Fréttablaðið - 23.05.2020, Page 84

Fréttablaðið - 23.05.2020, Page 84
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðbjörg Guðmannsdóttir lést á hjúkrunarheimilinu Mörk, mánudaginn 18. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á hjúkrunarheimilinu Mörk fyrir einstaka umönnun. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Svandís Magnúsdóttir Stefán Benediktsson Guðmann Magnússon Sigríður Ólafsdóttir Sigurður Bjarki Magnússon barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, amma og tengdamóðir, Rannveig Tómasdóttir Brekkubyggð 26, lést á heimili sínu í faðmi fjölskyldunnar þriðjudaginn 19. maí. Útför verður auglýst síðar. Þórhallur Arason Halla Björg Þórhallsdóttir Guðmundur Kristinsson Þorbjörg Þórhallsdóttir Gísli Þór Guðmundsson Tómas Magnús Þórhallsson Unnur Lilja Hermannsdóttir Rannveig Myrra Gísladóttir Rakel Tómasdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Maríus Kárason lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hólmavík 10. maí. Útför hans fór fram frá Hólmavíkurkirkju 16. maí. Þökkum hlýhug og vinsemd alla. Kristbjörg Jónsdóttir Ægir Þórunn Elfa Selma Óli Þór Berglind Kristný Maren Hafrún Hallgrímur barnabörn og barnabarnabörn. Þuríður Sigurðardóttir og Guðni Ágústsson hittast uppi á Laugar­neshólnum þar sem æskuheimili Þuríðar stóð. „Hér fæddist ég,“ segir hún brosandi og færir sig í eitt hornið á auðum bletti í kerfil breiðunni. „Pabbi tók á móti mér, ljós­ an var eitthvað sein. Húsið var 52 fermetrar að grunnf leti og við vorum sex systkinin.“ „Sex? Það er nú ekki neitt, við vorum sextán. Mamma skildi sjálf á milli þegar ég fæddist, amma var ekki komin,“ toppar Guðni. Spóinn flögrar um vellandi og sest í móann skammt frá. Það er ekki víða sem Reyk­ víkingar heyra og sjá til hans innan borgar­ markanna. „Við verðum að standa vörð um umhverfið hér og megum ekki taka það af börnum framtíðarinnar að hafa aðgang að óspilltri fjöru, móa með fuglalífi, menning­ arminjum og einstöku útsýni til Viðeyjar. Í verndaráætlun er útsýnið þangað metið sem mikil verðmæti, enda hafi það lítið breyst í aldir. En nú eru komnar gríðarlegar landfyll­ ingar rétt við tangann og ef þar koma bygg­ ingar, eins og til stendur, er útsýninu illilega spillt,“ segir Þuríður. „Það eru sterk söguleg tengsl milli Laugarness og Viðeyjar, sem hafa verið samofin heild gegnum tíðina og það er verið að rjúfa þá heild.“ „Þarna er mikið umhverfisslys. Þessi land­ fylling nær langleiðina út í Skarfasker,“ tekur Guðni undir. „Laugarnesið er yndislegasti staðurinn í Reykjavík. Ég geng hér oft tvo, þrjá hringi og sest í fjöruna og hlusta á öldu­ gjálfrið. Svo skrifaði ég sögu Hallgerðar lang­ brókar, þá sá ég hana oft sitja hér á hólnum. Sá hárið blakta undan vindinum.“ Þetta hendir Þuríður á lofti. „Viðurnefni hennar, langbrók, þýðir einmitt sítt hár en ekki síðar buxur,“ upplýsir hún. „Orðið lang­ brok er komið úr norsku og þýðir gróður­ vin, hið mikla hár Hallgerðar var vísun í þá merkingu.