Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Blaðsíða 4

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Blaðsíða 4
árið 1989. Reyndin varð hins vegar sú að þegar á fyrsta ári laganna var framlag ríkisins skert og erfðafjársjóði, sem er annar helsti tekjustofn sjóðsins, hefur ekki ætíð verið skilað öllurn. Stjórn Öryrkjabandalags íslands hefurmarg- sinnis bent stjómvöldum á þessar vanefndir og krafist úrbóta. Undanfarin tvö árhefurreyndin orðið súaðframlag ríkisins hefur horfið og tekjur erfðafjársjóðs hafa einar runnið í Framkvæmdasjóð. I ár nema fjárveitingar til sjóðsins rúmum 200 milljónum eða nokkurn veginn því sem samsvarar tekjum Erfðafjársjóðs. Lögbundið framlag ríkisins ætti auk þess að nema um 300 milljónum króna samkvæmt framreikningi Seðlabankans svo að innan við helmingurteknaFramkvæmdasjóðs fatlaðrakemsttil skila. Sumir telja sig þurfa að hafa uppi lagaþrætur um gildi ákvæðisins um fjárframlag ríkisins og halda því fram að ákvæðið hafi í raun og veru verið numið sjálfkrafa úr gildi að 5 árum liðnum. En þar sem lögin hafa ekki verið formlega endurskoðuð hljóta ákvæðin um framlag ríkisins enn að vera í gildi. Þessi óorðheldni stjómvalda hefur seinkað mjög nauðsynlegum framkvæmdum í málaflokknum. Nú horfir þó væntanlega til þess að gert verði átak í húsnæðismálum fatlaðra, en sérstök nefnd hefur verið starfandi á vegum Öryrkjabandalagsins, Þroskahjálpar og Félagsmálaráðu- neytisins til þess að kanna á hvern hátt sé hægt að bæta úr brýnni þörf fyrir íbúðarhúsnæði. Bendir flest til þess að veitt verði fé úr almenna húsnæðislánakerfinu til bygginga íbúða fyrir fatlaða, skilgreiningu þess og hugsanlega fjármögnun. Má vænta þess að tillögur þessar geti orðið til að leysa vanda hluta þeirrar einstaklinga sem hafa verið á neyðarlista undanfarin ár. Hitt er hins vegar verra að framkvæmdaáætlun sú, sem samtök fatlaðra hafa krafist undanfarin þrjú ár og ákvæði hafa verið um í stjómarsáttmála tveggja ríkis- stjóma, sér vart dagsins ljós á næstu mánuðum. Má þar ýmsu um kenna. Samtök fatlaðra áttu ekki aðild að undir- búningi áætlunarinnar sem felur ekki í sér neina heildar- könnun á þjónustuþörf fatlaðra heldur fyrst og fremst ákveðinn grunn sem talið er að hægt verði að byggja á þegar áætlunin verður gerð. Öryrkjabandalag Islands hlýtur að krefja stjórnvöld skýringa á þeim vinnubrögðum sem viðhöfð hafa verið í þessu máli. Því hefur verið borið við að erfiðleikar í samskiptum tryggingayfirlæknis og yfirlæknis Greiningarstöðvar rfkisins hafi tafið málið. Það er einungis örlítill hluti skýringarinnar. Ekkert samráð var haft við samtök fatlaðra um hvemig staðið skyldi að undirbúningi áætlunarinnar og því kann að fara svo að einhverjir hópar fatlaðra lendi þar utangarðs og verði ekki teknir með í þeim áætlunum sem gerðar verða. Við endurskoðun laga um málefni fatlaðra verður að herða á ýmsum ákvæðum frá því sem nú er. Auðvelda verður fötluðum að hasla sér völ 1 á almennum vinnumarkaði og taka verður mið af þeirri þróun sem hefur orðið í ná- grannalöndum vorum á þessu sviði. Þar má nefna ákvæði um að fatlað fólk öðlist rétt til að ráða sér aðstoðarfólk í hlutastarf eftir því hvemig þörf fyrir slíka aðstoð er metin. Þá er og nauðsynlegt að samræma lögin lagabálkum eins og félagsmálalöggjöf og