Íþróttablaðið - 01.11.1939, Side 13
ÍÞRÓTTABLAÐÍÐ
2. Ármann ............ 2 — 5.0 —
3- K. R............... 2 — 5.8 -
Fyrra metiS, sem Ægir átti einnig, var 1 mín.
57.7. 1 Ægis-liSinu voru Jónas Halldórsson, HörSur
Sigurjónsson, Halldór Baldvinsson og Logi Einars-
son, og er þetta vafalaust sterkasta liö, sem hægt er
aS stilla upp hér á landi.
400 mtr. frjáls aðferð, karlar.
1. Jónas Halldórsson (Æ.) ..... 5 mín. 17.0 sek.
2. GuSbrandur Þorkelsson (K.R.) 5 — 51.2 —
3. Randver Þorsteinsson (Á.) .... 6 — 14.5 —
Jónas var ofjarl keppinauta sinna eins og vant er
og synti vel og stilhreint alla leiS. GuSbrandur er,
eins og áöur hefir verið sagt, kröftugur sundmaöur,,
en heldur stílnum ekki nógu vel. Þeir Randver og
Lárus Þórarinsson (Á), sem varö nr. 4 á 6:21.7, eru
ungir og efnilegir sundmenn, sem mikils má af
vænta. Lárus synti sérstaklega mjúkt, en fótatökin
voru ekki nógu góö. MetiS, 5 mín. 10.7 sek., á Jónas
Halldórsson.
50 mtr. bringusund, stúlkur innan 14 ára.
1. Ásdís Erlingsdóttir (Á.) ........... 47.9 sek.
2. Sigríöur Jónsdóttir (K.R.) .......... 48.6 —
3. HólmfríSur Kristjánsdóttir (K.R.) . . 48.8 —
Þaö var enginn smáræöis hópur ungra stúlkna,
sem tók þátt í þessu sundi, en þær voru 12 aö tölu.
Lofar þetta góöu um framtíðina, enda veitir þaö
ekki af, ef íslenskar sundkonur eiga einhverntíma
aö veröa sambærilegar við erlendar kynsystur sínar.
Eftirtektarvert er það, að K.R. stúlkurnar unnu alla
riðlana, að einum undanteknum.
25 mtr. frjáls aðferð, drengir innan 12 ára.
1. Garðar Gíslason (K.R.) .............. 23.4 sek.
2. Trausti Thorberg (K.R.) ............. 24.5 —
3. Sigmundur Guðmundsson (K.R.) .... 24.6 —
Af 6 þátttakendum voru 5 úr K.R., en 1 úr Ægi.
Er ekki rétt fyrir hin félögin að taka til athugunar
þenna mikla uppgang K.R. í unglingasundunum ?
100 mtr. baksund, karlar.
1. Jónas Halldórsson (Æ) ....... 1 mín. 20.4 sek.
2. Guðbrandur Þorkelsson (K.R.) 1 — 30.9 —
3. Hermann Guðjónsson (Á.) .. . 1 — 34.6 —
Tími Jónasar er betri heldur en fyrsta manns á 2
undanförnum meistaramótum, en rúmum 4 sek. lak-
ari en hans eigið met. Hermann syndir mjúkt og vel
og getur vafalaust orðið ágætur baksundsmaöur. —
Jónas var sá eini, sem notaði Kiefers-snúninginn,
sem hefir mikla yfirburði yfir þá aðferð, sein hér
er aðallega notuð.
400 mtr. bringusund, karlar.
1. Ingi Sveinsson (Æ.) .......... 6 mín. 33.8 sek
2. Sigurjón Guðjónsson (Á.) .... 6 — 35.6 —
3. Kári Sigurjónsson (Í.Þ.) .... 6 — 49.3 —
Hér hefir Ingi einnig fengið skæðan keppinaut
eins og í 200 mtr. Þeir Sigurjón voru jafnir fyrstu
200 mtr., en úr því dró nokkuð í sundur, en þó ekki
það mikið, að Ingi væri verulega öruggur, fyr en
síðustu 25 mtr. Það er ágætt, að hann skuli nú loks-
ins hafa fengið keppinauta, sem hann verður að
taka tillit til, því á það hefir mjög skort undanfarin
ár. Kári er sterkur og skriðlangur sundmaður. Met
Inga er 6 mín. 23.7 sek.
100 mtr. bringusund, drengir innan 16 ára.
1. Georg Thorberg (K.R.) ......... 1 mín. 30.3.sek.
2. Jóhann Gíslason (K.R.) ........ 1 — 38.5 —
3. Óttar Þorgilsson (R.) ......... 1 — 39.0 —
Hér er um miklar framfarir að ræða og er Georg
án efa mikið sundmannsefni. Af 7 þátttakendum
átti K.R. 5.
200 mtr. bringusund, konur.
1. Steinunn Jóhannesd. (í.Þ.) .. 3 mín.31.8 sek.
(nýtt met)
2. Þorbjörg Guðjónsdóttir (Æ.) 3 min. 38.2 sek.
3. Indíana Ólafsdóttir (Æ.) .... 3 •— 56.4 —
Steinunn hefir ekki sést hér áður á sundmótum, en
Hermann Guðjónsson og Randver Þorsteinsson.