Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Blaðsíða 20

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Blaðsíða 20
Dora S. Bjarnason lektor: FRÁ SJÓNARHÓLI MÓÐUR Benedikt Hákon í Æfingaskóla K.H.Í. Eg hef í ár sem endranær fært dagbók yfir það helsta sem drifið hefur á daga Benedikts í vetur. Dregið hefur úr heimsóknum bekkjarsystraBenedikts.Tværþessara telpna, sem voru tíðir gestir hjá Benedikt í fyrravetur, hafa flust úr nágrenni okkar og sú þriðja úr landi. Hins vegar hafa nýir félagar komið í staðinn. Sú venja komst á í haust að bekkj- arsystkini Benedikts fylgdu honum úr skólanum til mín í Kennaraháskólann. Þetta er stuttur spölur en getur orðið illur yfirferðar í rysjóttum veðrum. Samkvæmt dagbók hafa samtals fimmtán börn stutt son minn þennan stutta spöl, þar af fjórar stúlkur úr bekk Lilju. Fjórir drengir, bekkjar- bræður Benedikts, hafa annast þetta mest. Stundum fylgja þeir allir og stundum tveir og tveir. Þeir skilja ekki við Benediktfyrren þeirhafahitt mig eða komið honum í öruggar hendur samkennara minna. Fimmti skóla- bróðirinn slæst stundum í hópinn til þess að fá far með okkur, því hann er nágranni okkar. Þessi drengur kom fyrst í bekkinn í haust og hefur átt erfitt með að samlagast félagahópnum. Vinimir fjórir eiga það til að snupra þennan nágranna okkar en hann man síður eftir því en þeir að Benedikt þarf hjálp. Drengimir fjórir hafa aldrei skilið nágranna okkar eftir einan með syni mínum. Drengirnir fjórir eru vinir Benedikts. Vinátta milli svo ólíkra bama er fágæt og afrakstur vand- aðrar vinnu kennaranna. Drengimir hafa gert mér kleift að fylgjast náið með því markverðasta í lífi bekkjarins í vetur. Þeir segja mér daglega skemmtilegar sögur, af sjálfum sér, Benedikt og öðrum í bekknum. Þeir láta mig líka vita ef þeir telja að eitt- h vað hafi gengið úrskeiðis í skólanum. Þeir minna mig á frídaga og breytingar á stundatöflu. Þá áminna þeir mig ef Benedikt er ekki klæddur á viðeigandi hátt t.d. í leikfimi. Þeir bentu mér var- Dóra S. Bjarnason. færnislega á að skólanesti Benedikts væri helst til ríflegt og það þætti „asnalegt". Loks hafa þeir oftar en einu sinni komið með uppástungur um eitt og annað smálegt en nauðsyn- legt dót sem hentar syni mínum og hæfir aldri hans. Drengirnir hafa heimsótt Benedikt reglulega flesta föstudaga frá því í október. Mér tókst að hagræða vinnu minni á þann hátt að ég komst heim um 3:30 þá daga ti I þess að taka á móti þeim. Fyrstu reglulegu heimsóknirnar tengdust fiskabúri. Þann 20. október sögðu drengimir mér að Benedikt þyrfti að eignast gæludýr, og töldu þeir fiska heppilega. Þá buðust þeir til að hjálpa okkur við kaupin. Ég tók þessu vel og það varð að ráði að þeir kæmu og hjálpuðu Benedikt við þessa fjárfestingu um mánaðamótin október/ nóvember. Þannig vildi það til að þann 1. nóvember var ég stödd ásamt drengjunum fimm í Gullfiskabúðinni. Þar grandskoðuðu þeir alla fiska og búr verslunarinnar og skeggræddu verð og gæði. Loks komu þeir sér saman um búr af „réttri“ stærð og í hæfilegum verðflokki og völdu síðan tvo fiska hver. Syni mínum varð það á að benda á dýrasta fiskinn í búðinni þegar röðin kom að honum að velja. Þetta þótti þeim félögum óskynsam- legt og útskýrðu vendilega ókosti „dýra“ fisksins fyrir Benedikt. Síðan „hjálpuðu“ þeir honum að gera betri kaup. Drengirnir komu svo heim með okkur, settu upp búrið og kenndu Benedikt að fóðra fiskana. Það tókst vel og hefur hann enn það starf með höndum. Eftir þetta komu þeir félagar reglu- lega í heimsókn, fyrst til að hafa eftirlit með fiskunum. Þessar stundir hafa reynst okkur öllum dýrmætar. Stundum leika drengimir sér inni við. Þá láta þeir pappaflugvél fljúga á milli sín, fela hluti, fara í „klukkleik“, felu- leik, boltaleik o.fl. Þeir skemmta sér allir konunglega við þessa iðju ef dæma má af gleðihlátrum og brosandi andlitum. Þetta eru sælustundir sonar míns, enda eru drengimir útsjónar- samir að sveigja leiki sína þannig að Benedikt geti (með hjálp þeirra) verið með. I „klukkleiknum“ sem er ærsla- fullur eltingaleikur skiptast þeir um að leiða Benedikt. Sá sem það gerir gætir þess vandlega að hlaupa aldrei hraðar en svo að Benedikt haldi jafn- vægi. Ef Benedikt á að elta félaga sína og „klukka“ í þá, hjálpa þeir honum til þess, grípa um hendi hans og stýra henni svo hann geti danglað í næsta mann. Þeir eiga það til að stöðva leik- inn og útskýrareglumarfyrirBenedikt og æfa hann nokkrum sinnum í að „klukka." S uma föstudaga horfa þeir á my nd- bönd. Ég fæ venjulega óskir um titla slíkra myndbanda fyrirfram. Þær uppástungur taka alltaf mið af því hvort myndin sé líkleg til að höfða til Benedikts ekki síður en til þeirra sjálfra. Þann 30. mars síðastliðinn var Benedikt veikur heima, með hálsbólgu og hita. Ég afboðaði því heimsókn þann dag. Samtkomutveirdrengjanna á skrifstofu mína eftir skóla til að spyrja um heilsu Benedikts og láta mig vita að þeir væru ekki hræddir um að smitast. Þegar þeim varð ljóst að ég taldi það ekki ráðlegt bentu þeir mér á að taka á leigu myndbandið „Pétur og Drekinn“. „Manni leiðist svo þegar maður er veikur og þú veist að Benna finnst mest gaman af myndum sem 20

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.