Fréttablaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 35
Ertu að leita að sérfræðingi?
hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 10. júní nk. Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is.
Markmið samstarfsins:
• Stuðla að aukinni verðmætasköpun
með sterkum stuðningi við nýsköpun
og hátækni
• Stuðla að uppbyggingu atvinnulífs
og auka við atvinnusköpun
• Stuðla að bættri nýtingu auðlinda
• Stuðla að aukinni þekkingu á samspili
samfélags, umhverfis og efnahags
• Auka matvælaframleiðslu og
áframvinnslu matvæla á svæðinu
með það fyrir augum að auka
verðmætasköpun
• Fjölga möguleikum svæðisins til að
takast á við áskoranir samtímans og
gera svæðið leiðandi þegar kemur að
samspili orku, umhverfis og samfélags
með sjálfbærni og verðmætasköpun
að leiðarljósi
Leitað er að drífandi og jákvæðum leiðtoga til að leiða samstarfsverkefnið EIM næstu þrjú
árin. Leitað er að framúrskarandi einstaklingi með brennandi áhuga á sjálfbærnimiðaðri
verðmætasköpun og græna hagkerfinu til að þróa og fylgja eftir markmiðum EIMS.
Starfsstöð framkvæmdastjóra er á Húsavík eða Akureyri.
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Helstu verkefni:
• Umsjón með daglegum rekstri EIMS
• Stefnumótun og áætlanagerð
• Koma fram fyrir hönd EIMS og kynna
starfsemi verkefnisins
• Samskipti og tengsl við hagaðila
• Utanumhald verkefna innan EIMS
• Leita tækifæra til að efla verkefnið
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Meistarapróf sem nýtist í starfi
• Reynsla af stjórnun og rekstri
• Leiðtogahæfni og drifkraftur
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum
samskiptum
• Frumkvæði og sjálfstæði
• Góð tungumálakunnátta
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
EIMUR er samstarfsverkefni sem snýr
að bættri nýtingu orkuauðlinda og
aukinni nýsköpun á Norðurlandi eystra.
Að verkefninu standa, Landsvirkjun,
Norðurorka, Orkuveita Húsavíkur og SSNE.
Upplýsingar um sumarstörf má finna
á heimasíðu EIMS www.eimur.is
Leitað er að öflugum einstaklingi til að halda utan um þátttöku EIMS í rannsóknar- og
þróunarverkefnum. Rannsóknar- og þróunarstjóri vinnur þétt með framkvæmdastjóra
EIMS og hefur frumkvæði að mótun og fjármögnun nýrra verkefna í samstarfi við
framkvæmdastjóra, stjórn og hagsmunaaðila. Starfsstöð rannsóknar- og þróunarstjóra er
á Húsavík eða Akureyri.
RANNSÓKNAR- OG ÞRÓUNARSTJÓRI
Helstu verkefni:
• Vinna að greiningum og þátttöku EIMS
í innlendum og erlendum þróunarverkefnum
• Aðstoð við að koma verkefnum EIMS
á framfæri
• Verkefnastjórn einstakra verkefna
• Samskipti og tengsl við hagsmunaaðila
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Meistarapróf sem nýtist í starfi
• Starfsreynsla sem nýtist í starfi
• Reynsla af gerð styrkumsókna í innlenda
og erlenda sjóði
• Reynsla af verkefnastjórn
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
og ensku
ATVINNUAUGLÝSINGAR 5 L AU G A R DAG U R 3 0 . M A Í 2 0 2 0