tryggingalöggjöfinni. Frumvarp að heildarlöggjöf um félagslega þjónustu hefur verið til umfjöllunar undanfarin tvö ár og eru þar ákvæði um skyldur sveitarfélaga til þess að inna af hendi þjónustu við fatlaða. Þá hefur verið unnið að endurskoðun trygginga- löggjafarinnar frá því að þessi ríkisstjórn, sem nú situr, var mynduð og hefur það starf gengið hægar en skyldi. Það skiptir öllu að endurskoðun laga um málefni fatlaðra fari saman við samþykkt nýrrar félagsmálalöggjafar og endur- skoðun tryggingalaga. Annars er hætt við að lögin verði hvorki fugl né fiskur og breyti í litlu því ástandi sem enn varir í þessum málaflokki. Stjórnsýsluþátturlagannahefurmjögveriðgagnrýndur. Telja ýmsir að svæðisstjórnir hafi ekki valdið hlutverki sínu og hefur jafnvel verið haft á orði að óeðlilegt sé að búa til þriðja stjómsýslustigið í málefnum fatlaðra úr því að það fyrirfinnst ekki í sveitarstjórnarlögum. Innan nefnd- arinnar komu fram ýmsar hugmyndir um skipan svæðis- stjórna og stjórnarnefndar. Svæðaskiptingin var rædd ítarlega og veltu menn vöngum yfir því hvort smærri svæði gætu fært þjónustu við fatlaða nær sveitarfélögunum. í þessu sambandi má benda á gagnrýni ýmissa sveitarstjórn- armanna og málsvara fatlaðra sem halda því fram að nú- gildandi lög hafi í raun verkað letjandi fyrir sveitarfélög að taka frumkvæði í málefnum fatlaðra. Með setningu síðustu sveitarstjórnarlaga tóku gildi skýr ákvæði um verkaskipt- ingu ríkis og sveitarfélaga. Þar er því svo fyrir komið að málefni fatlaðra eru alfarið kostuð af ríkinu. Hætt er við að þessi ákvæði geti verkað í þá átt að leitað verði sérstakra úrræða í þjónustu við fatlaða í stað þess að gera þeim kleift að njóta þeirrar þjónustu sem sveitarfélögin bjóða íbúum sínum. Þrátt fyrir þessi ákvæði færist í vöxt að fatlaðir leiti til félagsmálastofnana sem veita þeim almenna þjónustu. Nokkurt fylgi er í nefndinni við nýja skipan í stjórn- sýslumálum. Þar er gert ráð fyrir því að framkvæmdastjórar svæðisstjórna verði starfsmenn félagsmálaráðuneytisins og dregið er mjög úr vægi svæðisstjórnanna. Hér skal ekki fjölyrt um skipulag það sem hugmyndir eru uppi um, en samtök fatlaðra hljóta að vera á verði ef á að rýra áhrif þeirra í þessum málaflokki. Því hefur verið haldið fram að óheppilegt sé að fulltrúar fatlaðra sitji í nefndum og stjómum sem um mál þeirra fjalla. Því er til að svara að þrátt fyrir framfarir í þessum málaflokki verða samtök fatlaðra að heyja varnarbaráttu til þess að halda þeim réttindum sem fatlaðir hafa áunnið sér og vekja athygli stjómvalda og almennings á hagsmunum þeirra eftir því sem þróun samfélagsins vindur fram. Lög sem kvæðu á um sértæka þjónustu við fatlaða, sem stjórnað væri af sérstökum embættismönnum, sem hefðu öll ráð samtaka fatlaðra í hendi sér, væri svipað rothögg á það starf sem unnið er innan samtaka fatlaðra og það yrði ef Vinnu- veitendasambandinu yrðu afhent lyklavöld að verkalýðs- hreyfingunni. Þróunin í málefnum fatlaðra verður því aðeins markviss að áhrif fatlaðra á stjórn mála sinna verði tryggð. Þess vegna ber að varast vald embættismanna. Samstarf og samtakamáttur skilar oss áleiðis en væringar og valdboð þoka oss aftur á bak. Arnþór Helgason formaður stjórnar Öryrkjabandalags íslands. 4

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.