Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Blaðsíða 31

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Blaðsíða 31
Ragnar R. Magnússon formaður Blindrafélagsins: Aðalfundur Blindrafélagsins 1990 Aðalfundur Blindrafélagsins var haldinn 3. maí sl. í húsakynnum fé- lagsins að Hamrahlíð 17 í Reykjavík. f upphafi fundarins var minnst látinna aðalfélaga Blindrafélagsins, tveggja heiðursfélaga þess, þeirra Steinunnar Ögmundsdóttur og Elísa- betar Þórðardóttur, auk handhafa Gulllampa Blindrafélagsins, Odds Ólafssonar. Þá varhópurblindraog sjónskertra samþykktur sem aðalfélagar Blindra- félagsins með lófataki. Því næst flutti formaður félagsins skýrslu stjómarinnar. í fyrsta lagi gat hann um 50 ára afmælishátíð félagsins sem varhaldin 19. ágúst 1989. Greindi hann jafnframt frá félagsfundi og ráðstefnu sem félagið hélt á starfsárinu. í öðru lagi gat hann um mikið viðhald á fasteign félagsins, fjármálin þar sem hann ræddi um happdrætti, gjafir, styrki frá opinberum aðilum til Blindrafélagins og Blindravinnustof- unnar og fyrirhugað sambýli fyrir blinda og sjónskerta. I þriðja lagi ræddi formaðurfélags- málastarfið sem of langt mál er að tíunda hér, en þess má geta að tvö veigamikil mál eru í undirbúningi. Annað þeirra er að koma upp sambýli fyrir blinda og sjónskerta sem þurfa nauðsynlega að fá slíkt heimili sem allra fyrst. Hitt málið er þátttaka Blindrafélagsins í stofnun félags ásamt öðrum aðilum til þess aðbyggjahjúkr- unarheimili fyrir aldraða auk sérhann- aðs aðbúnaðar og þjónustu fyrir aldr- aða og sjúka blinda og sjónskerta. Lítur vel út um framgang þessara mála. f fjórða lagi var gerð grein fyrir útgáfustarfsemi félagsins, s.s. tímarit- inu Valdar greinar og starfsemi hljóð- bókagerðarinnar. Auk þess er nú hafin athugun á útgáfu dagblaðs eða úrdrátta úr dagblöðum á þeim miðlum sem blindir og sjónskertir gefa hagnýtt sér. f fimmta lagi sagði formaður frá erlendum samskiptum. Hér var helst um að ræða norræna fundi og Ragnar R. Magnússon. ráðstefnur. Á þeim vettvangi er gjarn- an rætt um ýmis samstarfsverkefni og framtíðaráform blindrasamtakanna. Auk þess voru rædd ýmis sérafmörkuð málefni blindra og sjónskertra og nor- rænu samtakanna í heild. Það er ástæða að geta þess hér að fulltrúa frá Blindrafélaginu var boðið að taka þátt í 100 ára afmælishátíð sænsku blindrasamtakanna þann 21. september sl. Þar næst voru fluttar aðrar skýrslur. I skýrslum Blindravinnustofu og Körfugerðar kom fram að reksturinn var álíka umfangsmikill og árið áður, en nú voru framleiddir rúmlega 155 þúsund burstar. í skýrslu Hljóðbókagerðar var sagt frá framleiðslu hljóðtímarits félagsins, útgáfu tveggja hljóðbóka á snældum sem eru seldar á almennum markaði, auk framleiðslu fyrir ýmsa aðra aðila. Skýrslablindraráðgjafafjallaðium félagslega þjónustu við blinda og sjón- skerta, sem ráðgjafinn tók þátt í. Skýrslur skemmtinefndar, tóm- stundanefndar, æskulýðsnefndar og félagsmálanefndar á Akureyri vitnuðu um all öfluga félagsstarfsemi fyrir blinda og sjónskerta á öllum aldri, fjölskyldur þeirra og vini. Framkvæmdastjóri Blindrafé- lagsins ræddi síðan um ýmis framtíðarverkefni sem eru í gangi um þessar mundir s.s. fjáröflun fyrir fé- lagið, fullkomið brunavarnakerfi sem tengist Slökkvistöð Reykjavíkur, og verið er að setja upp í húsakynnum félagsins að Hamrahlíð 17, vanda blindra og sjónskertra ungmenna í húsnæðismálum, auk verkefnis fyrir aldraða og sjúka blinda og sjónskerta, svo einhver dæmi séu tekin. Þá voru lesnir upp reikningar Blindrafélagsins, Blindravinnu- stofunnar, Hljóðbókagerðar, Körfu- gerðar og Námssjóðs. í þeim kom fram að velta Blindrafélagsins og dótt- urfyrirtækja þess árið 1989 var tæplega 80 milljónir króna. Er spurningum hafði verið svarað voru reikningamir bornir upp og samþykktir samhljóða. Því næst fór fram kjör fimm manna í stjóm Blindrafélagsins og fimm mannatil vara. Allirfráfarandi stjórn- ar- og varamenn gáfu kost á sér til endurkjörs. Engin mótframboð bárust og því var stjóm og varastjórn sjálf- kjörin. Stjórn Blindrafélagsins er þannig skipuð: Ragnar R. Magnússon for- maður, Sverrir Karlsson varaformað- ur, Ágústa Gunnarsdóttir og Gréta Haraldsdóttir ritarar og Gísli Helgason gjaldkeri. Varamenn eru: Arnheiður Bjöms- dóttir, Ásrún Hauksdóttir, Guðmundur Stefánsson, Ásgerður Ólafsdóttir og Bessi Gíslason. Halldór S. Rafnar er framkvæmda- stjóri samtakanna. Undir lok fundarins var kosið í stjórnir og nefndir á vegum félagsins, auk þess sem félagsgjald var ákveðið. Að lokum voru ýmis mál rædd en síðan var fundi slitið. Eg hef nú rakið hér störf aðalfundar Blindrafélagsins í mjög grófum drátt- um og í nafni stjórnarinnar, sendi ég öllum lesendum blaðsins bestu kveðj- ur. Ragnar R. Magnússon. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 31

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.