Fréttablaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 72
Listaverkið
Hann Eddi Leó Viktorsson, sem er sex ára og bráðum sjö, teiknaði
þessa mynd af Hallgrímskirkju og styttunni af Leifi Eiríkssyni.
Edda Leó finnst gaman að hjóla og að fara í langar hjólaferðir og
hefur nokkrum sinnum hjólað að Hallgrímskirkju.
Brandarar
Gunnar þrammaði fram og
aftur um gólfið á meðan
hann blés í trompetinn. Að
lokum gafst nágranninn upp,
bankaði hjá honum og sagði:
„Þessi hávaði er alveg óþol-
andi.“ „Fyrirgefðu,“ svaraði
Gunnar, fór úr skónum og hélt
áfram að spila á trompetinn á
sokkunum.
Regína: „Þjónn! Ég ætla að fá
saltfisk.“
Þjóninn: „Viltu portúgalskan
eða íslenskan?“
Regína: „Það skiptir engu máli,
ég ætla ekki að tala við hann.“
Óli: „Nú get ég varið mig ef
einhver ræðst á mig. Ég er
byrjaður að æfa karate og er
þegar búinn að brjóta múr-
stein með hnefanum.“
Valdi: „Það er flott hjá þér, en
er ekki frekar sjaldgæft að
múrsteinar ráðist á fólk?“
Þormóður Áki unir sér í skúrnum við að setja olíu á hjólið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Þormóður Áki Njálsson er tólf ára
og verður þrettán á þessu ári. Hann
á tvö systkini og svo er tík á heimil-
inu sem þarf sína athygli.
Hvernig er lífið hjá þér þessa dag-
ana, Þormóður? Ja, ég hef verið
lasinn í gær og í dag en annars er
allt í lagi. Það er kominn venjulegur
skólatími aftur fimm daga í viku.
Áður var ég oft heima að læra.
Ertu búinn með öll vorprófin? Nei,
ekki öll. Það er alveg fullt af prófum
eftir.
Heldurðu að þú fáir eins góðar
einkunnir og venjulega þrátt
fyrir að komast ekki í skólann alla
daga? Já, ég hugsa það.
Hver eru bestu fögin þín? Ég veit
það ekki, mér finnst eiginlega allt
jafn leiðinlegt. Nei, grín, ég mundi
kannski segja að íslenskan, að
minnsta kosti, væri skemmtileg.
Ertu góður í að skrifa? Ég held það
sé nú ekki besta fagið mitt.
Nú heyrir Þormóður ekkert í mér í
símanum fyrir tíkinni Lukku, sem
geltir hástöfum. Ég gleymi samt að
spyrja hvort hann sé dýravinur.
Hann hlýtur að vera það. Ég bíð þar
til Lukka hefur lokið máli sínu og
næsta spurning er:
Hver eru helstu áhugamálin þín?
Mér finnst gaman að föndra við
mótorhjólið.
Mótorhjólið? Áttu mótorhjól? Já,
ég á krossara.
Ertu duglegur í viðgerðum? Ég
myndi segja það.
Máttu vera á mótorhjóli? Ekki á
götunum, bara á plani með pabba.
Það er rosalega gaman.
Hvenær máttu keyra á götum? Ég
held að maður geti fengið að keyra
létt mótorhjól fimmtán ára en fyrst
verður maður að taka próf.
En ertu mikill tölvugaur? Já, ég er
frekar mikið í tölvu. Ég hef farið á
forritunarnámskeið og langar að
læra meira.
Hvað viltu svo helst gera þegar
þú verður stór? Ég veit það ekki.
Kannski verða ökukennari eins og
pabbi minn.
Hefurðu einhvern tíma farið til
útlanda? Já, við fórum í skemmti-
ferðaskip í Orlando fyrir kannski
einu og hálfu ári. Það var rosalega
skemmtileg ferð.
Hvað er eftirminnilegast? Maður
gleymir aldrei skemmtiferðaskip-
inu og ég synti með höfrungum og
gleymi því aldrei heldur.
