Fréttablaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 38
Skólastjóri Hlíðaskóla
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu skólastjóra við Hlíðaskóla lausa til umsóknar.
Hlíðaskóli við Hamrahlíð er hverfisskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn er staðsettur í rólegu og fallegu umhverfi þar sem
stutt er í náttúruperlur, svo sem Öskjuhlíð og Nauthólsvík. Í skólanum eru um 520 nemendur og 100 starfsmenn.
Menning skólans byggir á hefðum en einnig á nýjungum og framþróun og skólastarfið tekur mið af menntastefnu Reykjavíkur-
borgar, Látum draumana rætast.
Í Hlíðaskóla er starfrækt Táknmálssvið fyrir heyrnarlausa, heyrnarskerta og daufblinda nemendur og nemendur á yngri stigum
fá kennslu í íslensku táknmáli vikulega.
Rík hefð er fyrir öflugri listgreinakennslu í Hlíðaskóla og eru settir upp söngleikir árlega á yngri stigum og í unglingadeild þriðja
hvert ár. Í skólanum er unnið eftir hugmyndafræði SMT skólafærni sem miðar að því að auka félagsfærni nemenda, gera þá
ábyrga í námi og starfi, skapa gott andrúmsloft og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks. Markvisst er unnið sam-
kvæmt hugmyndafræði Byrjendalæsis í yngri bekkjum og Hlíðaskóli hefur tekið þátt í þróunarverkefni sem miðar að því að verða
þekkingarskóli í leiðsagnarnámi.
Skólinn tekur þátt í verkefninu Græn skref Reykjavíkurborgar og í Vinaliðaverkefninu. Kjörorð skólans ábyrgð, virðing, vinsemd
eru leiðarljós í öllu starfi hans.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og hefur víðtæka reynslu og
þekkingu á grunnskólastarfi.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari, greinargerð um framtíðarsýn umsækjanda á
skólastarfið, upplýsingar um framsækin verkefni sem umsækjandi hefur leitt og annað er málið varðar.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2020. Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2020.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna Skólastjórafélags Íslands. Umsækjendur eru
beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf.
Nánari upplýsingar veita Soffía Vagnsdóttir, skrifstofustjóri grunnskólahluta fagskrifstofu, og Ragnheiður E. Stefánsdóttir,
mannauðsstjóri, sími 411 1111. Netföng: soffia.vagnsdottir@reykjavik.is / ragnheidur.e.stefansdottir@reykjavik.is
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Veita skólanum faglega forystu og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við
aðalnámskrá grunnskóla og stefnu Reykjavíkurborgar.
• Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, vinnutil-
högun og starfsþróun.
• Bera ábyrgð á samstarfi aðila skólasamfélagsins.
Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu
Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, þar sem
leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og
fagmennska.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á grunn-
skólastigi.
• Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í skóla-
starfi.
• Stjórnunarhæfileikar.
• Færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Færni til að leita nýrra leiða í skólastarfi og leiða framsækna
skólaþróun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
OPUS lögmenn leita að öflugum starfsmanni
í framtíðarstarf.
Um er að ræða 100%
starfshlutfall, vinnutími
frá 9.00 til 17.00.
Starfið felst í umsjón
skrifstofunnar, móttöku
viðskiptavina, reiknings -
gerð, ýmsum verkefnum
fyrir lögmenn stofunnar,
sem og umsjón með
kaaðstöðu og móttöku
stofunnar.
Við leitum að ein-
staklingi sem hefur að
bera ríka þjónustulund,
hæfileika til mannlegra
samskipta, vilja til að
takast á við fjölbreytt
verkefni, er úrræðagóður
og glaðlyndur.
Reynsla af færslu
bókhalds er kostur.
SKRIFSTOFU-
UMSJÓN, MÓTTAKA,
REIKNINGSGERÐ
Austurstræti 17 \ Sími 415 2200
Umsóknir skulu berast á
netfangið: starf@opus.is
Umsóknarfrestur er til
og með 22. júní nk.
Viðkomandi þarf að geta
hafið störf 4. ágúst nk.
