Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Blaðsíða 26

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Blaðsíða 26
örvar hendumar, það fer í sj úkraþjálfun hjá sjúkraþjálfara og svo er farið í sund tvisvar í viku í Grensássund- laugina og hefur það verið mjög vel sótt, þar sem allir em sammála um, að það sé mjög styrkjandi. Hvaða áhrif hefur MS- sjúkdómurinn á líf fólks? Afleiðingar MS-sjúkdómsins snerta ekki einungis sjúklinginn sjálfan, heldur líka fjölskyldu hans og vini. Það er því mikilvægt hvemig aðstandendur sjúklingsins bregðast við þeim vanda sem sjúkdómurinn hefur í för með sér. Þá er líka mikil vægt í því sambandi, að gera sér grein fyrir því að MS-sjúklingur er einstaklingur sem er ekki ástæða til að líta á sem frábrugðinn öðru fólki. Oft kemur fyrir að þunglyndi grípur fólk með MS-sjúkdóminn. Astæður geta eflaust verið margar, enda herjar sjúkdómurinn á ungt fólk á aldrinum 20—45 ára, þ.e. fólk sem vill skemmta sér og njóta lífsins, fólk sem stendur í barneignum og uppeldi og í húsbyggingu, fólk sem er að mennta sig og hasla sér völl í þjóð- félaginu. Framtíð MS-sjúklingsins stendur því á völtum fótum og eðlilegt er að óöryggis og áhyggja gæti hjá þeim. Y miss konar félagsleg vandamál geta líka komið upp meðal MS-sjúklinga, og kemur þá oft í hlut félagsráðgjafa, ásamt fjölskyldu að greiða úr þeim. Sem dæmi má nefna: Vinnuaðstöðu, samgöngur, breytingar á húsnæði, ráðleggingar um einkamál, fjárhags- legt öryggi og upplýsingar og ráð- leggingar fyrir fjölskylduna. Frásagnir MS-sjúklinga: Sigurbjörg segir: Ég er40 árahús- móðir og bý í Reykjavík ásamt eiginmanni og einu bami. Ég byrjaði í Kvennaskólanum, en varð því miður að hætta, þegar sjúkdómurinn gerði vart við sig. Ég var einnig mikið í íþróttum, en það varð einnig að lúta í lægra haldi fyrir hinum mikla vágesti. Síðan bráði af mér og ég fór út í verslunarrekstur um nokkurn tíma, en þurfti svo einnig að hætta því, og er nú heimavinnandi húsmóðir. Guðni Vignir segir: Ég er 30 ára og er fæddur í Bolungarvík. Ég lauk skyldunámi og fór síðan að vinna verkamannavinnu, en varð að hætta alltof fljótt því að sjúkdómurinn sagði til sín þegar ég var 19 ára. I vetur hef ég verið í Starfsþjálfun fatlaðra, skóla sem á afar vel við mig. Nú bý ég í íbúð sem mér var útveguð hjá Öryrkja- bandalagi Islands, og uni hag mínum vel. Ég er í hjólastól, en svo á ég líka bíl. Selma segir: Ég er 55 ára húsmóðir og ritari í Reykjavík. Ég hef verið með MS-sjúkdóminn í 30 ár. Ég fór í söngskóla og síðan til Italíu og ætlaði að verða fræg, en þegar ég kom heim aftur veiktist ég, og var lögð inn á sjúkrahús þar sem ég var úrskurðuð með MS. En ég lét ekki bugast og hélt áfram að syngja í kórum eins og áður, og svo í hálfu starfi sem ritari. Eins og þessi stuttu viðtöl gefa til kynna, þá þýðir ekki að örvænta, því að lífið heldur áfram. Lokaorð Með þessari ritgerð vil ég opna augu fólks fyrir sjúkdómnum Multiple Sclerosis, og vona ég að hún hvetji lesendur til þess að forvitnast meira um þennan vágest sem herjar á ungt fólk. Ef fólk vissi almennt meira um þennan sjúkdóm þá er ég viss um að sjálfsöryggi sjúklingsins myndi aukast. T.d. þar sem sjúklingurinn hefur ekki fullkomið jafnvægi og er þvoglumæltur, gætu margir haldið að hann væri blindfullur að gera helgar- innkaup og ég tala nú ekki um, ef hann ætlarí „ríkið“. Það verkarekki jákvætt á siðferðiskennd fólks. Ef lesandi vill nálgast frekari upplýsingar um Multiple Sclerosis vil ég benda honum á MS-félag íslands Álandi 13, sími 688620. (Heimildir hafa að miklu leyti verið fengnar úr afmælisriti MS-félags Islands sem kom út 1988). Margréti er þökkuð liðveizlan við Fréttabréfið. HLERAÐ í HORNUM Bóndakona ein, fljótfær mjög, var sögð eiga vingott við mann í sveitinni, er gekk undir nafninu Grímur grái. Eitt sinn að morgunlagi, þegar bóndi hennar var nýkominn úr næturferðalagi, kemur ungur sonur þeirra hjóna askvaðandi og segir: „Pabbi, pabbi, það var ókunnugur maður uppi í rúmi hjá mömmu í nótt“. Þá var móðirin skjót til svara: „Hvaða bölvuð vitleysa. Það var bara hann Grímur grái“. * Karl einn var að greina frá því í vinnunni, þegar mikið var að gera, að hann hefði hringt í konu sína og sagðist svo frá: „Nú ég sagðist verða að vinna í allt kvöld, alla nótt og líklega allan morgundaginn og kæmi ekkert heim“. „Og hvað sagði konan ísímann“? spurðu menn. „Húnhristi barahausinn'ý sagði karl. * I miðri B.H.M.R. deilunni á sl. sumri á kunnur verkalýðstogi að hafa sagt: Mér finnst það sanngjarnt fyrst Fylkingin hefur ráðið B.H.M.R. í tvö ár þá fái Vottar Jehóva að ráða næstu tvö ár. * Ungur glaumgosi fór til læknis að aflokinni helgarskemmtan góðri til að fá eitthvað við hræðilegri hæsi, sem hrjáði hann. Hann hringdi dyrabjöllunni og unga læknisfrúin kom til dyra: Hann hvíslaði hásum rómi. „Er læknirinn heima?“ Frúin svaraði honum í sömu tóntegund: „Nei, komdu bara inn fyrir“. * I fundarbyrjun virðulegrar samkundu hér í borg kom settlegur þingmaður síðastur og settist í stól við hlið heldur lágvaxinnarkonu. Stólarnireruþeirrar náttúru að hægt er að hækka þá eða lækka að vild. Sem þingmaðurinn sezt nú í stólinn kemur í ljós að hann nær konunni rúmlega í öxl. Fer hann nú að baksa og brasa við að hækka stólinn, allir fylgjast grannt með, en ekkert gengur. Þá blöskrar konunni og hún segir býsna háum rómi: „Lyftu bara rassinum upp maður, þá rís hann“. 26

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.