Hvað ætlar þú að gera í sumar?
Mig langar að komast eitthvert út
með mótorhjólið, ég hef ekki verið
að keyra frekar lengi.
Er einhver staður sem þig langar
að heimsækja á Íslandi? Mig langar
að finna fjörusand og vera með
hjólið þar.
En hver er uppáhaldsmaturinn?
Þetta er rosalega erfið spurning.
Finnst þér allt gott? Já, sérstaklega
það sem mamma mín eldar.
Finnst gaman
að föndra við
mótorhjólið
MAÐUR GLEYMIR
ALDREI SKEMMTI-
FERÐASKIPINU OG ÉG SYNTI
MEÐ HÖFRUNGUM OG GLEYMI
ÞVÍ ALDREI HELDUR.
Lausn á gátunni
Níunda orðið sem vantar er rigning?
„Hér er sko alvöru
stafasúpa Róbert,“ sagði
Lísaloppa. „Þetta er
orðarugl og við eigum
rðin sem eru
falin í gátunni. En við
þurfum að passa okkur,“
bætti hún við íbygginn.
„Því orðin geta líka verið
skrifuð lóðrétt, nú eða
á ská.“ Róbert horfði á
orðaruglið drykklanga
stund. „Og hvaða orð
á é a?“ spurði
hann vonleysislega og
bætti við. „Þetta er bara
hrærigrautur af stöfum.“
„Níu orð tengd sumri
eru falin í gátunni,“
sagði Lísaloppa. „Hvaða
orð eru það, það eru til
óteljandi orð tengd sumri
á íslensku?“ sagði Róbert
og var við það að gefast
upp áður en þau voru
einu sinni byrjuð að leita.
„Orðin sem við eigum að
b ugur, sól,
heyskapur, frí, ferðalag,
farfuglar, sumarnætur og
blóm,“ sagði Lísaloppa.
„En þetta eru bara átta
orð, þú sagðir að við
ætt rð.“
Róbert varð æ ringlaðri
á þessu stafarugli. „Já,“
sagði Lísaloppa. „Það
er eitt leyniorð og við
þurf hvaða
orð það er.“ Róbert
horfði vonleysislega á
orðaruglið. „Allt í lagi,
förum að leita.“
Konráð
á ferð og ugi
og félagar
406
K Ð Í N L Ú R É S M L Ú N X F V K A L B H
Í Í D N Á Í M N G U Y B Ó M É M J F Á X P
V Y K U G T Ð O H Á M Ý Í H A E O V Í Á Ð
G Ú P Í D T I B E D I A É U É Ó Y J D P N
K U D N B N U E Y Í R F R T D U F V J F Í
E N I L L D I J S I F I Ó N Ð L H D R P I
Ð O A O S V S L K K Y Í É M Æ Í A R Á S S
F G O L U Y G Ó A S Ý S Ó L V T Á B Ý L Ð
U K Í E A Ó N E P Í Í U P T Ð Ó U P R X Ó
L Ð Ó D U R Ó P U L Ý Ð S Ó H N U R N P E
Ú Í H Ð G H A U R U Ý G J D L Ó A Á O E Á
S P H É Á J S P F T F A R F U G L A R Á Ú
Á Ð T A U B X P O A G K Ð P V P Ú G G É U
P G B M A N K Ý J R H M X G S F H J X É E
Ð Ó Ý É K B Y R I G N I N G K P U G D S V
Á E F Y I L D Ó B A L J G I B A G H R P Y
A I L I Ó J M L X O T S I É P A B Ð P H P
M E U É Ý Ó F Á T A Y N B V D S D T Ð H F
Ð I G X L K B R X É P K K Í H Ý O G K É R
V I U B F E R Ð A L A G O O B Ú E M L X Í
Ð Ð R I Á Á Á L F É T M R N X X V G N Ó G
Getur þú
fundið þessi
níu orð og h
vert
skildi leynio
rðið
vera?
?
?
?
3 0 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR