Fréttablaðið - 23.05.2020, Qupperneq 22
ÞETTA VAR AUÐVITAÐ
SÁRT ÞVÍ ÉG HAFÐI LAGT
ALLT Í AÐ BYGGJA FYRIR-
TÆKIÐ OG HAFÐI FÓRNAÐ
TÍMA MEÐ EIGINMANNI
OG FJÖLSKYLDU OG TÍMA
TIL AÐ SINNA SJÁLFRI MÉR.
Áslaug hefur
búið í Banda-
ríkjunum undan
farin 23 ár en
segist nýverið
hafa fundið
aftur tenging-
una við Ísland.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLIÞegar Áslaug var fimm ára f lutti hún ásamt foreldrum sínum til Los Angeles. „Þau áttu mig mjög ung svo pabbi fór utan til að stunda hag-
fræðinám við UCLA og móðir mín
starfaði sem hjúkrunarfræðingur
þessi sex ár sem við bjuggum þar.“
Áslaug var ellefu ára þegar fjöl-
skyldan f lutti aftur heim og segir
það eftirminnilegt þegar hún
mætti fyrst í Digranesskóla í app-
elsínugulri úlpu, keyptri í Kali-
forníu, innan um öll dökkklæddu
börnin.
„Ég held að það hafi haft mikil
áhrif á mig að búa þessi ár í Banda-
ríkjunum. Ég var orðin frekar amer-
ísk þegar við komum heim í lok nóv-
ember það árið.“ Áslaug hafði alltaf
talað íslensku við foreldra sína svo
það stóð henni ekki fyrir þrifum en
aftur á móti hafði hún aldrei lesið
tungumálið heldur aðeins ensku.
Hún þurfti því að hafa svolítið fyrir
því að ná hinum nemendunum í
íslensku en lagði hart að sér. „Ég var
frekar alvarlegur krakki, einbeitti
mér aðallega að náminu, bókalestri
og íþróttum og svo dansinum en ég
var alltaf í ballett í Þjóðleikhús-
inu og samkvæmisdönsum og svo
seinna djassballett.“
Ákveðin í að snúa aftur
Eftir grunnskólann fór Áslaug í
Verslunarskólann þar sem hún
varð semi-dúx og að stúdents-
prófi loknu lá leiðin í lögfræði við
Háskóla Íslands. „Þegar ég f lutti
heim ellefu ára var ég alltaf ákveðin
í að fara í framhaldsnám í Banda-
ríkjunum.“ Eftir lögfræðina og
þriggja ára starfsreynslu sem fyrsti
lögfræðingur Deloitte á Íslandi, fór
Áslaug því í meistaranám við Duke-
háskóla. Ætlunin var að dvelja ytra
í eitt ár en sá tími átti aldeilis eftir
að lengjast.
„Ég fann að ég var ekki tilbúin
að fara strax heim og einnig að ég
saknaði viðskiptagreinanna. Mig
langaði að geta skoðað vandamálin
frá víðtækara sjónarmiði en lög-
fræðilegu og hafa f leiri alþjóðleg
tækifæri, en lögfræðin er að miklu
leyti staðbundin. Því ákvað ég að
fara í MBA-nám, Harvard-háskóli
varð fyrir valinu og ég vann aldrei
aftur sem lögfræðingur.“
Frábær tími í Harvard
Áslaug varð fyrsta íslenska konan
til að útskrifast með MBA-gráðu úr
viðskiptaháskóla Harvard.
„Tíminn í Harvard var frábær
og ég bjó á heimavistinni eins og
f lestir. Þetta er ótrúlega fallegur
staður fullur af skemmtilegu fólki
frá ólíkum stöðum.“
Áslaug var gift Gunnari Thor-
oddsen, fyrrverandi bankastjóra
Landsbankans í Lúxemborg, til
ársins 2000 og eiga þau saman einn
son, Gunnar Ágúst, sem nú er 26
ára. „Við kynntumst í lögfræðinni
og fórum saman í framhaldsnámið
í Duke. Þar bjuggum við þrjú saman
en eftir árið þar vildi Gunnar fara
heim og tók son okkar með sér. Ég
tímdi ekki að missa af því að fara í
Harvard og við vorum í fjarbúð um
hríð, þeir feðgar bjuggu um tíma á
Íslandi og svo líka í Boston á meðan
við vorum að reyna að finna út úr
okkar málum.
