Fréttablaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 26
Undanfarin þrjú ár he f u r I ng i björ g Sólrún Gísladóttir gegnt embætti for-stjóra ODHIR, Lýð-ræðis- og mann- rétt indastof nu nar ÖSE , einu áhrifamesta embætti sem Íslend- ingur hefur gegnt á alþjóðlegum vettvangi. Skipunartími Ingibjargar rennur út í sumar, en fyrir liggur tillaga frá ÖSE um að samningur hennar verði framlengdur um þrjú ár til viðbótar. Að óbreyttu hugnast Ingibjörgu sú ráðstöfun vel, en hún segist kunna afar vel við starfið og líf sitt í Varsjá í Póllandi, þar sem skrifstofa stofn- unarinnar er staðsett. „Þetta er mjög fjölbreytt starf sem kemur inn á mörg málefni sem ég hef haft mikinn áhuga á alla tíð,“ segir Ingibjörg. Kortleggja neyðarlög Í vikunni hélt Ingibjörg erindi á fundi IcelandSif, samtaka um sjálf- bærar og ábyrgar fjárfestingar. Þó að verkefni Ingibjargar séu frekar á sviði stjórnvalda en einkafyrir- tækja, þá getur einkageirinn þrýst á að mannréttindi séu virt í hvívetna, með ábyrgum fjárfestingum. Hún fagnar því aukinni áherslu á slíkar fjárfestingar. Á fundinum veitti Ingibjörg áhugaverða innsýn í verkefni ODHIR á tímum kórónaveirufarald- ursins, sem hafa verið ærin. Ástæðan er ekki síst sú að aðildar- ríki ÖSE skuldbundu sig árið 1991 til að tilkynna stofnuninni þegar neyðarástandi væri lýst yfir í lönd- unum. Það hefur stór hluti aðildar- ríkjanna gert á þessum viðsjárverðu tímum og því hefur mætt mikið á eftirlitshlutverki ODHIR. „Þegar lönd lýsa yfir neyðar- ástandi, þá verða þau að sýna fram á brýna nauðsyn þess. Slíkt ástand á alltaf að vera tímabundið og mikilvægt er að staðan sé í stöðugri endurskoðun. Þá verður úrræðið að vera í hlutfalli við vandann og aðstæður á hverjum stað,“ segir Ingibjörg. Stofnunin vinnur nú að því að kortleggja hvernig staðið var að inn- leiðingu neyðaraðgerða í aðildar- ríkjunum. „Við erum að kortleggja hvað var gert vel og hvar pottur var brotinn. Við munum gefa út skýrslu og koma með tillögur til aðildarríkja um hvernig er best að standa að innleið- ingu slíkra aðgerða, því aðstæður sem þessar geta alveg komið upp aftur,“ segir Ingibjörg. Afar mikilvægt sé að draga lær- dóm af því hvernig til tókst. Að sögn Ingibjargar er ekki hægt að segja að ný ófyrirséð vandamál varðandi lýðræði og mannréttindi hafi komið upp á yfirborðið heldur hafi faraldurinn varpað skýru ljósi á þá annmarka sem voru þegar á mörgum samfélögum. „Sprungurnar sem voru fyrir stækkað,“ segir Ingibjörg. Fordómar hafa aukist Staða ríkja þar sem þingræði og þjóðþing höfðu ekki sterka stöðu hefur versnað enn frekar. Þá virðist sem svo að fordómar gegn minni- hlutahópum hafi aukist. „Við sjáum það meðal annars gagnvart minni- hlutahópum sem eiga undir högg að sækja, til dæmis flóttamönnum og Rómafólki.“ Alls eru um 10-12 milljónir Róma- fólks dreifðar um ríki Evrópu og segir Ingibjörg að fordómar gegn þeim lýsi sér í því að réttindi þeirra hafi verið fótum troðin í sumum ríkjum á meðan faraldurinn geisaði. „Eins og hjá öllum öðrum komu upp smit meðal þeirra. Við höfum séð dæmi þess að samfélögum þeirra hafi hreinlega verið lokað og af leiðingarnar af því eru mjög slæmar. Þar sem ástandið er verst hefur þetta fólk hvorki getað aflað sér lífsviðurværis með því að selja vörur sínar á markaði né fengið að kaupa sér nauðsynjar. Aðgengi þeirra að nettengingu og tölvum er í mörgum tilvikum ekki upp á marga fiska og þar með hafa úrræði eins og kennsla barna í gegnum netið ekki gagnast þeim.“ Til að setja hlutina í samhengi bendir Ingibjörg á að afmarkaður hópur skíðafólks hafi til að byrja með smitast hérlendis. „Það datt samt engum til hugar að loka Garðabæ, svo dæmi sé tekið.