Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Síða 6
ÁGÚSTÞANKAR
Sigrúnar Báru um Fréttabréfið og fleira
Er sumri tekur að halla, nánar
tiltekið í ágústmánuði, þegar nóttin er
mjúk og hlý — angan gróðurs í lofti
og manneskjurnar sælar og léttar í
spori eftir sumarmánuðina, þykir mér
gott að tylla mér niður í næði og
hugsa. Stundumhvíslaégleyndarmál-
um út í hlýtt síðsumarskvöldið, vitandi
um að það segir engum frá. Einstaka
hugsanir hitta pappírinn, en flestar
fljúga þær á brott með farfuglunum.
Tími þessi þykir mér og einstaklega
góður til að líta um öxl gagnrýnum
augum, gera upp og velta fyrir mér
hvemig gera megi betur á vetri
komanda.
Vetrarstarfið fer að hefjast og tími
til kominn að leggja niður kæruleysi
og léttúðugheit sumarsins og sýna
ábyrgð í hugsun og athöfnum.
Tilefni þessarar blekeyðslu hjá mér
er að þú vinur minn Helgi þjáist
greinilega líka af þessari uppgjörssýki
ágústmánaðar.
Geri ég ráð fyrir að bréfkorn það er
þú sendir mér, þar sem þú baðst um
álit mitt á Fréttabréfi Ö.B.I. sé undan
þessari áráttu runnið.
Hvað þú telur þig hafa upp úr slíkri
bón er mér hulin ráðgáta, en hér koma
nokkrir punktar um blaðið.
Fréttabréfið þykir mér hafa þróast
til betri vegar, þ.e.a.s. betur sett upp,
útlit fallegra. Efni fjölbreytt, sem er
mjög gott þar sem þetta er fréttabréf
jafn stórra samtaka sem Ö.B.I.
Kostur þykir mér við Fréttabréfið,
hvað það berst víða. Því er það kjörinn
vettvangur til skrifta og upplýsinga
um hin ýmsu málefni fötlunar.
Ekki þarf ég að kvarta um hlut
félags míns Geðhjálpar í Fréttabréfinu.
Þar hefur Geðhjálp verið gerð góð
skil. Veit ég að Geðhjálparfélagar
þy rftu aðeins að vera duglegri að drepa
niður penna. A það ekki síst við um
undirritaða.
Utlit blaðsins hefur batnað mjög á
síðustu missirum. Gjarnan mætti skilja
betur á milli greina t.d. með myndum
og fyrirsögnum og fl. (betra ,,layout“)-
Efni til viðbótar mætti t.d. vera
greinar um:
Sigrún Bára.
Nýjungar í þjálfun og e.t.v.
lækningu á sjúkdómum er valda fötl un.
Frá iðjuþjálfum um nýjungar í
hjálpartækjum.
Frá tölvuþjónustu fatlaðra.—Hvað
er að gerast þar — og um nýjungar í
íölvumálum.
Frá starfsþjálfun fatlaðra — end-
urmenntun — atvinna.
Um möguleika fatlaðra varðandi
húsnæði.
Grein frá atvinnumiðlun fatlaðra.
Góðar þykja mér greinar þínar um
lagasetningar og réttindi fatlaðra.
Lengi mætti upp telja í þessum dúr.
Með þessari upptalningu er ég ekki að
segja að greinar um þessi efni hafi
ekki birst í Fréttabréfinu.
Heldur kannski miklu fremur að
benda á að framfarir á sumum sviðum
þessara mála eru svo örar að nauðsyn-
legt er að öryrkjar og fagaðilar um
land allt geti fylgst með nýjungum.
Hvaða efni mætti sleppa get ég
ekki gert upp hug minn um.
Verð ég því að leggja það í hendur
ritstjórans með þeirri vissu að hann
finni á því góða lausn, eins og er um
flesta, ef ekki alla hluti sem hann tek-
ur sér fyrir hendur.
Það er ómetanlegt fyrir félagasam-
tök sem Ö.B.Í. að gefa út sitt eigið
fréttabréf, til að koma upplýsingum,
fræðsluefni og ofurlítilli skemmtan til
liðsmanna sinna.
Hvernig félagsmálastjóri banda-
lagsins getur sinnt Fréttabréfinu ásamt
sínu umfangsmiklastarfi, vekurávallt
furðu mína. Geta mætti sér til að ekki
væri vanþörf á liðsauka við útgáfu
blaðsins.
Fréttabréf sem þetta er sameining-
artákn fyrirfélögin sem innan vébanda
Ö.B.I. starfaogþareru allirjafn réttháir
að senda ritkúnstir sínar inn.
V ona ég að Fréttabréfið haldi áfram
að vaxa og dafna.
Með bestu kveðju
Sigrún Bára Friðfinnsdóttir.
Ritstjóri þakkar óverðugur
þankana, en þykir vænt um.
Ljóðaklúbbur Geðhjálpar.
6