Sonur okkar var mikið á Íslandi
á þessum árum en kom til mín í
sumarfríum og um jól. Ég flutti líka
til London og pabbi hans til Lúxem-
borgar svo þá var hann nær.“
Vildu bæði hafa soninn
Áslaug viðurkennir að það hafi
reynst henni erfitt að vera langtím-
um fjarri syni sínum. „Ég veit ekki
hvort ég myndi taka sömu ákvörð-
un í dag enda breytast gildi manns
með árunum. Á þessum tíma var ég
svo staðráðin í að fara í þetta nám
og reyna fyrir mér á erlendri grundu
og erfiðasti hluti þess var að geta
ekki verið nægilega mikið með syni
mínum.
Íslensk náttúra
dró mig til baka
Áslaug Magnúsdóttir hefur getið sér gott orð í tískugeiranum og
komist á lista yfir valdamesta fólk hans. Eftir erfiðleika fann hún
sjálfa sig á ný og setti nýlega á laggirnar sjálfbæru fatalínuna Kötlu.
Við vildum auðvitað bæði hafa
hann en niðurstaðan var svona. Nú
býr hann á jarðhæðinni í húsnæði
mínu hér á landi ásamt kærustu
sinni og stundar háskólanám í sál-
fræði auk þess að sinna tónlist og
rafíþróttum.
Áslaug starfaði í þrjú ár fyrir hið
stóra bandaríska ráðgjafarfyrir-
tæki McKinsey í London: „Þó ég
hafi sagst búa í London var ég ekki
mikið þar en starfinu fylgdu mikil
ferðalög. Stundum var sonurinn
með mér á f lakki og eitt sumarið
vorum við í Amsterdam þar sem ég
var að vinna og hann með au-pair
uppi á hótelherbergi. Þetta var svo-
lítið skrítið líf.“
Fjárfesti í tísku fyrir Baug
Eftir að hafa starfað sem stjórnar-
formaður Íslenska dansf lokksins
árin 1993 til 1995 vissi Áslaug að
hún hefði mikla ánægju af því að
vinna með skapandi fólki. „Mig
langaði að færa mig meira út í þann
geira og hafði alltaf verið spennt
fyrir tísku. Það tók mig svolítinn
tíma að finna mína leið þangað
inn en tókst það í gegnum Baug en
ég var þriðji starfsmaður London-
skrifstofu þeirra árið 2004. Þeir
voru þá að fjárfesta í stærri tísku-
fyrirtækjum. Ég fékk meiri og meiri
áhuga á lúxusenda tískunnar og fór
að hvetja til fjárfestinga í lúxus-
fyrirtækjum og við fjárfestum til
að mynda í Matthew Williamson,
Steinunni og nokkrum f leirum.“
Áslaug hafði kynnst Gabriel Levy
í Harvard og varð hann annar mað-
urinn hennar og bjuggu þau saman
í London. Árið 2006 vildi hann
f lytja aftur til New York, sem þau
gerðu, og segist Áslaug hafa verið
svekkt að þurfa að yfirgefa starf
sitt hjá Baugi.
Fjárfestingar í New York
„Fyrstu vikuna í New York var ég
kynnt fyrir Marvin Traub, fyrrver-
andi forstjóra Bloomingdale’s. Hann
átti ráðgjafarfyrirtækið Marvin
Traub Associates og vann með fata-
merkjum víða um heim. Hann var
mikill áhrifavaldur í tískuheimin-
um og til að mynda þekktur fyrir að
hafa uppgötvað Ralph Lauren. Hann
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
Framhald á síðu 24
2 3 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð