Fréttablaðið - 30.05.2020, Síða 38

Fréttablaðið - 30.05.2020, Síða 38
Skólastjóri Hlíðaskóla Skóla- og frístundasvið Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu skólastjóra við Hlíðaskóla lausa til umsóknar. Hlíðaskóli við Hamrahlíð er hverfisskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn er staðsettur í rólegu og fallegu umhverfi þar sem stutt er í náttúruperlur, svo sem Öskjuhlíð og Nauthólsvík. Í skólanum eru um 520 nemendur og 100 starfsmenn. Menning skólans byggir á hefðum en einnig á nýjungum og framþróun og skólastarfið tekur mið af menntastefnu Reykjavíkur- borgar, Látum draumana rætast. Í Hlíðaskóla er starfrækt Táknmálssvið fyrir heyrnarlausa, heyrnarskerta og daufblinda nemendur og nemendur á yngri stigum fá kennslu í íslensku táknmáli vikulega. Rík hefð er fyrir öflugri listgreinakennslu í Hlíðaskóla og eru settir upp söngleikir árlega á yngri stigum og í unglingadeild þriðja hvert ár. Í skólanum er unnið eftir hugmyndafræði SMT skólafærni sem miðar að því að auka félagsfærni nemenda, gera þá ábyrga í námi og starfi, skapa gott andrúmsloft og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks. Markvisst er unnið sam- kvæmt hugmyndafræði Byrjendalæsis í yngri bekkjum og Hlíðaskóli hefur tekið þátt í þróunarverkefni sem miðar að því að verða þekkingarskóli í leiðsagnarnámi. Skólinn tekur þátt í verkefninu Græn skref Reykjavíkurborgar og í Vinaliðaverkefninu. Kjörorð skólans ábyrgð, virðing, vinsemd eru leiðarljós í öllu starfi hans. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og hefur víðtæka reynslu og þekkingu á grunnskólastarfi. Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari, greinargerð um framtíðarsýn umsækjanda á skólastarfið, upplýsingar um framsækin verkefni sem umsækjandi hefur leitt og annað er málið varðar. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2020. Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2020. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna Skólastjórafélags Íslands. Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf. Nánari upplýsingar veita Soffía Vagnsdóttir, skrifstofustjóri grunnskólahluta fagskrifstofu, og Ragnheiður E. Stefánsdóttir, mannauðsstjóri, sími 411 1111. Netföng: soffia.vagnsdottir@reykjavik.is / ragnheidur.e.stefansdottir@reykjavik.is Helstu verkefni og ábyrgð: • Veita skólanum faglega forystu og móta framtíðarstefnu hans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla og stefnu Reykjavíkurborgar. • Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans. • Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, vinnutil- högun og starfsþróun. • Bera ábyrgð á samstarfi aðila skólasamfélagsins. Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, þar sem leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska. Menntunar- og hæfniskröfur: • Leyfi til að nota starfsheitið kennari. • Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á grunn- skólastigi. • Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í skóla- starfi. • Stjórnunarhæfileikar. • Færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun. • Færni til að leita nýrra leiða í skólastarfi og leiða framsækna skólaþróun. • Lipurð og hæfni í samskiptum. OPUS lögmenn leita að öflugum starfsmanni í framtíðarstarf. Um er að ræða 100% starfshlutfall, vinnutími frá 9.00 til 17.00. Starfið felst í umsjón skrifstofunnar, móttöku viðskiptavina, reiknings - gerð, ýmsum verkefnum fyrir lögmenn stofunnar, sem og umsjón með ka­aðstöðu og móttöku stofunnar. Við leitum að ein- staklingi sem hefur að bera ríka þjónustulund, hæfileika til mannlegra samskipta, vilja til að takast á við fjölbreytt verkefni, er úrræðagóður og glaðlyndur. Reynsla af færslu bókhalds er kostur. SKRIFSTOFU- UMSJÓN, MÓTTAKA, REIKNINGSGERÐ Austurstræti 17 \ Sími 415 2200 Umsóknir skulu berast á netfangið: starf@opus.is Umsóknarfrestur er til og með 22. júní nk. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 4. ágúst nk. Umsóknarfrestur er til og með 11. júní nk. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á alfred.is. BHM hvetur jafnt konur sem karla til að sækja um starfið. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Auður Bjarnadóttir eða audur@lidsauki.is. Nánari upplýsingar er að finna á bhm.is Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem reynir á frumkvæði og úthald í áhugaverðum verkefnum. Hagfræðingur er lykilstarfsmaður hjá bandalaginu, situr í sérfræðingateymi BHM og er verkefnastjóri Kjara- og réttindanefndar BHM. Hagfræðingur heyrir undir framkvæmdastjóra og starfar náið með honum sem og formanni og öðru starfsfólki BHM og aðildarfélaga þess. BHM er heildarsamtök 27 stéttarfélaga háskólamenntaðra á vinnumarkaði. BHM gegnir lykilhlutverki í hagsmunagæslu fyrir starfsstéttir háskólamenntaðra hér á landi. Nánari upplýsingar er að finna á www.bhm.is Hagfræðingur BHM ber m.a. ábyrgð á: • Umsýslu og umsjón launatölfræði. • Gerð sjálfstæðra úttekta um hagfræðileg málefni. • Gagnagrunni BHM, uppfærslu hans og öðrum tölfræðikerfum. • Að veita aðildarfélögum upplýsingar og greiningar á stöðu og framvindu efnahagsmála. • Ráðgjöf og fræðslu tengdri kjarasamningum. • Gerð umsagna um þingmál á sínu sérsviði. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólapróf í hagfræði, viðskiptafræði eða skyldum greinum. • Meistarapróf í hagfræði er skilyrði. • Marktæk reynsla af hagfræðistörfum. • Góð greiningarhæfni og gott vald á úrvinnslu og framsetningu tölulegra upplýsinga. • Þekking og reynsla af málefnum stéttarfélaga og vinnumarkaðsmálum er kostur. • Góð þekking á töflureikni og reynsla af vinnslu gagnagrunna. • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum. • Færni til að vinna í hópi og hæfni til að leiða mál til lykta. • Frumkvæði og metnaður. • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti, þekking á einu Norðurlandamáli er kostur. BHM leitar að öflugum hagfræðingi með ríka samstarfshæfileika Grunnskólar • Deildarstjóri stoðþjónustu - Setbergsskóli • Heimilisfræðikennsla - Setbergsskóli • Íþróttakennari - Öldutúnsskóli • Stuðningsfulltrúi - Hraunvallaskóli • Tómstundaleiðbeinandi - Aldan • Tómstundaleiðbeinandi - Vitinn • UT kennsla - Setbergsskóli Leikskólar • Leikskólakennari - Hlíðarendi • Sérkennslustjóri - Víðivellir Málefni fatlaðs fólks • Starfsmaður í nýjan búsetakjarna • Þroskaþjálfi - heimili fyrir fatlað fólk • Þroskaþjálfi - Hæfingarstöðin að Bæjarhrauni • Þroskaþjálfi - nýr búsetukjarni Sumarstörf háskólanema • Sumarstörf við rannsóknir og nýsköpun Vinnuskóli Hafnarfjarðar • Biðlisti fyrir 18 ára og eldri • Vinnuskóli fyrir ungmenni fædd 2004 • Vinnuskóli fyrir ungmenni fædd 2005 • Vinnuskóli fyrir ungmenni fædd 2006 Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins. Nánar á hafnarfjordur.is HJÁ HAFNARFJARÐARBÆ LAUS STÖRF hafnarfjordur.is585 5500 8 ATVINNUAUGLÝSINGAR 3 0 . M A Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.