Fréttablaðið - 23.05.2020, Qupperneq 84
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðbjörg Guðmannsdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk,
mánudaginn 18. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á
hjúkrunarheimilinu Mörk fyrir einstaka umönnun.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Svandís Magnúsdóttir Stefán Benediktsson
Guðmann Magnússon Sigríður Ólafsdóttir
Sigurður Bjarki Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
amma og tengdamóðir,
Rannveig Tómasdóttir
Brekkubyggð 26,
lést á heimili sínu í faðmi
fjölskyldunnar þriðjudaginn 19. maí.
Útför verður auglýst síðar.
Þórhallur Arason
Halla Björg Þórhallsdóttir Guðmundur Kristinsson
Þorbjörg Þórhallsdóttir Gísli Þór Guðmundsson
Tómas Magnús Þórhallsson Unnur Lilja Hermannsdóttir
Rannveig Myrra Gísladóttir
Rakel Tómasdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Maríus Kárason
lést á Heilbrigðisstofnun
Vesturlands á Hólmavík 10. maí.
Útför hans fór fram frá Hólmavíkurkirkju
16. maí. Þökkum hlýhug og vinsemd alla.
Kristbjörg Jónsdóttir
Ægir Þórunn Elfa
Selma Óli Þór
Berglind Kristný Maren
Hafrún Hallgrímur
barnabörn og barnabarnabörn.
Þuríður Sigurðardóttir og Guðni Ágústsson hittast uppi á Laugarneshólnum þar sem æskuheimili Þuríðar stóð. „Hér fæddist ég,“ segir hún brosandi og færir sig í eitt hornið á auðum bletti í
kerfil breiðunni. „Pabbi tók á móti mér, ljós
an var eitthvað sein. Húsið var 52 fermetrar
að grunnf leti og við vorum sex systkinin.“
„Sex? Það er nú ekki neitt, við vorum sextán.
Mamma skildi sjálf á milli þegar ég fæddist,
amma var ekki komin,“ toppar Guðni.
Spóinn flögrar um vellandi og sest í móann
skammt frá. Það er ekki víða sem Reyk
víkingar heyra og sjá til hans innan borgar
markanna. „Við verðum að standa vörð um
umhverfið hér og megum ekki taka það af
börnum framtíðarinnar að hafa aðgang að
óspilltri fjöru, móa með fuglalífi, menning
arminjum og einstöku útsýni til Viðeyjar. Í
verndaráætlun er útsýnið þangað metið sem
mikil verðmæti, enda hafi það lítið breyst í
aldir. En nú eru komnar gríðarlegar landfyll
ingar rétt við tangann og ef þar koma bygg
ingar, eins og til stendur, er útsýninu illilega
spillt,“ segir Þuríður. „Það eru sterk söguleg
tengsl milli Laugarness og Viðeyjar, sem hafa
verið samofin heild gegnum tíðina og það er
verið að rjúfa þá heild.“
„Þarna er mikið umhverfisslys. Þessi land
fylling nær langleiðina út í Skarfasker,“ tekur
Guðni undir. „Laugarnesið er yndislegasti
staðurinn í Reykjavík. Ég geng hér oft tvo,
þrjá hringi og sest í fjöruna og hlusta á öldu
gjálfrið. Svo skrifaði ég sögu Hallgerðar lang
brókar, þá sá ég hana oft sitja hér á hólnum. Sá
hárið blakta undan vindinum.“
Þetta hendir Þuríður á lofti. „Viðurnefni
hennar, langbrók, þýðir einmitt sítt hár en
ekki síðar buxur,“ upplýsir hún. „Orðið lang
brok er komið úr norsku og þýðir gróður
vin, hið mikla hár Hallgerðar var vísun í þá
merkingu.“
Hér var hún
„Aðdáendur Hallgerðar og allir sem vilja
kenna sig við kvenfrelsi, ættu að standa að því
að henni verði reist stytta hér í Laugarnesinu.
Hér var hún, hér dó hún og Njála segir að hún
hafi verið lögð hér til hvílu í kirkjugarði. Þú
værir ágæt fyrirmynd að þeirri styttu, Þur
íður,“ segir Guðni og er nú kominn á flug.
