Fréttablaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 39
Skólastjóri Bláskógaskóli, Reykholti Bláskógabyggð auglýsir eftir umsóknum um starf skóla- stjóra til að stýra Bláskógaskóla í Reykholti, Biskupstung- um. Skólinn er fyrir nemendur í 1. til 10. bekk. Í skólanum eru 83 nemendur og þar starfa 20 starfsmenn. Kjörorð skólans eru Virðing-Vellíðan-Samvinna. Bláskógaskóli í Reykholti er annar tveggja grunnskóla Blá- skógabyggðar. Gott samstarf er við leikskólann Álfaborg í Reykholti, Bláskógaskóla á Laugarvatni og Kerhólsskóla í Grímsnes- og Grafningshreppi. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir leið- togahæfni og hefur mikla reynslu og þekkingu á grunn- skólastarfi. Skólastjóri starfar skv. lögum og reglugerðum um grunnskóla og öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá, námskrá skólans og skólastefnu Bláskógabyggðar. Helstu verkefni og ábyrgðarsvið: • Veita skólanum faglega forystu. • Virk þátttaka í þróun og skipulagi skólastarfs í sveitar- félaginu. • Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri skólans. • Samstarf við skólanefnd, sveitarstjóra og sveitarstjórn og aðra aðila skólasamfélagsins. Menntunar- og hæfnikröfur: • Leyfisbréf grunnskólakennara og kennslureynsla á grunnskólastigi er skilyrði. • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og lipurð í samstarfi er skilyrði. • Þekking og reynsla af rekstri og stjórnun er kostur. • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður. • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti. • Góð almenn tölvukunnátta. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna Skólastjórafélags Íslands. Starfshlutfall er 100%. Umsókn fylgi kynningarbréf, yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf fyrir starfsheitið kennari og framtíðarsýn umsækjanda varðandi þróun skólastarfs. Starfið hentar einstaklingum óháð kyni. Umsóknarfrestur er til 18. júní 2020. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2020. Nánari upplýsingar veitir Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri, í síma 480 1900. Umsókn ásamt fylgigögnum skal send á netfangið asta@blaskogabyggd.is. Bláskógabyggð Orkugarður Grensásvegi 9 108 Reykjavík www.os.is Bókari Orkustofnun auglýsir laust til umsóknar starf aðalbókara. Um er að ræða 100% starf. Helstu verkefni: • Dagleg umsjón bókhalds • Afsteminingar (banka, viðskipta og virðisauka) • Frágangur reikninga • Innheimta • Uppgjör • Umsjón með launavinnslu og viðverubókhaldi. Hæfniskröfur: • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi, sbr. helstu verkefni. • Traust, trúnaður og færni í mannlegum samskiptum. • Frumkvæði, áreiðanleiki, nákvæmni og sjálfstæði í starfi. • Skipulagshæfileikar og öguð vinnubrögð. • Góð tölvufærni sérstaklega í Excel og MS Navison(eða sambærilegu bókhaldskerfi). • Gott vald á íslensku og ensku er skilyrði og þekking á einu norðurlandamáli æskileg. • Hæfileiki til þess að koma frá sér efni í töluðu og rituðu máli. • Reynsla af verkbókhaldi og samningum telst kostur. • Þekking á Oracle mannauðs- og launakerfi hjá ríkisstofnunum er kostur. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis við viðkomandi stéttarfélag. Nánari upplýsingar veitir Guðni A Jóhannesson orkumálastjóri, sími 5696000, netfang gudni.a.johannesson@os.is. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf berist á netfang os@os.is eða til Orkustofnunar, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík eða eigi síðar en 18. júní 2020 Öllum umsóknum verður svarað eftir að ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Orkumálastjóri Orkustofnun: • Annast stjórnsýslu sem stofnuninni er falin með lögum, svo sem auðlindalögum, vatnalögum, raforkulögum, lögum um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins og lögum um kolvetni. • Safnar gögnum um nýtingu orkulinda og annarra jarðrænna auðlinda. • Stendur fyrir rannsóknum á nýtingu orkulinda og annarra jarðrænna auðlinda. • Vinnur að áætlanagerð til langs tíma um orkubúskap þjóðarinnar. • Er stjórnvöldum til ráðuneytis um orkumál og aðra auðlindanýtingu. • Fer með leyfisveitingar vegna rannsókna og nýtingar á auðlindum og orkuvinnslu. • Annast eftirlit með framkvæmd raforkulaga, • Fer með umsýslu Orkusjóðs, niðurgreiðslna vegna húshitunar og Orkuseturs. Launafulltrúar, gjaldkerar, þjónustufulltrúar hagvangur.is ATVINNUAUGLÝSINGAR 9 L AU G A R DAG U R 3 0 . M A Í 2 0 2 0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.