Fréttablaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 34
Orkugarður
Grensásvegi 9
108 Reykjavík
www.os.is
Orkustofnun:
• Annast stjórnsýslu sem stofnuninni
er falin með lögum, svo sem
auðlindalögum, vatnalögum,
raforkulögum, lögum um eignarrétt
íslenska ríkisins að auðlindum
hafsbotnsins og lögum um kolvetni.
• Safnar gögnum um nýtingu orkulinda
og annarra jarðrænna auðlinda.
• Stendur fyrir rannsóknum á nýtingu
orkulinda og annarra jarðrænna
auðlinda.
• Vinnur að áætlanagerð til langs tíma
um orkubúskap þjóðarinnar.
• Er stjórnvöldum til ráðuneytis um
orkumál og aðra auðlindanýtingu.
• Fer með leyfisveitingar vegna rannsókna
og nýtingar á auðlindum og orkuvinnslu.
• Annast eftirlit með framkvæmd
raforkulaga,
• Fer með umsýslu Orkusjóðs,
niðurgreiðslna vegna húshitunar
og Orkuseturs.
Sérfræðingur/
verkefnisstjóri
við starfsstöð Orkustofnunar að Rangárvöllum á Akureyri
Helstu verkefni og starfssvið
Verkefni starfsins ná yfir umsjón og rekstur Orkusjóðs, greiningar og ráðgjöf
vegna nýrra orkulausna, ráðgjöf við stjórnvöld og greiningar vegna aðgerða á
svið orkuskipta og loftslagsmála og hvers kyns gagnavinnsla og -greining svo
dæmi séu tekin.
Við starfsstöð Orkustofnunar á Rangárvöllum á Akureyri er aðstaða fyrir
4 starfsmenn. Helstu verkefni sem nú eru unnin þar eru umsjón með
niðurgreiðslum á rafhitun á köldum svæðum, ráðgjöf og styrkveitingar vegna
orkuskipta og betri orkunýtingar á köldum svæðum, umsjón og reksturs
Orkusjóðs, styrkjum til bættrar orkunýtni, orkusparnaðar og minni notkunar
jarðefnaeldsneytis, styrkjum til innviðauppbyggingar vegna orkuskipta í
samgöngum og lána til jarðhitaleitar að undangengnum forrannsóknum.
Orkustofnun vinnur eftir svokölluðu flötu skipulagi þannig að sérfróðum
starfsmönnum er úthlutað verkefnasviðum sem þeir vinna tiltölulega sjálfstætt
og bera ábyrgð á gagnvart orkumálastjóra. Samstarf þvert á verkefnasvið fer
fram í teymum á jafningjagrundvelli.
Hæfniskröfur
Við erum að leita að einstaklingi með með meistarapróf í verkfræði eða
raunvísindum og menntun og reynslu sem nýtist í starfinu, sbr. helstu verkefni.
Æskilegt er að umsækjendur hafi góða samskiptahæfileika og hæfni í skriflegri
framsetningu, íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli.
Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis við viðkomandi
stéttarfélag.
Nánari upplýsingar veitir Guðni A Jóhannesson orkumálastjóri, sími 5696000,
netfang gudni.a.johannesson@os.is.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf berist á netfang
os@os.is eða til Orkustofnunar, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík eða eigi síðar en
18. júní 2020.
Öllum umsóknum verður svarað eftir að ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Orkumálastjóri
Birgðastjóri
Norðanfiskur ehf. óskar eftir að ráða til starfa birgðastjóra.
Um framtíðarstarf er að ræða innan öflugs teymis lykilstjórnenda hjá félaginu
á aðalstarfstöð Norðanfisks að Vesturgötu 5, Akranesi.
Áhugasamir sendi umsókn ásamt ferilskrá á netfangið nordanfiskur@nordanfiskur.is
Umsóknarfrestur er til 12. júní 2020
Helstu verkefni:
Um fjölþætt starf er að ræða og felur það í sér yfirumsjón
með eftirfarandi:
• Birgðahaldi lagers
• Umsjón starfsfólks á lager
• Birgðatalningum og upplýsingagjöf til framkvæmdastjóra
• Móttöku og afhendingum á vörum og hráefni
• Birgðahaldi og innkaupum aðfanga fyrir framleiðslu
og lager
• Upplýsingakerfi (Microsoft NAV) – skráningu birgða
og framleiðslu
• Að vörulager sé ávalt snyrtilegur og frágangur afgreiðslu til
fyrirmyndar
Einnig innifelur starfið stuðning við framleiðsludeildir félags-
ins ásamt endurskoðun og úrbótum ferla, bæði í lagerhaldi
og framleiðslu.
Menntun og hæfniskröfur
• Háskólamenntun kostur
• Þekking og reynsla af birgðastörfum
• Almenn ökuréttindi
• Góð íslensku og ensku kunnátta
• Almenn tölvukunnátta, excel og Microsoft NAV (eða sam-
bærilegs kerfis)
• Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp
Norðanfiskur ehf. sérhæfir sig í framleiðslu, sölu og dreifingu á úrvals sjávarfangi til veitinga-
og stóreldhúsa á innanlandsmarkaði ásamt sölu neytendapakkninga í verslunum um land allt.