Umsóknarfrestur er
til og með 11. júní nk.
Umsækjendur eru
vinsamlegast beðnir
að sækja um starfið
á alfred.is.
BHM hvetur jafnt konur
sem karla til að sækja
um starfið.
Umsókn þarf að fylgja
ítarleg starfsferilsskrá
og kynningarbréf þar
sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og
rökstuðningur fyrir hæfni
viðkomandi í starfið.
Nánari upplýsingar
um starfið veitir Auður
Bjarnadóttir eða
audur@lidsauki.is.
Nánari upplýsingar
er að finna á bhm.is
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem reynir á frumkvæði og úthald í áhugaverðum
verkefnum. Hagfræðingur er lykilstarfsmaður hjá bandalaginu, situr í sérfræðingateymi
BHM og er verkefnastjóri Kjara- og réttindanefndar BHM. Hagfræðingur heyrir undir
framkvæmdastjóra og starfar náið með honum sem og formanni og öðru starfsfólki
BHM og aðildarfélaga þess.
BHM er heildarsamtök 27 stéttarfélaga háskólamenntaðra á vinnumarkaði. BHM gegnir
lykilhlutverki í hagsmunagæslu fyrir starfsstéttir háskólamenntaðra hér á landi.
Nánari upplýsingar er að finna á www.bhm.is
Hagfræðingur BHM ber m.a. ábyrgð á:
• Umsýslu og umsjón launatölfræði.
• Gerð sjálfstæðra úttekta um hagfræðileg málefni.
• Gagnagrunni BHM, uppfærslu hans og öðrum tölfræðikerfum.
• Að veita aðildarfélögum upplýsingar og greiningar á stöðu og framvindu efnahagsmála.
• Ráðgjöf og fræðslu tengdri kjarasamningum.
• Gerð umsagna um þingmál á sínu sérsviði.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í hagfræði, viðskiptafræði eða skyldum greinum.
• Meistarapróf í hagfræði er skilyrði.
• Marktæk reynsla af hagfræðistörfum.
• Góð greiningarhæfni og gott vald á úrvinnslu og framsetningu tölulegra upplýsinga.
• Þekking og reynsla af málefnum stéttarfélaga og vinnumarkaðsmálum er kostur.
• Góð þekking á töflureikni og reynsla af vinnslu gagnagrunna.
• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum.
• Færni til að vinna í hópi og hæfni til að leiða mál til lykta.
• Frumkvæði og metnaður.
• Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti, þekking á einu Norðurlandamáli er kostur.
BHM leitar að öflugum hagfræðingi
með ríka samstarfshæfileika
Grunnskólar
• Deildarstjóri stoðþjónustu - Setbergsskóli
• Heimilisfræðikennsla - Setbergsskóli
• Íþróttakennari - Öldutúnsskóli
• Stuðningsfulltrúi - Hraunvallaskóli
• Tómstundaleiðbeinandi - Aldan
• Tómstundaleiðbeinandi - Vitinn
• UT kennsla - Setbergsskóli
Leikskólar
• Leikskólakennari - Hlíðarendi
• Sérkennslustjóri - Víðivellir
Málefni fatlaðs fólks
• Starfsmaður í nýjan búsetakjarna
• Þroskaþjálfi - heimili fyrir fatlað fólk
• Þroskaþjálfi - Hæfingarstöðin að Bæjarhrauni
• Þroskaþjálfi - nýr búsetukjarni
Sumarstörf háskólanema
• Sumarstörf við rannsóknir og nýsköpun
Vinnuskóli Hafnarfjarðar
• Biðlisti fyrir 18 ára og eldri
• Vinnuskóli fyrir ungmenni fædd 2004
• Vinnuskóli fyrir ungmenni fædd 2005
• Vinnuskóli fyrir ungmenni fædd 2006
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna
hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir
bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.
Nánar á hafnarfjordur.is
HJÁ HAFNARFJARÐARBÆ
LAUS STÖRF
hafnarfjordur.is585 5500
8 ATVINNUAUGLÝSINGAR 3 0 . M A Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R