Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Page 36

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1990, Page 36
Sigurlín Margrét Sigurðardóttir: AF VETTVANGIHEYRNARLAUSRA Jæja, nú verö ég aö setjast niður og skrifa greinarkorn fyrir hann Helga Seljan sem hefurtuðað á þessu í nokkurn tíma. Ég hef þó nokkrar hugmyndir um hvað greinin ætti að vera og tel ég að það þurfi að opna augun hjá fólki, þegar heyrnarlausir tala um þjónustuleysi í þjóðfélaginu, um hvað snýst málið og hvað er að. Þegar heyrnarlausir tala um þjónustuleysi er átt við að al- menningur þekkir ekki sérþarfir þeirra. Sérþarfir heyrnarlausra eru m.a. aðallega „T“in tvö: táknmál og túlkun. TÁKNMÁL Til að byrja með er best að byrja á táknmálinu, því það er lyk- illinn að túlkun fyrir heyrnarlausa. Frá örófi alda hafa heyrnarlausir haft sérstakt bendingamál til að geta látið skilja sig og skilið aðra, síðan hefur þessi tækni þróast og orðiö fullkomið mál meðal heyrn- arlausra hérlendis og erlendis. íslenskatáknmáliðhefurekkert verið rannsakað að ráði svo vitað sé. Til þess að geta rannsakað íslenska táknmálið, kennt það og þróað, verndað það (sbr. íslensk málrækt) þurfum við að fá það viðurkennt og stofnun til að fylgja ákvæðum viðurkennds íslensks táknmáls. Sú stofnun á að vera Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og hefur stofnun hennar verið til umræðu hjá íslenskum stjórnvöld- um síðastliðin þrjú árin. Nú loksins er einhver von að sú stofnun verði mjög bráðlegastaðreynd, alla vega vonar maður það besta og að það fari nú loksins að rætast úr þessu. Einnig á Samskiptamiðstöðin að hafa það hlutverk að mennta táknmálskennara. Venjulega og í flestum tilvikum eru það heyrn- arlausir sem kenna táknmál. Það þarf mikla þekkingu og þolinmæði til að kenna og læra táknmál og ég er fullviss um að kennarar og nemendur leggja jafn mikið á sig í kennslustund. Það er auðvitað Sigurlín Margrét Sigurðardóttir. spurt hverjirnemendurséu. Því er auðsvarað að það eru foreldrar, skyldmenni, kennarar, og aðrirsem umgangast heyrnarlausa mikið í daglegu lífi. Félag heyrnarlausra hefur undanfarið ár haft tákn- málsnámskeið og hafa heyrnar- lausir unnið í frítíma til að anna eftirspurninni á táknmálsnám- skeiðum tímabundið fyrir fjöl- skyldur og aðra sem tengjast heyrnarlausum bæði í vinnu eða heima. Námskeiðin hafa verið vel sóttoghafasamtalsca. 120manns útskrifast árin 1989—90, bæði byrjendur og þeir sem komnir eru á framhaldsnámskeið 2. stig. Því miður hefur ekki verið mögulegt að byrja á framhalds- námskeiði 3. stigi vegna þess að þaðkrefst meirifaglegrarþekkingar á táknmálinu, en nú á sú þekking að koma með Samskiptamiðstöð- inniþegarfariðverðuraðrannsaka táknmálið. Það er spennandi og nýtt viðfangsefni hér á landi. Táknmálið er með öðrum orðum athyglisvert og spennandi hjá þeim sem þekkja það og hafa kynnst. TÚLKUN Enginn maður hefur útskrifast hér á landi með íslenska túlka- menntun, enn sem komið er. Þó hefur Félag heyrnarlausra viður- kennt 3, sem hæfir eru til að túlka og hafa að baki meira en 100 kennslustundir í táknmáli. Það var árið 1986 sem þessir túlkar voru viðurkenndir og var það aðallega gert sem neyðarúrræði vegna Norrænu menningarhátíðarinnar sem haldin var hér í Reykjavík 1986. Þessir túlkar túlka enn í dag bæði í skóla og eins almennt. Þó er vissulega erfitt fyrir túlkana að búa við þennan skort og vera oft fullbókaðir. Tveirtúlkar starfanútil viðbótar við þessa þrjá og hafa þeir danskttúlkapróf sem háir þeim mikið. Þeir þurfa að læra íslenska táknmálið og aflesa íslenska táknmálið sem er mjög erfitt, það mun taka túlkana langan tíma að ná tökum á íslenska táknmálinu, eins vel og því danska sem þeir kunnu best. Nú er mjög mikill skort- urátúlkum.Tildæmiserskorturinn orðinn svo mikill að aðeins 3 túlkar eru í Iðnskólanum í Reykjavík og þar eru 11 nemendur sem þurfa túlkun. í Fjölbraut í Breiðholti eru 2 nemendur og fá engan túlk, eins og staðan er í dag. Það má þó segja að ástandið sé mjög alvar- legt, þarsem sárlega vantareinnig að fá túlk við félagslegar aðstæður og fleira. Einnig má til gamans geta að það vantar túlk til að fara á fund með Svavari Gestssyni um stofnun Samskiptamiðstöðvar- innar. Já, ástandið er orðið al- varlegt svo sannarlega. Þess vegna verður mjög fljótlega að fara að stofna hina langþráðu Samskiptamiðstöð heyrnarlausra til að geta menntað fleiri túlka, til að geta annað eftirspurninni, sem er mjög mikil núna og á án efa eftir að aukast. Ég vona samt heilshugar að þessi grein muni gefa ykkur ein- hverja mynd af því af hverju táknmál og túlkun eru svo nauð- synlegur þáttur í lífi heyrnarlausra. Það er einnig hægt að segja með einföldum orðum að þessi tvö hug- tök tengja heyrnarlausa við heim hinna heyrandi. Sigurlín Margrét Sigurðardóttir, Félagsmálafulltrúi FH. 36

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.