Fréttablaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 88

Fréttablaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 88
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Það er merkilegt hvernig aldurinn kemur yfir mann eins og þoka – hægt og hljótt. Fæstir finna fyrir breytingum þó að áratugir bætist við – eina sem breyt ist er í raun útsýnið, ekki síst í speglinum. Fjölskylda og sam- ferðafólk lendir í sömu þokunni, en það er helst að tíminn standi í stað í vinahópum þar sem hegðun breytist lítt í áranna rás. Við vinkonurnar sem kynnt- umst í Versló ákváðum að stofna saumaklúbb þegar líða tók að útskrift, til að halda hópinn. Þetta er hefðbundinn, íslenskur sauma- klúbbur sem hefur viðhaldið áralangri vináttu – undir yfirskini hannyrða. Þarna er skrafað og f lissað – hlegið og grátið og við reynum eftir fremsta megni að halda hver annarri vel upplýstri um helstu breytingar á högum landa okkar. Eftir því sem árunum hefur fjölgað hefur fyrirhöfnin orðið minni, hnallþórur eru sjald- séðar og dísætt meðlætið. Góður og einfaldur réttur er oft látinn duga og virðist almenn ánægja ríkja með þessa þróun, ekki síst ef þess er gætt að hafa nóg af hvítvíni til að dreypa á. Aðrir fjölskyldu- meðlimir taka þessum heim- sóknum með ró – húsbóndinn er einfaldlega sendur út af heimilinu og börnin eru atkvæðalaus. Þó gerðist það hér í eina tíð að dóttirin reyndist mjög spennt þegar henni var tilkynnt að von væri á stelpunum um kvöldið. Sennilega átti hún von á öðrum stelpum en birtust hver af annarri því þegar stofan var orðin þéttset- in af konum á fimmtugsaldri sagði hún með brostin augu; „Eru þetta stelpurnar?“ Og það var akkúrat á þessu augnabliki sem dóttirin lærði að það er eitt sem tíminn fær engu um breytt. Stelpur eru og verða stelpur – ævina á enda! Saumaklúbbur ævina á enda © Inter IKEA System s B.V. 2020 BÆTTU LÍKAMSSTÖÐUNA Minni verkir, betri líðan GÖNGUGREINING Faeturtoga.is S: 55 77 100 Laugarásvegur 1 Pantaðu á skubb.is OG FÁÐU HEIMSENT Margrétar Kristmannsdóttur BAKÞANKAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.