Félagið hefur það að leiðarljósi að þjónusta íslenskan veitinga- og smásölumarkað með gæða-
og hollustuvörum úr sjávarfangi ásamt því að vera áreiðanlegur og leiðandi birgi fyrir sína
viðskiptavini með úrvals þjónustu í að verða 20 ár. Fjölbreytt og gott vöruúrval fyrirtækisins
spannar um 250 vörutegundir sem eru framleiddar í starfsstöð félagsins á Akranesi.
Sveitarfélagið Strandabyggð
auglýsir störf til umsóknar
Grunnskólinn á Hólmavík og
Leikskólinn Lækjarbrekka
Lausar stöður skólaárið 2020-2021
• Staða umsjónarkennara á yngsta stigi 100%. Um er að
ræða samkennslu í 1. – 3. bekk. Allar almennar kennslu-
greinar.
• Staða umsjónarkennara á unglingastigi 100%. Um er að
ræða samkennslu í 7. – 10. bekk. Allar almennar kennslu-
greinar.
• Staða íþróttakennara 100%. Um er að ræða kennslu í skóla-
íþróttum og sundi og þjálfun íþróttagreina í samstarfi við
íþróttafélagið Geislann á Hólmavík.
• Tvær stöður leikskólakennara100%. Um er að ræða al-
mennt starf á deild.
• Staða stuðningsfulltrúa 100%. Um er að ræða þjálfun
nemanda með sérþarfir og eftirfylgni í grunnskóla og tóm-
stundastarfi.
Umsækjendur um kennarastöður þurfa að hafa kennslurétt-
indi. Leitað er eftir einstaklingum sem hafa góða skipulags-
hæfileika og mikla hæfni í mannlegum samskiptum. Áhersla
er lögð á jákvæðan aga, samþætt þemabundin verkefni og
teymisvinnu. Reynsla af samkennslu árganga, og áhugi á
þróunarstarfi eru mikilvæg. Umsækjendur skulu hafa hreint
sakavottorð.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitar-
félaga og Kennarasambands Íslands.
Umsóknarfrestur er til miðnættis 14. júní 2020.
Nánari upplýsingar veitir:
Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir, skólastjóri, sími 451 3430, net-
fang skolastjori@strandabyggd.is
Umsóknir með starfsferilsskrá og afriti prófskírteina
ásamt upplýsingum um meðmælendur sendist á
skolastjori@strandabyggd.is
Tómstundafulltrúi
Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir laust til umsóknar starf
tómstundafulltrúa. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt
starf fyrir skapandi og skipulagðan einstakling sem hefur
unun af samskiptum. Um 75% starf er að ræða.
Helstu verkefni
• Verkefnavinna og stefnumótun á sviði tómstunda-, íþrótta-
og menningarmála í Strandabyggð
• Samvinna með skólastjóra Grunn-, leik- og tónskóla Hólma-
víkur að málefnum á sviði menntunar og tómstunda
• Vinna með Tómstunda-, íþrótta og menningarnefnd sveitar-
félagsins
• Umsjón með starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Ozon og ung-
mennahússins Fjóssins
• Umsjón með Ungmennaráði Strandabyggðar
• Umsjón með skipulögðu starfi eldri borgara í Strandabyggð
• Verkefnastjórnun við hátíðahöld og viðburði á vegum
Strandabyggðar
• Undirbúningur vegna vinnuskóla, menningardvalar og
sumarnámskeiða
• Stuðningur við félagastarf á sviði tómstunda, íþrótta og
menningar
• Sérstök nýsköpun og stuðningur við þá hópa sem hafa lítið
framboð við hæfi í Strandabyggð
• Samvinna við nágrannasveitarfélög og á landsvísu á sviði
tómstundamála
• Samstarf við íþróttafélög, starfsfólk íþróttamiðstöðvar og
félagasamtök á svæðinu
Æskileg menntun, færni og eiginleikar
• Háskólapróf á sviði tómstunda- og félagsmálafræði eða
skyldum greinum sem nýtast í starfi
• Skipulags- og stjórnunarfærni
• Reynsla af félagsstörfum með börnum og ungmennum
• Samskiptafærni og geta til að tjá sig í ræðu og riti
• Frumkvæði, jákvætt hugarfar og hugmyndaauðgi
• Er hvetjandi og góð fyrirmynd
Umsóknarfrestur er til miðnættis 14. júní 2020.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Strandabyggðar að Höfða-
götu 3, eða á netfangið: strandabyggd@strandabyggd.is
Allar frekari upplýsingar um starfið veitir Þorgeir Pálsson
sveitarstjóri, í síma 451-3510 eða 899-0020, eða á netfangið
thorgeir@strandabyggd.is
Í Strandabyggð búa um 460 manns og er Hólmavík þéttbýlis-
staður sveitarfélagsins. Atvinnulíf í sveitarfélaginu er fjöl-
breytt og skólastarf öflugt. Boðið er upp á leikskólapláss fyrir
börn frá 9 mánaða aldri og auk grunnskóla fyrir börn frá 1.-10.
bekk er á staðnum dreifnámsbraut frá FNV fyrir nemendur á
framhaldsskólastigi. Öflugt tómstunda-, íþrótta- og menn-
ingarstarf er í sveitarfélaginu, s.s. skíðafélag, tveir kórar fyrir
fullorðna, tónlistarskóli og áhugaleikfélag og hugað er að því
að sem flestir aldurshópar fái notið sín.