðing úr Fire Command
Feb 79
Vilhj. Sv. Arngrímsson
FISKIMJÖLSVERKSMIÐJAN
VESTMANNAEYJÚM
VINNSLUSTÖÐIN
VESTMANNAEYJUM
SLÖKKVILIÐSMAÐURINN
21