Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Blaðsíða 25

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Blaðsíða 25
skoðun kemur fram skert eða jafnvel aukið sársauka- og snertiskyn á sama svæði. Flestir læknar láta ekki skoðun í ljós fyrr en örugg vissa er fyrir hendi til þess að valda ekki óþarfa óróa, en það getur liðið nokkuð langur tími unz sú vissa liggur fyrir. Allflestir vilja að lokum fá skýringu á þeim ein- kennum sem þeir hafa haft. Fyrir margaersjúkdómsgreining MS mikið áfall, þeirfinnatil mikils ótta, reiði og gráts, slíkar tilfinningar eru eðlilegar, en það hjálpar að ræða við einhvern, t.d. lækni, fjölskyldu, vini eða prest. Orsök Orsökin er óþekkt, en helst er talið að um sjálfsónæmissjúkdóm sé að ræða (þ.e. ónæmiskerfi líkamans ráðist gegn honum sjálfum) sennilega fyrir tilverknað hæggengrar veirusýkingar. Eins og fram hefur komið herjar sjúk- dómurinn á miðtaugakerfið og veldur skemmdum á „myelin“slíðri. Hvað veldur þessum skemmdum? Þessari spumingu hafa margir reynt að svara og ýmsar kenningar og tilgátur hafa verið settar fram svo sem umhverfis- þættir, mataræði, sýklar, veðurfar, geislar, umhverfissjúkdómar eða að um arfgenga eiginleika væri að ræða. Ekkert af þessu hefur tekist að sanna. Arfgengi Vissulega er það rétt að MS er ekki arfgengur sjúkdómur í hinum hefðbundna skilningi. Þá er við það átt að sjúkdómurinn erfist ekki eftir hinum „klassísku" erfðalögmálum „MENDEL“, hvorki sem ríkjandi eða víkjandi eiginleiki. Margir slíkir taugasjúkdómar eru til, en MS er ekki Glatt á hjalla á MS-heimilinu. einn þeirra. I flestum faraldsfræði- legum rannsóknum er ættgengi talið vera á bilinu 10—20%, en það sem þetta þýðir í raun, er að 10—20 af hundraði MS-sjúklinga, eiga násky lda ættingja með MS. Lang oftast er aðeins um einn ættingja að ræða, þannig að í stórum fjölskyldum eru stundum bara tveirMS-sjúklingar. Með erfðiríhuga eru niðurstöður af rannsóknum á tvíburum (MS-sjúklinga) athyglis- verðar. I ljós kemur, að aðeins þriðj- ungur til helmingur beggja eineggja tvíbura reyndust fá MS, þótt í þessum tilvikum sé endurritað erfðafar MS- sjúklinga. Hjá tvíeggja tvíburum eru tölurnar miklu lægri enda arfgerð þeirra eða erfðafar ekki líkara en ann- arra náinna skyldmenna. MS hefur því verið að finna hjá aðeins 2% tvíeggja tvíbura, en þó allt að 20% þeirra, misjafnt eftir uppgjörum. Vissulega sýna tvíburarannsóknir og niðurstöður þeirra óyggjandi að erfðaþættir hafa áhrif á það hvort einstaklingur fái MS. Vitað er um tvíbura vestur á fjörðum, þar sem annar þeirra er með MS, en ekki hinn. Sjúkra- og iðjuþjálfun Aðalmarkmið sjúkra- og iðju- þjálfunar við MS er að viðhalda eða aukahreyfigetu og styrkja sjúklinginn jafnt líkamlega og andlega, þannig að viðkomandi geti lifað sem eðlilegustu lífi. Þetta markmið sem stefnt er stöðugt að, getur tekið langan tíma, þannig að með ýmsum æfingum er reynt að styrkja hina ýmsu líkams- hluta, með því að draga úr ósjálfráðum hreyfingum, hindra kreppur í liðum og styttingar í vöðvum, bæta jafnvægi og samhæfa hug og hönd. Aður en sjálf meðferðin hefst, er lagt mat á sjúklinginn þ.e. mat á styrkleika vöðva, samhæfingu hreyfinga, hreyfiferil liðamóta, þoli, tilfinningu, jafnvægi, sjónsviði, og að lokum verklegt mat á athöfnum daglegs lífs. Meðferð sjúkl- ingsins er svo skipulögð eftir áður- nefndu móti og stefnir að því að koma í veg fyrir afleiðingar sjúkdómsein- kennanna. MS-sjúklingar eru eins misjafnir og þeir eru margir. Orsök er enn óljós og er því ekki al ltaf hægt að beina sjúkra- og iðjuþjálfun að þeim. Meðferðin verður því að fara eftir einkennum viðkomandi einstaklinga og á hvaða stigi sjúkdómurinn er. I dagvist MS-félagsins að Alandi 13, þar sem geta verið allt að 20 sjúkl- ingar, ermargt gert, s.s. eins og föndrað og fleira, t.d. taumálun, glermálun og keramik. Svo spilar það mikið, það Hér er sko verið að vanda sig. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 25

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.