“ Hún segir afar mikilvægt að þjóð- þing landa séu með í ráðum varð- andi aðgerðir en það hafi ekki alls staðar verið virt. „Sums staðar hafa þjóðþingin beinlínis samþykkt að afsala sér völdum og eftirliti, eins og til dæmis í Ungverjalandi, þar sem þingið samþykkti að ríkisstjórnin gæti stjórnað með tilskipunum.“ Sú aðgerð er ótímabundin, sem er áhyggjuefni. Þá hafi stjórnvöld ýmissa landa, til dæmis  Armeníu, Georgíu og Póllands, samþykkt umdeild lög meðan þjóðfélagið er ekki í stakk búið til að fylgjast með og veita aðhald. „Við þessar aðstæður er mjög takmarkað samráð við stjórnarandstöðu og almannasam- tök, sem hafa heldur ekki tök á að mótmæla vegna samkomubanns,“ segir Ingibjörg. Ekki drepa mannréttindi líka Hún segir að ljóst sé að neyðarað- gerðir hafi alltaf takmarkanir í för með sér varðandi frelsi og réttindi einstaklinga, en að mikilvægt sé að hafa varann á. „Það er mikilvægt að drepa vírusinn, en menn mega ekki drepa lýðræðið og mannréttindin í leiðinni. Skiljanlega gaf fólk afslátt af sínum réttindum á meðan farald- urinn gekk yfir, en tryggja verður að skerðingin sé tímabundin.“ Ákveðin freistni sé hjá stjórnvöld- um til að takmarka réttindi þegna lengur en þörf er á. „Í sumum ríkj- um er hentugt að koma í veg fyrir að fólk hópist saman og mótmæli. Þá getur skert starfsemi þjóðþingsins veitt ákveðið svigrúm, enda finnst mörgum nöldrið í þinginu fremur þreytandi,“ segir Ingibjörg og hlær við, þegar hún er spurð hvort hún þekki þá tilfinningu ekki vel. Að mati Ingibjargar hefur ákveð- ið bakslag átt sér stað á sviði lýð- ræðis og mannréttinda undanfarin ár. „Almenningur gengur í sumum tilvikum að þessum réttindum sem sjálfgefnum og áttar sig ekki á því að það þurfti að berjast fyrir þeim. Það er mikilvægt að standa vörð um þessi réttindi, því um leið og farið er að gefa afslátt af þeim getur rétt- indabaráttan tekið nokkur skref til baka.“ Aldrei sé mikilvægara að standa vaktina en á krepputímum, eins og þeim sem nú fara í hönd. „Þá er hættara við því að stjórnvöld reyni að skerða réttindi þegna sinna. Þá er mikilvægt að hafa góða áttavita og ég tel að ODHIR sé slíkur átta- viti. Mikilvægi okkar eykst á slíkum stundum,“ segir Ingibjörg. Staða mannréttinda á Íslandi er góð en ekkert ríki er fullkomið í þeim efnum. „Það sem mér finnst varhugavert hérna á Íslandi er að pólarísering hefur aukist og and- rúmsloftið í stjórnmálunum er oft ansi eitrað. Neikvæð umræða um þjóðþingið getur leitt til þess að fólk telji þingið til óþurftar og það er mjög vond afstaða,“ segir Ingibjörg. Þá sýni úrskurðir Mannréttinda- dómstóls Evrópu að margt megi betur fara í íslensku réttarkerfi. Ingibjörg segir að íslenska kunn- ingjasamfélagið geti reynst mikil áskorun. „Við búum í litlu samfélagi og okkur hættir til að taka ákvarð- anir út frá einstaklingnum og setja reglurnar aðeins til hliðar. Í sumum tilvikum getur þetta gengið upp en þetta er líka mjög hættulegt,“ segir Ingibjörg. Drepi ekki lýðræðið í sömu andrá Mikilvægt er að sá afsláttur sem almenn- ingur veitti af réttindum sínum meðan á COVID-faraldrinum stóð sé tímabundinn. Standa verði vaktina á krepputímum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur starfað sem forstjóri ODHIR, lýðræðis- og mannréttindastofnunar ÖSE, í þrjú ár. Hún hyggst framlengja samning sinn í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ /ANTON BRINK VIÐ BÚUM Í LITLU SAM- FÉLAGI OG OKKUR HÆTTIR TIL AÐ TAKA ÁKVARÐANIR ÚT FRÁ EINSTAKLINGNUM Björn Þorfinnsson bjronth@frettabladid.is 3 0 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.