Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Blaðsíða 23

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Blaðsíða 23
AF S TJÓRNARVETTVANGI Síðasti stjórnarfundur fyrir sumarleyfi var að því leyti sérstakur, að fundarstaður var Viðeyjarstofa, en það hafði löngu verið ákveðið, að einhvem tímann skyldi farið út í Viðey til hátíðabrigða. Skyldi þá að því stefnt einnig, að fólk gæti gert sér nokkum dagamun. Var svo gert, því að afloknum stjómarstörfum var sezt að snæðingi og vom þar einnig mættir makar og gestir stjórnarmanna svo og starfsfólk Öryrkjabanda- lagsins og makar þess. Nutu menn ríkulegra rétta og var Arinbjörn Kol- beinsson veizlu- stjóri vor með sóma og sann og orðið gefið laust til ánægjuauka, því ekki mátti flytja nema skemmtiræð- ur. En á stjórnar- fundinum var þetta helzt tekið fyrir: Ákveðið var að hækka árlegt framlag til Bréfaskólans úr 100 þús. í 115 þús. Fram kom að nemendur skólans á síðasta starfsári voru alls 932. í fulltrúaráð af hálfu Öryrkja- bandalagsins voru kjörin: Arnþór Helgason, Ásgerður Ingimarsdóttir og Jóna Sveinsdóttir. Stjómarmaður er Arnþór Helgason. Nokkrar umræður urðu um erindi frá Borgfirðingum um hugsanlega endurhæfingarstöð þar efra og möguleika Ö.B.Í. á að koma að því máli. Sömuleiðis um erindi frá Glit h.f. þar sem uppi eru tillögur um vemdaðan vinnustað, sem Ö.B.I. ætti hugsanlega aðild að. Starfsnefndir voru settar í bæði þessi mál til nánari athugunar þeirra. Rætt var átaksverkefni með Þjóð- kirkjunni varðandi æskulýðsstarf meðal fatlaðra og jákvæð afstaða til þess ákveðin með Helga Hróðmarsson sem tengilið. Sömuleiðis fóru fram miklar umræður um hugsanlegt leikfélag fatlaðra, en kanna skal hvort F.U.I., Fötluð ungmenni á Islandi tækju þetta ekki að sér sem verðugt verkefni m.a. til þess, ef verða mætti til að hleypa nokkru lífi í þann ágæta félagsskap. Þá var ákveðið að aðalfundur Öryrkjabandalagsins yrði á tímanum 12.—15. októberíhaust. Atvinnumál fatlaðra yrðu aðalmál fundarins og frummælendur m.a. fengnir úr röðum atvinnurekenda. Frá stjórnarfundi í Viðey. Fulltrúar á aðalfund Tölvumið- stöðvar fatlaðra voru tilnefnd: Hafdís Hannesdóttir, Ólöf Ríkarðsdóttir og Arnþór Helgason. Á næsta ári er Öryrkjabandalag íslands 30 ára og verður þess minnzt með ýmsum hætti. Sérstök afmæl- isnefnd var kjörin og skipa hana: Anna Ingvarsdóttir, Arnþór Helgason, Ásgerður Ingimarsdóttir, Hafliði Hjartarson og Helgi Seljan. Þá var samþykkt eftirfarandi ályktun vegna meðferðarheimilis fyrir einhverfa að Sæbraut 2 á Sel- tjarnamesi: Stjóm Öryrkjabandalags íslands hefur fylgst með þeim atburðum sem orðið hafa í samskiptum íbúa og starfsfólks Meðferðarheimilisins að Sæbraut 2 Seltjamamesi og nágranna þess. Stjórnin lýsir áhyggjum sínum vegna þeirra samskiptaörðugleika sem orðið hafa og lýsir sig reiðubúna til þess að aðstoða við að leita lausna á þeim deilum sem upp eru komnar vegna starfsemi heimilisins. Jafnframt skorar stjórn Öryrkja- bandalags Islands á bæjarstjórn Sel- tjarnamess að beita sér fyrir sáttum í þessu máli. Bendir stjómin á eftirfar- andi atriði í þessu sambandi: 1) Starfsemi heimilisins verði tekin út og ráðin bót á þeim ágöllum sem kunna að vera á rekstri heimilisins. 2) Leitast verði við að fræða ná- granna heimil- isins um mikil- vægi starfsem- innar fyrir íbúa þess. 3) Bæjarstjórn skipi sérstakan sáttasemjara tilað fara með þessi mál. Þess sé jafn- framt gætt að ákvarðanir um framtíð og skipu- lag heimilisins verði teknar í nánu samráði við báða aðila málsins. Stjóm Öryrkjabandalags Islands bendir á að fatlaðir einstaklingar eiga jafnan rétt og aðrir á því að búa í almennum fbúðahverfum og njóta þeirrar þjónustu sem almenningi stendur til boða. Stjórnin álítur að með samstilltu átaki og fræðslu sé unnt að haga málum svo að ekki komi til árekstra vegna starfsemi í þágu fatlaðra. Þess skal svo getið að stjórnar- fundur var hinn 26. sept. þar sem hin margvíslegustu mál voru til umfjöll- unar, sem safnast höfðu saman frá sumrinu.Þarvarmeginefniðaðalfund- urinn og ráðstefnan sem Ásgerður greinir glögglega frá annars staðar. Þessum stjórnarfundi sem og öðrum verða gerð góð skil í næsta Fréttabréfi, en fjölbreytni mála og fjöldi á hverjum fundi gefa góða hugmynd um hið síaukna umfang allrar starfseminnar. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 23

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.