„Hallgerður var falleg kona. Hún var göf
ugrar ættar og ekki lamb að leika við, en ég
held að hún hafi verið í mannréttindabaráttu
allt lífið. Augu okkar nútímafólks hafa opnast
fyrir örlögum þessarar stórbrotnu, umdeildu
konu. Hún var sem barn misnotuð af Þjóstólfi,
hún var þvinguð í hjónaband við Þorvald á
Felli, fjórtán ára að aldri. Eftir að Þjóstólfur
drap hann, giftist hún Glúmi og elskaði hann,
en hann rak henni kinnhest úti á hlaði og
Þjóstólfur kom að henni grátandi, svo hann
drap Glúm líka og hún var orðin ekkja í annað
sinn. Saga hennar og Gunnars á Hlíðarenda
var ástarsaga, en þar bættist við einn harm
leikurinn sem þekktur er úr nútímanum. Hún
var lögð í einelti. Njáll og Bergþóra þoldu hana
ekki og töldu hana ekki samboðna Gunnari.
Allir vita hvernig fór, hann sló hana í veislu
þegar gestir voru viðstaddir og hún lýsti því
strax að þess myndi hún hefna. Varð svo ein
hver hataðasta kona Íslandssögunnar, af því
hún átti að hafa valdið dauða Gunnars með
því að ljá honum ekki leppa tvo í bogastreng
sinn.“
Guðni bætir því við að eftir víg Gunnars
hafi Hallgerður flutt í Laugarnesið á eignar
jörð sem hún erfði eftir Glúm. „Hún hafði átt
hendur að verja fyrir öllum mönnum sínum
og hér er því fyrsta kvennaathvarfið. Gamlir
Reykvíkingar sögðu að leiði hennar hefði alltaf
verið þekkt, það hefði verið grænt allt árið.
Þeir sögðu mér líka að þegar Sæbrautin var
lögð hafi verkfræðingurinn sagt: „Við verðum
að fara yfir hornið á kirkjugarðinum, það gerir
nú ekki mikið til, leiðið hennar Hallgerðar fer
undir. Það er í lagi að keyra yfir kerlinguna,
næstu þúsund árin.“ Þess vegna hoppa bílar
hér aðeins, þeir fara yfir leiðið hennar.“
Gaf dætrum landsins slagorð
Njála er ein merkilegasta og fallegasta bók
landsins, að mati Guðna. „Hallgerður er stór
brotin persóna – elskuð og hötuð. Saga hennar
kallar til okkar gegnum aldirnar sem birtist í
því að hún var kvenréttindakona, lengi mis
skilin, en nútíminn skilur hana því í lífi sínu
braut hún feðraveldið á bak aftur,“ bendir
hann á. „Hallgerður gaf líka öllum dætrum
þessa lands slagorð sem ætti að standa á stytt
unni. „Engin hornkerling vil ég vera.“ Það er
kall aldanna til kvenna.“
„Já, ég hefði viljað setjast niður með Hall
gerði langbrók, drekka með hanni kaffibolla
og heyra sögu hennar frá hennar hlið,“ segir
Þuríður. gun@frettabladid.is
Vilja Hallgerði langbrók í Laugarnesið
Þuríður Sigurðardóttir, söng- og listakona, og Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, vaka yfir verndun Laugarnesstangans og út-
sýnisins þaðan til Viðeyjar. Þau leggja líka til að kvenréttindakonunni Hallgerði langbrók, sem þar hvílir, verði reist stytta á staðnum.
Guðni Ágústsson og Þuríður Sigurðardóttir eiga sameiginlegt að meta Laugarnesið mikils og vilja halda sögu þess á lofti. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Hallgerður er stórbrotin persóna –
elskuð og hötuð. Saga hennar kallar
til okkar gegnum aldirnar sem
birtist í því að hún var kvenréttinda-
kona – lengi misskilin, en nútíminn
skilur hana því í lífi sínu braut hún
feðraveldið á bak aftur.
Guðni Ágústsson
2 3 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R32 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT