Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2020, Page 20
Allt að 200 þúsund krónur
fyrir eina færslu
Íslenskir áhrifa
valdar hafa
þurft að aðlaga
sig breyttum
aðstæðum og
glíma margir
við tekjutap
vegna kórónu
veirunnar.
D avíð Lúther Sigurðar-son, eigandi og fram-kvæmdastjóri auglýs-
ingastofunnar Sahara, segir
áhrifavaldamarkaðinn á Ís-
landi fara ört stækkandi. Ís-
lenskir áhrifavaldar taka allt
frá 50 til 200 þúsund krónur
fyrir eina færslu. Margir
áhrifavaldar glíma nú við
tekjutap vegna kórónuveir-
unnar og þurfa að laga sig að
breyttum aðstæðum.
Stækkandi markaður
„Síðastliðin þrjú til fjögur ár
hefur áhrifavaldamarkaðurinn
rutt sér til rúms á Íslandi og
stækkar bara ef eitthvað er.
Áhrifavaldar hafa hækkað
verð gríðarlega, sem er bara
eðlilegt því sumir áhrifavaldar
hafa náð miklum árangri. Þeg-
ar fyrirtæki finna fyrir því,
þá náttúrlega hækkar verðið,“
segir Davíð Lúther.
„Svo eru áhrifavaldar sem
hafa gert þetta kolvitlaust með
því að kaupa fylgjendur fyrir
nokkrum árum. Það var og er
ómögulegt því þeir fá þetta
í bakið, fyrirtæki hafa ekki
aftur samband um mögulegt
samstarf því fyrsta samstarfið
virkaði ekki því það voru bara
einhverjir útlendingar eða
dauðir reikningar sem fylgja
áhrifavaldinum.“
Aðspurður um hvort dýr
merkjavara ýti undir vin-
sældir áhrifavalda á íslenskum
markaði segir Davíð svo ekki
vera að hans mati. Mikið hefur
borið á að áhrifavaldar séu að
taka myndir af sér með rándýr
veski og í merkjafatnaði þar
sem verðið hleypur á tugum
og hundruðum þúsunda. Sam-
kvæmt Davíð er slíkt ekki
ávísun á að viðkomandi auki
verðgildi sitt sem áhrifavaldur.
Íslenski áhrifavalda
markaðurinn á eftir
Davíð segir áhrifavaldinn
koma betur út fjárhagslega
sé hann í samstarfi við aug-
lýsingastofu eða jafnvel með
umboðsmenn þar sem alls
ekki allir hafi viðskipta- eða
markaðsbakgrunn.
„Það er ekki fyrr en nýlega,
kannski síðastliðna átján
mánuði, sem auglýsingastofur
og umboðsskrifstofur fóru að
bakka upp áhrifavalda á með-
an skandinavískir áhrifavald-
ar hafa unnið á þessum nótum
um árabil. Samfélagsmiðla-
stjörnur eru kannski bara fólk
sem varð óvænt vinsælt og er
þá ekki tilbúið með handritið
eða með ímyndina á hreinu.
Áhrifavaldar hér eru að verða
betri og betri í þessu.“
Davíð segir venjulegt verð
hjá íslenskum áhrifavöldum
fyrir eina færslu vera allt frá
50 þúsund krónum upp í 200
þúsund krónur en verðið hef-
ur hækkað gífurlega síðast-
liðið ár. Það eru til dæmi um
dýrari færslur og svo einnig
lengra samstarf áhrifavalds
með fyrirtækjum sem kostar
þá meira.
„Þegar áhrifavaldur fer
í samstarf með fyrirtæki
til lengri tíma, segjum þrjá
mánuði, er venjulega settur
upp samningur með fjölda
færslna. Í dag eru áhrifavald-
arnir sjálfir komnir með eigin
launastrúktúr. Þeir hafa loks-
ins fundið hann eftir að hafa
byggt upp fylgjendur og lært
hvað virkar og hvað virkar
ekki síðustu tvö til þrjú ár.“
Ekki duglegir að merkja
Davíð segir íslenska áhrifa-
valda ekki nægilega duglega
að merkja færslur sínar ef um
samstarf eða auglýsingu er að
ræða.
„Áhrifavaldar á Íslandi eru
yfirleitt að klikka á því og fara
mjög óvarlega í þetta. Ég held
að þetta eigi eftir að draga
dilk á eftir sér. Áhrifavaldar
sem eru ekki með umboðs-
skrifstofu eða stofu á bak við
sig eiga líklega eftir að lenda
illa í því, ef þetta heldur svona
áfram eins og þetta er hjá
mörgum íslenskum áhrifa-
völdum,“ segir Davíð.
„Fyrir einu og hálfri ári
gerði Neytendastofa smá
rassíu og það skilaði sér í
ákveðinn tíma, en eftir nokkra
mánuði fóru áhrifavaldar að
gleyma sér aftur.“
Tekjumissir vegna
kórónuveirunnar
Aðspurður um stöðu íslenskra
áhrifavalda vegna kórónuveir-
unnar segir Davíð marga
glíma við tekjutap meðan aðr-
ir komi vel út úr ástandinu.
„Það er klárlega tekjumissir
hjá stórum hluta íslenskra
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
Davíð Lúther Sigurðarson er eigandi og framkvæmdastjóri stafrænu auglýsingastofunnar Sahara. MYND/VIKTOR RICHARDSSON
áhrifavalda. En það er líka
ákveðinn hluti þeirra sem
hefur verið ansi klókur og náð
svolítið að bjarga sér með því
að vera í samstarfi með fyrir-
tækjum sem eru með net-
verslun,“ segir Davíð Lúther.
„Netverslanir hafa náttúr-
lega sprungið út síðastliðnar
fimm vikur. Þeir áhrifavald-
ar sem eru í samstarfi með
svoleiðis fyrirtækjum hafa
plumað sig mjög vel, eða bara
haldið sér.“
Hann segir enn fremur að
það hafi komið nokkur stór
og skemmtileg tækifæri fyrir
áhrifavalda í tengslum við
breytt viðskiptaumhverfi.
Hann nefnir bingókvöld Ali á
netinu. Skemmtikrafturinn og
áhrifavaldurinn Hjálmar Örn
sér um að stýra því.
„Ég held að fimmtán þúsund
einstaklingar hafi tekið þátt.
Það er eins og heil þjóðhátíð
hafi mætt í bingó. Það eru
svona tækifæri að poppa upp
fyrir áhrifavalda og skemmti-
krafta,“ segir Davíð Lúther. n
Fyrir einu og
hálfu ári síðan
gerði Neytenda-
stofa smá rassíu
og það skilaði sér
í ákveðinn tíma.“
Fyrir einu og
hálfu ári gerði
Neytendastofa
smá rassíu og
það skilaði sér í
ákveðinn tíma.
20 FÓKUS 17. APRÍL 2020 DV