“ Hér var hún „Aðdáendur Hallgerðar og allir sem vilja kenna sig við kvenfrelsi, ættu að standa að því að henni verði reist stytta hér í Laugarnesinu. Hér var hún, hér dó hún og Njála segir að hún hafi verið lögð hér til hvílu í kirkjugarði. Þú værir ágæt fyrirmynd að þeirri styttu, Þur­ íður,“ segir Guðni og er nú kominn á flug. „Hallgerður var falleg kona. Hún var göf­ ugrar ættar og ekki lamb að leika við, en ég held að hún hafi verið í mannréttindabaráttu allt lífið. Augu okkar nútímafólks hafa opnast fyrir örlögum þessarar stórbrotnu, umdeildu konu. Hún var sem barn misnotuð af Þjóstólfi, hún var þvinguð í hjónaband við Þorvald á Felli, fjórtán ára að aldri. Eftir að Þjóstólfur drap hann, giftist hún Glúmi og elskaði hann, en hann rak henni kinnhest úti á hlaði og Þjóstólfur kom að henni grátandi, svo hann drap Glúm líka og hún var orðin ekkja í annað sinn. Saga hennar og Gunnars á Hlíðarenda var ástarsaga, en þar bættist við einn harm­ leikurinn sem þekktur er úr nútímanum. Hún var lögð í einelti. Njáll og Bergþóra þoldu hana ekki og töldu hana ekki samboðna Gunnari. Allir vita hvernig fór, hann sló hana í veislu þegar gestir voru viðstaddir og hún lýsti því strax að þess myndi hún hefna. Varð svo ein­ hver hataðasta kona Íslandssögunnar, af því hún átti að hafa valdið dauða Gunnars með því að ljá honum ekki leppa tvo í bogastreng sinn.“ Guðni bætir því við að eftir víg Gunnars hafi Hallgerður flutt í Laugarnesið á eignar­ jörð sem hún erfði eftir Glúm. „Hún hafði átt hendur að verja fyrir öllum mönnum sínum og hér er því fyrsta kvennaathvarfið. Gamlir Reykvíkingar sögðu að leiði hennar hefði alltaf verið þekkt, það hefði verið grænt allt árið. Þeir sögðu mér líka að þegar Sæbrautin var lögð hafi verkfræðingurinn sagt: „Við verðum að fara yfir hornið á kirkjugarðinum, það gerir nú ekki mikið til, leiðið hennar Hallgerðar fer undir. Það er í lagi að keyra yfir kerlinguna, næstu þúsund árin.“ Þess vegna hoppa bílar hér aðeins, þeir fara yfir leiðið hennar.“ Gaf dætrum landsins slagorð Njála er ein merkilegasta og fallegasta bók landsins, að mati Guðna. „Hallgerður er stór­ brotin persóna – elskuð og hötuð. Saga hennar kallar til okkar gegnum aldirnar sem birtist í því að hún var kvenréttindakona, lengi mis­ skilin, en nútíminn skilur hana því í lífi sínu braut hún feðraveldið á bak aftur,“ bendir hann á. „Hallgerður gaf líka öllum dætrum þessa lands slagorð sem ætti að standa á stytt­ unni. „Engin hornkerling vil ég vera.“ Það er kall aldanna til kvenna.“ „Já, ég hefði viljað setjast niður með Hall­ gerði langbrók, drekka með hanni kaffibolla og heyra sögu hennar frá hennar hlið,“ segir Þuríður. gun@frettabladid.is Vilja Hallgerði langbrók í Laugarnesið Þuríður Sigurðardóttir, söng- og listakona, og Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, vaka yfir verndun Laugarnesstangans og út- sýnisins þaðan til Viðeyjar. Þau leggja líka til að kvenréttindakonunni Hallgerði langbrók, sem þar hvílir, verði reist stytta á staðnum. Guðni Ágústsson og Þuríður Sigurðardóttir eiga sameiginlegt að meta Laugarnesið mikils og vilja halda sögu þess á lofti. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Hallgerður er stórbrotin persóna – elskuð og hötuð. Saga hennar kallar til okkar gegnum aldirnar sem birtist í því að hún var kvenréttinda- kona – lengi misskilin, en nútíminn skilur hana því í lífi sínu braut hún feðraveldið á bak aftur. Guðni Ágústsson 2 3 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R32 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.