Fréttablaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 25
Á FUNDINUM KEMUR Í
LJÓS HVORT TEKIÐ VERÐI
TILLIT TIL ÓÁNÆGJUNNAR
MEÐ FRAMKVÆMDA-
STJÓRNINA.
un,“ segir Valgerður. „Ástæðan sem
var gefin var sú að þessar stéttir
væru ekki hluti af þjónustusamn-
ingunum en þetta var átylla til að
taka út sálfræðingana. Sumir voru
líka komnir að eftirlaunaaldri og
hvort eð er að hætta og því smekk-
laust að segja þeim upp á þennan
hátt. Þetta var alger yfirgangur og
gert undir fölsku flaggi. Allir vissu
að það þyrfti að spara, en þetta var
ekki rétta leiðin fyrir framtíð SÁÁ.
Þetta er svo mikilvægt starf.“
Valgerður segist hafa skynjað
undirtón gegn þeirri starfsemi sem
hún og hennar fólk hafi verið að
þróa á undanförnum árum. Frá fólki
sem hafði verið lengi við stjórn-
völinn, bæði í stjórn og fyrrverandi
yfirmenn á meðferðarsviði.
Aðspurð um hvers vegna hún telji
þennan mótbyr vera segir hún það
mögulega vera ótta við breytingar,
sem séu þó ekki byltingarkenndar
í þessu tilviki. Áfram sé haldið
að byggja ofan á þann grunn sem
lagður hafi verið á síðustu 42 árum.
„Þetta er einhver valdabarátta og
ekki góð staða til að vera inni í. Ég
er ekki stríðskona. Nýjum stjórn-
endum fylgja alltaf breytingar og
nýjar áherslur. Sú faglega vinna sem
unnin hefur verið af því fólki, sem
segja átti upp, er ómetanleg viðbót
fyrir starfsemina og starfsmenn, og
hefur skilað sér beint í betri þjón-
ustu við okkar skjólstæðinga. Þessi
uppbygging þarf að halda áfram.“
Bíður eftir aðalfundi
Þegar uppsagnir starfsmannanna
voru kynntar og Valgerður sagði
upp fór allt á annan endann. Fjöldi
fólks steig fram og lýsti yfir stuðn-
ingi við hana og það starf sem hafði
verið byggt upp. Starfsfólkinu mis-
bauð og það lýsti yfir vantrausti á
formanninn og framkvæmdastjórn-
ina. Félög sálfræðinga og geðlækna
og f leiri gáfu út yfirlýsingar. Hafði
það þó ekki áhrif til breytinga.
Reiði starfsfólks jókst eftir starfs-
mannafund í apríl vegna framkomu
fulltrúa framkvæmdastjórnar og
Valgerður heyrði að margir væru
að gefast upp og ætluðu að hætta.
Á þeim tímapunkti ákvað hún að
draga uppsögn sína til baka, í von
um að ró kæmist á spítalann. Sam-
talið um hlutverk formanns og
framkvæmdastjórnar um fagleg
málefni meðferðarsviðs eigi þó enn
eftir að eiga sér stað.
Ekki hefur verið ákveðin dag-
setning fyrir aðalfund SÁÁ, en
hann verður þó haldinn bráðlega.
Þar verður kosinn 1/3 af 48 manna
stjórn, sem aftur kýs níu manna
framkvæmdastjórn, þar af formann
og varaformann. Eins og staðan er
í dag er Arnþór Jónsson formaður
framkvæmdastjórnar og sam-
takanna SÁÁ. Valgerður segir að
með nýrri stjórn þurfi hlutverk for-
manns að vera skýrt. „Á fundinum
kemur í ljós hvort tekið verði tillit
til óánægjunnar með framkvæmda-
stjórnina. Þetta ástand hefur ekki
haft áhrif á þjónustuna við sjúkling-
ana en vitaskuld hefur þetta áhrif á
líðan starfsfólksins.“
Maraþon og náttúruvernd
Valgerður hefur lengi stundað úti-
vist og gengið á fjöll. Því var haldið
að systkinunum í æsku og í seinni
tíð hefur Valgerður bætt lang-
hlaupum við, með hlaupahópi FH.
Á síðasta ári hljóp hún maraþon í
fyrsta skipti erlendis, hið þekkta
Boston-maraþon, og einnig 60 kíló-
metra hlaup á Ítalíu með hópnum.
„Þetta gerir mjög mikið fyrir mig
og í hópnum mínum er mjög gott
fólk,“ segir Valgerður og brosir. „Ég
verð óþreyjufull ef ég kemst ekki
út að hlaupa en eftir hlaup er ég
endurnærð. Þetta dreifir huganum
og losar um streitu.“
Þegar hún hóf að hlaupa fyrir
alvöru, fyrir um átta árum, segist
hún hafa verið fullgráðug. Þetta
hafi valdið bæði brotum og brjósk-
losi en undanfarin þrjú ár hafi
blessunarlega verið meiðslalaus.
Hún er þakklát fyrir hvert ár í við-
bót sem hún getur hlaupið með
hópnum sínum.
Nú er stefnan sett á 100 kílómetra
hlaup við Mont Blanc í Ölpunum,
með rúmlega 6 þúsund metra hækk-
un, en það var slegið af í ár vegna
COVID-19. Faraldurinn hefur einnig
haft áhrif á annað áhugamál, kóra-
starf með Léttsveit Reykjavíkur, en
æfingar þar hafa legið niðri.
Náttúran er henni líka hjartfólg-
in. Valgerður bendir á innramm-
aða ljósmynd af fjallgönguhópnum
sínum, við topp Hrútfjallstinda á
Vatnajökli. „Þetta er toppurinn á
tilverunni,“ segir hún. „Mér finnst
ákaflega mikilvægt að berjast fyrir
því að víðátta Íslands fái þá virðingu
sem henni ber. Að við skemmum
ekki fyrir framtíðinni með því að
ganga á landið.“
Valgerður hefur tekið þátt í
baráttunni gegn virkjun Hvalár á
Ströndum, sem nú hefur stöðvast,
að minnsta kosti tímabundið.
„Ég skil að við þurfum að lifa af
einhverju, veiða fiskinn í sjónum
og virkja, en við verðum að gera
það með skynsemi. Skammtíma-
hagsmunir mega ekki valda óaftur-
kræfum skaða á landinu. Ég skil vel
að það er ekki auðvelt fyrir stjórn-
málamenn að taka þessar ákvarð-
anir. En þeir verða að horfa á stóru
myndina, ekki aðeins hagsmunaað-
ila. Það er svo mikið í húfi.“
Nú er rétti tíminn til að njóta Íslands
og alls þess sem lífið hefur upp á að bjóða.
Hvort sem þú vilt vera sóló, í hópi eða í rómans geturðu fundið þína
flugleið til Egilsstaða þar sem Vök Baths, Icelandair hótel Hérað og
fleiri eðalviðkomustaðir taka þér og þínum fagnandi.
Flug og bíll eða flug og gisting eru á sérkjörum í allt sumar þannig
að núna er rétti tíminn til að kynnast Egilsstöðum upp á nýtt.
+ Bókaðu á airicelandconnect.is
+ Heiður Vigfúsdóttir
Vök Baths, við Egilsstaði
Flug og gisting frá
í eina nótt á mann
29.900 kr.
Flug og bíll frá
í einn sólarhring á mann
28.900 kr.
+ Egilsstaðir
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 25L A U G A R D A G U R 3 0 . M A Í 2 0 2 0