Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Blaðsíða 10
Tómas Sturlaugsson, framkvæmdastjóri:
STYRKTARFÉLAG VAN-
GEFINNA í REYKJAVÍK
Styrktarfélag vangefinna í Reykja-
vík var stofnað í safnaðarheimilinu
Kirkjubæ í Reykjavík 23. mars 1958,
af foreldrum og aðstandendum van-
gefinna og öðru áhugafólki. Um 120
manns sátu stofnfundinn. Félagsmenn
eru nú um 1000. Þetta var fyrsta félagið
sem stofnað var um þetta málefni. Nú
eru starfandi félög um allt land, sem
vinna að sama markmiði. Auk þess
eru starfandi foreldra- og styrktarfélög
við allflestar stofnanir í landinu. Arið
1976 stofnuðu þessi félög, ásamt
nokkrum öðrum, Landssamtökin
Þroskahjálp. Þegar Styrktarfélag
vangefinna var stofnað var þjónusta
við vangefnanánastengin, utan þeirra
þriggja sólarhringsstofnana sem voru
ílandinu,enþardvölduum 115manns.
Fyrsta átak félagsins var að beita
sér fyrir því að árið 1958 var Styrkt-
arsjóður vangefinna stofnaður mað
lagasetningu frá Alþingi. Sjóðurinn
var fjármagnaður með gjaldi af öli og
gosdrykkjum, sem framleiddir voru í
landinu, svonefndu „tappagjaldi". Þá
var sett reglugerð um sjóðinn, en sam-
kvæmt henni ráðstafaði félagsmála-
ráðherra fé sjóðsins, að fengnum
tillögum stjórnar Styrktarfélags
vangefinna og Landssamtakanna
Þroskahjálparfrá 1976. Sjóðurinn stóð
að langmestu leyti undir þeirri
uppbyggingu, er varð, fram til ársins
1980.Nýlögtókugildi l.janúar 1980
um aðstoð við þroskahefta, þar sem
Framkvæmdasjóði öryrkja og
þroskaheftra varfalið það hlutverk að
fjármagna framkvæmdir ríkisins
vegna uppbyggingar þjónustu fyrir
þroskahefta. Lög um málefni fatlaðra
tóku gildi 1. janúar '84 og yfirtóku
fyrri lög.
Samkvæmt lögum Styrktarfélags
vangefinna er megintilgangur félags-
ins þessi:
a. að vangefnum verði veitt sem
ákjósanlegust skilyrði til að ná
þeim þroska, sem hæfileikar þeirra
leyfa.
b. að sem flest almenn tilboð standi
Tómas Sturlaugsson.
vangefnum ti I boða í námi, leik og
starfi.
c. að komið verði á fót heimilum,
stofnunum og vinnustöðum fyrir
þá vangefnu, sem þess þurfa, og
að reka slrka staði, ef ástæða er til.
d. að styðja og styrkja þá, sem starfa
með vangefnum, eru í námi því
tengdu, eða vilja afla sér mennt-
unar í því sambandi.
e. að annast kynningu á málum van-
gefinna, t.d. með útgáfustarfsemi
og fræðslufundum.
f. að upplýsa og aðstoða foreldra og
ættingja vangefinna eftir fremstu
getu.
Félagið annast rekstur eftirtalinna
stofnana og heimila, samkvæmt lögum
ummálefnifatlaðrafrá 1 .janúar 1984.
Dagheimilið Lyngás,
Safamýri 5, er elsta stofnun félagsins
og tók hún til starfa í júní 1961. Lyngás
er fyrsta dagheimili sinnar tegundar í
landinu og er ætlað börnum og ungl-
ingum að 18 ára aldri.
Meginstarfsemin fer fram í sex
deildum og fer skiptingin eftir aldri
einstaklinganna.
Mikllar brey tingar hafa átt sér stað
í Lyngási á undanförnum árum, en
fjölfötluðum bömum hefurfjölgað þar
mjög ört.
I Lyngási eru 40—42 böm og
unglingar.
Hæfingarstöðin Bjarkarás,
Stjörnugróf 9,
hóf starfsemi í nóvember 1971 og er
starfsþjálfunarheimili fyrir fatlaða
unglinga frá 17 ára aldri. Markmiðið
er að hæfa þá til starfa á almennum
vinnumarkaði, vemduðum vinnustöð-
um eða öðrum stöðum, sem henta
viðkomandi. Meginstarfsemin fer
fram í 5 deildum, þar sem veitt er
starfsþjálfun við mismunandi verk-
efni, I Bjarkarási dvelja að jafnaði
45—50 einstaklingar.
Þjálfunarstofnunin Lækjarás,
Stjörnugróf 7,
tók til starfa í október 1981. Hún er
ætluð fötluðum einstaklingum frá 17
ára aldri, sem hafa takmarkaða fæmi
sökum aldurs og/eðamikillarfötlunar
til að nýta sér aðra þjónustu.
Stofnuninni er skipt niður í tvær
deildir, sem starfa að mestu óháðar
hvor ann-arri.
I tengslum við Lækjarás er rekin
dagdeild í Blesugróf 31. Um 35 ein-
staklingar njóta þjónustu í Lækjarási.
Vinnustofan As, Brautarholti 6,
hóf rekstur í október 1981. Ás er vemd-
aður vinnustaður og hefur að markmiði
að skapa vinnuaðstöðu fyrir fatlað
fólk frá um 20 ára aldri með skerta
starfsgetu, og eru verkefni og vinnu-
tími sniðin að þörfum þess og getu.
Þá er lögð áhersla á, að viðhalda
starfshæfni einstaklingsins eða auka
hana, helst það mikið að hann verði
fær um að fara út á hinn almenna
vinnumarkað.
Aðallega er unnið við eigin fram-
leiðslu á bleium, ýmsum tegundum
heimilisklúta og handklæða, auk
smávægilegrar pökkunarvinnu á
aðfengnum verkefnum. Þá hefur Ás
tekið að sér að vinna ákveðna verkþætti
fyrir ýmis fyrirtæki.
Starfsmenn í Ási eru rúmlega 30.
Sambýli félagsins eru nú 7 að tölu,
10