Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2020, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2020, Blaðsíða 24
G uðmunda Ragnhildur Gísladóttir, betur þekkt sem Ragga Gísla, hefur komið víða við enda hæfileikarík með ein- dæmum. Hún er fyrst og fremst ein af okkar ástsæl- ustu söngkonum og starfaði til dæmis með hljómsveitunum Lummunum, Grýlunum og Stuðmönnum. Árið 2012 var Ragnhildur sæmd riddara- krossi hinnar íslensku fálka- orðu fyrir framlag sitt til ís- lenskrar tónlistar. Ragga er einnig fantagóð leikkona og hefur leikið í kvik- myndunum Með allt á hreinu, Í takt við tímann, Karlakórinn Hekla og Ungfrúin góða og húsið. Söngkonan glæsilega er 64 ára en hefur sjaldan eða aldr- ei litið betur út. Henni mætti helst líkja við stórstjörnuna og sönggyðjuna Jennifer Lopez sem sjálf virðist ekkert eldast. Báðar virðast hreinlega toppa sig ár hvert. Ragga Gísla stígur svo sannarlega í tískuvitið eins og myndaþátturinn hér gefur til kynna en íslenskar konur mættu gjarnan taka sér hug- rekki Röggu til fyrirmyndar og þora örlítið eða jafnvel miklu meira þegar kemur að fatavali. n RAGGA GÍSLA ER J-LO ÍSLANDS Hún er ókrýnd stíldrottning ís- lenskrar tónlistarsögu. Handhafi fálkaorðunnar og fyrsta konan til þess að semja og flytja Þjóð- hátíðarlagið. Hún Ragga Gísla er engum lík og gefur heitustu Hollywood-stjörnum ekkert eftir. Hér má sjá Röggu Gísla syngja með Grýlunum í kvikmyndinni Með allt á hreinu, en atriðið er líklega eitt af þekktustu augnablikum íslenskrar tónlistarsögu. Stórkostleg mynd af stórkostlegri konu. Takið eftir hönskunum. MYND/VILHELM Söngkonan glæsilega er 64 ára en hefur sjaldan eða aldrei litið betur út. 24 FÓKUS 17. APRÍL 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.